Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál?

falcon1 skrifaði:Ég er að pæla í að byggja mér sólpall en ég bý í fjölbýli á neðri hæð. Ég þarf að finna út hverjir eru þinglýstir eigendur íbúðanna (það eru nokkrar íbúðir í útleigu) svo ég geti fengið undirskrifað leyfi hjá þeim til að byggja pallinn. Hann mun fara aðeins inná sameiginlega lóð húsins.
Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál?
Eiganda er einnig óheimilt á eigin spýtur að framkvæma nokkrar breytingar á sameign eða helga sér til einkanota hluta sameignar. Þá getur eigandi ekki fyrir hefð öðlast aukinn rétt til sameignar.
Allar sameiginlegar ákvarðanir eiga að vera teknar á húsfundum
Sú meginregla gildir að allar sameiginlegar ákvarðanir skal taka á húsfundum þar sem allir eigendur hafa átt þess kost að mæta og taka þátt í umræðum, ákvörðun og atkvæðagreiðslu. Allir eigendur eiga þannig óskorðan rétt á að taka þátt í öllum ákvörðunum er varða sameignina, bæði innan húss og utan, og sameiginleg málefni sem snerta hana beint og óbeint, til dæmis um fyrirkomulag, skipulag, útlit, viðbyggingar, breytingar, hvers kyns framkvæmdir, endurbætur, viðhald, rekstur, ráðstöfun með samningi, hagnýtingu sameignar og séreignar og setningu reglna þar um. Einstökum eiganda er þannig óheimilt upp á sitt einsdæmi að taka ákvarðanir eða gera ráðstafanir sem snerta sameign eða sameiginleg málefni nema svo sé ástatt sem greinir í 37. og 38. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 26/1994.
Ghost skrifaði:falcon1 skrifaði:Ég er að pæla í að byggja mér sólpall en ég bý í fjölbýli á neðri hæð. Ég þarf að finna út hverjir eru þinglýstir eigendur íbúðanna (það eru nokkrar íbúðir í útleigu) svo ég geti fengið undirskrifað leyfi hjá þeim til að byggja pallinn. Hann mun fara aðeins inná sameiginlega lóð húsins.
Ég var að prófa Þjóðskrá og Fasteignaskránna en ég finn ekki upplýsingar um þinglýsta eigendur neins staðar. Vitið þið eitthvað um þessi mál?
Banka uppá og fá símanúmer hjá eigendum
Eiganda er einnig óheimilt á eigin spýtur að framkvæma nokkrar breytingar á sameign eða helga sér til einkanota hluta sameignar. Þá getur eigandi ekki fyrir hefð öðlast aukinn rétt til sameignar.
falcon1 skrifaði:Jamm, ég vil gera þetta rétt - einmitt svo maður lendi ekki í veseni og tapi síðar.
falcon1 skrifaði:Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?
mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.
falcon1 skrifaði:mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.
Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum

rapport skrifaði:falcon1 skrifaði:Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?
En ég minnist á þetta því að það er fátt ljótara en að sjá blokkir þar sem eru komnar 2-3 tegundir af pöllum, í mismunandi lit og mjög misjöfnum gæðum af efnivið. Í raun væri best að gera kröfu um lerki og banna að borið sé á skjólveggina.
benony13 skrifaði:rapport skrifaði:falcon1 skrifaði:Er eitthvað annað sem er mikilvægt að hafa í huga við svona verkefni?
En ég minnist á þetta því að það er fátt ljótara en að sjá blokkir þar sem eru komnar 2-3 tegundir af pöllum, í mismunandi lit og mjög misjöfnum gæðum af efnivið. Í raun væri best að gera kröfu um lerki og banna að borið sé á skjólveggina.
Off topic
Lerki er ekki viðhaldsfrítt, ef þú vilt endingu á timbrið þá þarf að bera í það. Vissulega mjög endingagott og það þarf ekki nærri jafn mikið viðhald og t.d Fura.
olihar skrifaði:falcon1 skrifaði:mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.
Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum
Um að gera láta reyna á þetta.
Ég fór í gegnum svona ferli hjá mínu húsfélagi, s.s. nýjan eignaskiptasamning, það þarf að láta gera það af löglegum aðila, það er listi einhverstaðar á netinu með þeim sem mega gera þetta. Ferlið tók meira en 2 ár.
Þetta kostaði alveg 3 milljónir ef ég man rétt. Enda gamli eignarskiptasamningurinn löngu orðinn úreltur. Þetta endaði með að stækka allar eignirnar og þar með hækkaði þessi gjörningur fasteignagjöld hjá öllum líka. (og jók verðmætin á eignunum þar sem bættust við fermetrar)
falcon1 skrifaði:olihar skrifaði:falcon1 skrifaði:mikkimás skrifaði:Að fara með sólpall inn á sameignarlóð, þó það sé bara smá og með samþykki *núverandi* meirihluta eigenda, finnst mér vera hættulegur leikur til lengri tíma og ekki þess virði.
Þótt það sé samþykkt á húsfundi að breyta eignarskiptasamningnum
Um að gera láta reyna á þetta.
Ég fór í gegnum svona ferli hjá mínu húsfélagi, s.s. nýjan eignaskiptasamning, það þarf að láta gera það af löglegum aðila, það er listi einhverstaðar á netinu með þeim sem mega gera þetta. Ferlið tók meira en 2 ár.
Þetta kostaði alveg 3 milljónir ef ég man rétt. Enda gamli eignarskiptasamningurinn löngu orðinn úreltur. Þetta endaði með að stækka allar eignirnar og þar með hækkaði þessi gjörningur fasteignagjöld hjá öllum líka. (og jók verðmætin á eignunum þar sem bættust við fermetrar)
Hvað kostaði 3 milljónir og tók þetta 2 ár?