Fyrirtækja jólagjafir

Allt utan efnis

Höfundur
moltium
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Mán 13. Apr 2015 23:49
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf moltium » Þri 01. Okt 2024 13:44

Góðan daginn öll

Mig langaði að athuga hjá ykkur hvað hefur fólk verið að fá frá fyrirtækinu í jólagjöf og hvað myndu þið vilja fá í gjöf frá ykkar fyrirtæki?



Skjámynd

Dropi
Geek
Póstar: 861
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 261
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Dropi » Þri 01. Okt 2024 14:25

Ég hef fullnýtt öll gjafakort sem bæði ég og frúin fáum. Stundum almennt kort svona 40k og stundum í ákveðna verslun 60k.


LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X370 Strix - EVGA RTX 3090Ti FTW Black
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 3x12TB WD Ultrastar DC HC520


halipuz1
spjallið.is
Póstar: 465
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 19:25
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf halipuz1 » Þri 01. Okt 2024 14:32

Sem starfsmaður ákveðinnar stofnunar fengum við val um einhver gjafabréf, veglegasta gjafabréfið var 17.000 kr í ZO-ON.

Væri til í að sjá meiri upplifunar gjafabréf.


Leikjavélin: AMD Ryzen 9 7900X3D | Nvidia 4070 SUPER | 3TB NVME Geymsla | Arctic Freezer 240MM | 32GB DDR5
Plex/Server: i7 10700 | 32GB DDR4 | 8TB Geymsla


Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 643
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 105
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Dr3dinn » Þri 01. Okt 2024 14:55

Vill ekki sjá inneignir nein staðar, bara gjafakort í kringluna eða sambærilegt.

Er með bunka af inneignum heima i fyrirtækjum sem eru ekki til lengur eða hlutir runnir út.


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB


blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1809
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 147
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf blitz » Þri 01. Okt 2024 15:23

Persónulegt kort (1-2 setningar sem yfirmaður skrifar).

Súkkulaði / Konfekt / Kaffi

Gjafabréf sem er hægt að nota á fleirum en einum stað t.d. bankakort.

Alls ekki upplifun (t.d. Óskaskrín).

Ekki gefa til góðgerðarmála nema spyrja þann sem á að gefa í nafni fyrir, t.d. leyfa honum að velja.


PS4

Skjámynd

Saber
FanBoy
Póstar: 764
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Reputation: 15
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Saber » Mið 02. Okt 2024 08:32

blitz skrifaði:Ekki gefa til góðgerðarmála nema spyrja þann sem á að gefa í nafni fyrir, t.d. leyfa honum að velja.


Þetta finnst mér skrítið take. Eru góðgerðarmál einhverntíman slæm hugmynd?



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1606
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 264
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf depill » Mið 02. Okt 2024 08:35

Þar sem þessi gjafakort eru að verða meira vesen skattalega séð. Þá finnst mér alltaf best að inneign hjá Icelandair. Ég kaupi alltaf flug á hverju ári, nokkuð viss um að þau verði til á næstunni, þannig hentar vel




ABss
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
Reputation: 72
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf ABss » Mið 02. Okt 2024 09:46

Saber skrifaði:
blitz skrifaði:Ekki gefa til góðgerðarmála nema spyrja þann sem á að gefa í nafni fyrir, t.d. leyfa honum að velja.


Þetta finnst mér skrítið take. Eru góðgerðarmál einhverntíman slæm hugmynd?


Í sjálfu sér nei, en raunveruleikanum eru þau mismunandi eins og allt annað.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1820
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 88
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf axyne » Mið 02. Okt 2024 09:49

blitz skrifaði:Persónulegt kort (1-2 setningar sem yfirmaður skrifar).


Þetta finnst mér vera það mikilvægasta.
Eitthvað almennt skrifað kort sem allir fá er svakalega ómerkilegt og lætur mann líða litlum á meðan persónulegt kort yljar manni um hjartarætur.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8634
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1384
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf rapport » Mið 02. Okt 2024 10:50

depill skrifaði:Þar sem þessi gjafakort eru að verða meira vesen skattalega séð. Þá finnst mér alltaf best að inneign hjá Icelandair. Ég kaupi alltaf flug á hverju ári, nokkuð viss um að þau verði til á næstunni, þannig hentar vel


Það má gefa gjafakort frá YAY o.þ.h. en ekki gjafakort sem hægt er að taka út sem pening.

Upphæðin sem fyrirtæki geta gefið hverjum starfsmanni (með árshátíð o.þ.h.) á ári er um 160þ.

Að gefa YAY kort upp á 10þ. á því ekki að vera vesen skattalega séð.



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2788
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 129
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf zedro » Mið 02. Okt 2024 17:29

Matakarfa! Gegnum árin hefur karfan verið stórt kjötstykki, minna kjöt, kaffi, konfekt, gjafakort eða gjöf og auðvitað kort.

Mútta ávalt helvíti sátt þegar karfan mætir og þarf aðeins minna að spá í innkaupum um jólin.


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 95
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf natti » Sun 06. Okt 2024 16:19

Ég er team gjafakort (kringlan / smáralind).
Það nýtist svo gott sem öllum, því það er variety af búðum sem hægt er að velja úr.

Vandamálið við svo gott sem flest allar aðrar gjafir er að þær ná ekki til allra.
Sum fyrirtæki gefa áfengi - alls ekki allir drekka áfengi og sumir eru kannski á þannig stað að þeir vilja ekki fá áfengið til sín.
Sum fyrirtæki gefa matarkörfur - Ná ekki til allra m.t.t. mismunandi matarvenja, sem og það sem nýtist kannski ákveðinni kynslóð nýtist ekki næstu.
Sama á við um konfekt og kaffi.
(hérna einusinni held ég að ég hafi hent meira og minna af mínum matarkörfum sem ég fékk frá þáverandi vinnuveitanda.)
Sum fyrirtæki gefa upplifun - please for the love of everything, don't. Það er oft aktíva útivistarmanneskjan sem fær þessa hugmynd, þetta nýtist ekki öllum og bara til að vera hreinskilinn þá eru þessar gjafir oft ekkert sérstaklega góðar.
Sum fyrirtæki gefa skrautmuni - Smekkur fólks er misjafn, en það var líka gaman þegar ákveðin manneskja í mínu lífi missti andlitið þegar hún sá að ég var að nota einhverja fancy Georg Jensen skál sem poppskál. En þetta er galin hugmynd að eyða pening í e-ð sem er bara rusl og fyrir á sumum heimilum.

Gjafabréf frá flugfélagi nýtist mörgum, en ekki öllum, en það er líka líklegra til að gleymast og/eða renna út.

Kosturinn við generic gjafakort (t.d. Kringlunni og Smáralind), er að þau nýtast líka "strax" ef út í það er farið, á tíma árs þar sem flestir eru að eyða meira en venjulega.
Hvort sem þú vilt kaupa eitthvað fyrir þig (sérstaklega ef þú ert single og/eða yngri einstaklingur), eða nýta í eina af bónusferðunum fyrir jólin.

Eftir því sem starfsmannahópurinn stækkar, þá er ígildi peninga (gjafakort) það eina sem er líklegast til að nýtast öllum.


Mkay.


T.Gumm
Græningi
Póstar: 31
Skráði sig: Lau 29. Jún 2024 01:23
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf T.Gumm » Sun 06. Okt 2024 21:12

ég hef bara aldrei fengið jólagjafir frá fyrirtækjum sem ég hef unnið fyrir :O



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8634
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1384
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf rapport » Lau 13. Des 2025 15:18

Fékk 16.500 Í bestseller í gegnum YAY, líklega verðmætasta jólagjöf sem ég hef fengið frá vinnuveitanda ever.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3151
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 462
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf hagur » Lau 13. Des 2025 15:24

Val á milli nokkurra mismunandi gjafabréfa, einnig hægt að velja að styrkja gott málefni.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6598
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 549
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf worghal » Lau 13. Des 2025 18:48

ég fékk 35þ í yay inneign sem ég læt konuna sjá um að eyða og hún fékk 50þ í kringluna og ég fékk að nota 35þ af því í nexus gjafakort svo ég geti keypt meira warhammer :guy


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


nonesenze
Kerfisstjóri
Póstar: 1298
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 104
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf nonesenze » Lau 13. Des 2025 19:07

vantaði hamborgar hrygginn í ár en í stað var nautalund, hangikjöt og lamba læri og osta karfa með 7 ostum og kexi og eitthvað ærfillet sem ég veit ekkert hvað er. gæsakæfa jólasíld og margt annað og 75k í samkaup korti


CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x24gb 8400mhz cl40
Skjákort: RTX 5090 Palit
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: 2x360 custom loop
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB x2
Skjár: asus pg32ucdm
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos


Bandit79
Græningi
Póstar: 47
Skráði sig: Lau 02. Ágú 2014 13:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Bandit79 » Lau 13. Des 2025 19:52

25.000,- Gjafabréf í Bónus og Konfekt kassi frá Nóa hér. Það nýtist vel og bara mjög ánægður :)




Hausinn
FanBoy
Póstar: 774
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 175
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Hausinn » Lau 13. Des 2025 20:16

27.000kr gjafabréf í Kringlunni. Finnst það bara mjög fínt.




Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Sinnumtveir » Sun 14. Des 2025 00:25

natti skrifaði:Ég er team gjafakort (kringlan / smáralind)

...

Sum fyrirtæki gefa áfengi - alls ekki allir drekka áfengi og sumir eru kannski á þannig stað að þeir vilja ekki fá áfengið til sín.

...


Jæja, er þetta ekki bara spurning um lítilsháttar æfingu. Stutt námskeið í áfengisneyslu eða soleiðis?

En að gríni slepptu er peningur eða ígilidi þeirra í td Visa gjafakorti best en skatturinn held ég að hafi nennst til að ~ eyðileggja þennan möguleika.
Næst best er sennilega að fá td gjafakort í Kringluna eða Smáralind því á endanum nær maður að gera eitthvað úr þeim.

Hallmark í USA selur fílgúd í kortum osfrv. Þeirra slagorð er "When You Care Enough to Send the Very Best".
Je ræt. Skrilljón manns hafa komið auga á að svar slagorðsins á enskri tungu er "cash", þeas reiðufé en ekki okurverðs Hallmarkkort.

Gjafabransinn hefur löngum ýtt undir að reiðufé sé ekki falleg gjöf (þó sæmilega vitibornu fólki sé augljóst að hún sé best). Þeirri hugmynd er lætt að gefendum að það sé gróft, jafnvel ruddalegt, að gefa pening. Að reiðufjárgjöf beri gefandanum slæmt vitni. Ekkert er fjær sanni. Án þessarar hugmyndar hefur td Hallmark nkl ekkert viðskiptamódel. Ein eftirminnilegasta gjöf sem ég hef fengið er útskriftargjöf sem laumað var til mín, já peningur. Er ég sár yfir þessari hráslagalegu gjöf? Nei, öðru nær, þvert á móti, henni fylgdi augljós ást og væntumþykja og síðast en ekki síst, frelsi <3

Sem sagt: Besta gjöfin er reiðufé. Fyrirtæki mega það ekki. Næst best er almennt greiðslukort með inneign, held að skatturinn sé ~ búinn að loka á það. Þriðja best er sennilega gjafakort í verslunarmiðstöð sem ég held að sé leyfilegt.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3870
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 275
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Tiger » Sun 14. Des 2025 00:30

50k hérna í Kringlunni, beint í bónus þar og kaupi bónuskort og nota svo í bónus í mínu nágrenni. Mig vantar fátt sem fæst í Kringlunni.




bigggan
spjallið.is
Póstar: 467
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 37
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf bigggan » Sun 14. Des 2025 00:31

Hjá okkur fengum við að velja milli nokkrum stöðum, á milli 40 til 60 þúsund krónur, td kringlan og Icelandair. Sem ég finnst alveg fínt þau sem vilja bara kringlan eða Bónus fær það, en þau sem vilja eikvað ákveðið fyrirtæki fæ lika eikvað sem hentar sér.




Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 594
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Sinnumtveir » Sun 14. Des 2025 00:54

Tiger skrifaði:50k hérna í Kringlunni, beint í bónus þar og kaupi bónuskort og nota svo í bónus í mínu nágrenni. Mig vantar fátt sem fæst í Kringlunni.


Aldeilis frábær lausn sem kýlir hallærisskattstjórann kaldann. Takk fyrir þetta.

PS. ef ég man rétt er ekki Bónus í Smáralind og þar af leiðandi er Kringlukort betra en Smáralindarkort.
Síðast breytt af Sinnumtveir á Sun 14. Des 2025 00:56, breytt samtals 1 sinni.




J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 936
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 31
Staða: Ótengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf J1nX » Sun 14. Des 2025 01:27

15þús kr gjafabréf sem hægt er að nota í völdum búðum á Dalvík, rennur út 14jan.. með því lélegra sem ég veit um.


_________________________________________________________________________________________________________________
Gigabyte Z790 GAMING - Intel i9 14900K 6ghz Turbo - 64gb Trident Z5 DDR5-6000 - Gigabyte RTX 4080 Super 16GB Windforce V2

Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2397
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 69
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Tengdur

Re: Fyrirtækja jólagjafir

Pósturaf Gunnar » Sun 14. Des 2025 01:44

Tiger skrifaði:50k hérna í Kringlunni, beint í bónus þar og kaupi bónuskort og nota svo í bónus í mínu nágrenni. Mig vantar fátt sem fæst í Kringlunni.

biiiiiig brain move þarna. ég fékk einmitt líka 50k i kringluna en vantar ekkert. ætlaði að kaupa mér airfyer og peysu bara :lol: