Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Skjámynd

Höfundur
flottur
Tölvutryllir
Póstar: 693
Skráði sig: Þri 02. Jún 2009 14:37
Reputation: 47
Staðsetning: Gardentown
Staða: Ótengdur

Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf flottur » Fim 12. Jún 2025 10:58

Sælir/sælar

Titil segir allt sem segja þarf, vantar rafhlöðu í lenovo thinkpad x280.
Spurningin er : eru menn að panta frá umboði eða eru til síður sem græja þetta fyrir mann?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf GuðjónR » Fim 12. Jún 2025 12:07

Ég myndi alltaf fara með tölvuna í umboðið, tæki ekki sénsinn á 3d party batteríi/viðgerð. Og það er held ég varla hægt lengur að panta rafhlöður að utan vegna öryggiskrafna ef þú vildir gera þetta sjálfur.
Getur prófað að tala við IBM/Nýherja/Origo/Ofar/Tölvutek eða hvað þetta nú heitir í dag :megasmile og fengið upplýsingar um kostnað.




traustitj
Nörd
Póstar: 119
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf traustitj » Fim 12. Jún 2025 12:27

Ég er með Razer ferðavél og þeir eru hundleiðinlegir að díla við, sérstaklega þegar vélin er ekki í ábyrgð. Þeir voru tilbúnir að senda rafhlöðu til heimilisfangs í Svíþjóð sem ég get reddað, en svo þegar kom að því að senda þá breyttu þeir um gír, vildu að ég sendi þeim tölvuna til USA á minn kostnað ásamt því að ég greiddi gjald fyrir eyðileggingu á vélinni ef ég vildi hana ekki tilbaka og meira svona stórkostlega fuðurðulegt.

Fyrir rælni fór ég á ali express, fann rafhlöðu í akkúrat módelið mitt. Fékk hana heim án vandræða. Rafhlaðan leit 100% út eins og sú sem var í vélinni, með þeirra logo og allt slíkt. Ég held að þetta sé alvöru razer rafhlaða. Smellti í vélina og þetta bara virkaði eins og í sögu, hefur núna verið notuð í rúmt ár allavega held ég og er alveg enn eins og ný.

Fyrir thinkpad, þá myndi ég reyna við hvað sem þeir heita í brautarholtinu í dag. Þeir hafa verið sanngjarnir með varahlutaverð. Annars er ebay, ali og fjöldi aðila sem eru bara glaðir að selja þér rafhlöðu.



Skjámynd

Höfundur
flottur
Tölvutryllir
Póstar: 693
Skráði sig: Þri 02. Jún 2009 14:37
Reputation: 47
Staðsetning: Gardentown
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf flottur » Fim 12. Jún 2025 14:12

Takk fyrir svörin strákar.




ejm
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf ejm » Fim 12. Jún 2025 14:26

Ég pantaði einhvern tímann á hótel í vinnuferð. Hef líka pantað af ebay, en grunar að það hafi verið vitlaust skráð, því það kom með dhl í flugi, svo ég hef ekki pantað þaðan aftur. Oft eru fartölvur orðnar lúnar líka, þegar rafhlaðan er farin að slappast, en það er misjafnt eftir fartölvum og framleiðendum.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf GuðjónR » Fim 12. Jún 2025 15:07

Ég vil bara vara við því að panta batterí af AliExpress.
Svona fór það með iPhone 4s.
Er feginn að það kviknaði ekki í húsinu því hann var svona einn morguninn og ekki í hleðslu!
Viðhengi
IMG_0644.jpeg
IMG_0644.jpeg (1.7 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0643.jpeg
IMG_0643.jpeg (1.21 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0642.jpeg
IMG_0642.jpeg (1.28 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0641.jpeg
IMG_0641.jpeg (1.22 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0640.jpeg
IMG_0640.jpeg (3.05 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0648.jpeg
IMG_0648.jpeg (1.6 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0647.jpeg
IMG_0647.jpeg (1.59 MiB) Skoðað 420 sinnum
IMG_0646.jpeg
IMG_0646.jpeg (1.56 MiB) Skoðað 420 sinnum



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 746
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 49
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf gRIMwORLD » Fim 12. Jún 2025 21:37

haha hef séð þetta gerast með original rafhlöður í bæði Lenovo Thinkpad og Dell Latitude vélum ca 3-4 ára gamlar


IBM PS/2 8086


ejm
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf ejm » Fös 13. Jún 2025 09:21

Ég var með eina Dell Latitude vinnutölvu sem fór svona með tvö original batterí frá Advania. Það var held ég dokkunni að kenna og thunderbolt tenginu. Pro-tip, ef touchpadið bólgnar upp, þá er þetta möguleg orsök.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf rapport » Fös 13. Jún 2025 11:56

Hver segir að íslenski aðilinn panti sitt stöff ekki frá Ali, þ.e.a.s. ef þú verslar annarstaðar en hjá Ofar?




Omerta
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 01:49
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf Omerta » Sun 15. Jún 2025 00:05

Ofar selur á 30k ca. nýtt battery í 5 ára gömlu Lenovo vélina mína. Þeir buðu mér að spara og taka frá 3rd party via Ali, þá á einungis 27 þúsund krónur... iFixit selur þetta battery á síðunni sinni á 50 USD en senda bara innan USA. Algjör steypa.




Zensi
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Mán 10. Apr 2023 00:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?

Pósturaf Zensi » Sun 15. Jún 2025 09:59

Ef þú ert að spá í að panta frá landi sem sendir ekki til Íslands þá get ég mælt með að fá Proxy buyer eða forwarder hér:

Reddit.com/r/internationalshopper

Bara velja þá sem hafa verið lengi að og hafa byggt upp gott rep. Margir með þetta sem fulla vinnu og hafa gott uppúr því.
Hef notast við proxy's í japan og forwarders í UK og USA. Allt gengið eins og í sögu :)