Að setja saman Server?


Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Að setja saman Server?

Pósturaf ErectuZ » Lau 10. Júl 2004 17:34

Ég vissi ekki hvar ég ætti að pósta þessu, þannig að ég set það hingað.

Ég er að pæla í því að setja saman svona server. Það er að segja, tölvu sem ég nota til að host'a servera og svona, t.d. Teamspeak servera og þannig. Ég veit ekki hvað væri besti serverinn, en ég ætla mér ekki að spila neina leiki á henni eða neitt. Bara hafa kveikt á henni 24/7 með 1 eða fleiri servera í gangi. Nú er komið að ykkur að hjálpa mér. Ég er nú þegar með móðurborð (man ekki hvaða gerð) og 1100mhz Celeron Örgjörfa einhvers staðar í felum. Svo held ég að ég eigi 4GB harðann disk líka. En ég þarf held ég að kaupa restina. Svo á ég auðvitað kassa líka :wink:. Hvað meira ætti ég að kaupa? Hve mikið RAM, hvernig skjákort o.s.frv.

Edit: Og ef einhver er að selja svona low end drasl mjög ódýrt, þá skal ég skoða verðið og kaupa ef það er nógu lágt :twisted:




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Lau 10. Júl 2004 17:44

Var ekki einhver að selja 2 p3 900 og 800mhz vélar á til sölu þræðinum?




Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Lau 10. Júl 2004 17:56

Jú, en ég á nú þegar örgjörva, móðurborð og HDD :wink:




Grobbi
Nörd
Póstar: 114
Skráði sig: Mið 26. Maí 2004 18:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Grobbi » Sun 11. Júl 2004 13:27

þarft bara eitthvað svona 256 ram ef þú ætllar bara að hafa teamspeak server.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 11. Júl 2004 13:44

ég er með 384mb í minni serverinum hjá mér




Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Sun 11. Júl 2004 16:45

hehe. Ekki bara Teamspeak. Líka einn leikjaserver. En í hann hef ég reyndar aðra tölvu, sem er með 60RAM :?



Skjámynd

tms
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 04. Ágú 2003 00:56
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf tms » Sun 11. Júl 2004 17:05

Það fer allt eftir því hvað þú ætlar að hafa á serverinum og hvaða stýrikerfi þú ætlar að nota (windows er ekki sjálfsagt). Leikjaserverar taka oft mikið CPU og minni, kíktu á heimasíðu leiksins sem þú ætlar að serva. 1100mhz er miklu meira en nóg fyrir teamspeak eða ventrilo. Spurðu vini þína hvort þeir eiga ekki eitthvað drasl skjákort sem þeir nota ekki lengur.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 11. Júl 2004 20:57

verður að segja okkur hvað nákvæmlega þú ætlar að hosta...........




Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Sun 11. Júl 2004 23:49

Ég var að pæla í að hosta NwN server (Neverwinter Nights) og svo kannski teamspeak..

Edit: Svo á ég ekki Linux :(




Grobbi
Nörd
Póstar: 114
Skráði sig: Mið 26. Maí 2004 18:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Grobbi » Mán 12. Júl 2004 00:24

við í kotr vorum með 2-3 counter strike servera uppi á 2000 amd athlon xp+ og eitthvað fint mobo. 256 ram minir mig 10 gb hdd og á linux




Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Mán 12. Júl 2004 01:08

Já, en ég er ekki að fara að hosta neina Counter-Strike servera :P




KinD^
Ofur-Nörd
Póstar: 278
Skráði sig: Þri 04. Nóv 2003 02:01
Reputation: 0
Staðsetning: VKóp
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf KinD^ » Mán 12. Júl 2004 03:00

hmm ég myndi bara nota drasl skjákort og linux er held ég besti kosturinn í það að hosta server á ef þú ætlar að hafa kveikt á vélinni 24/7 ... getur líka haft netið á sever tölvunni og bnc og fleyra :) btw linux kostar ekkert :)


mehehehehehe ?

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1704
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 40
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mán 12. Júl 2004 09:28

Rainmaker skrifaði:Ég var að pæla í að hosta NwN server (Neverwinter Nights) og svo kannski teamspeak..

Edit: Svo á ég ekki Linux :(


Þarft meira en 4Gb HDD fyrir NWN!.. Stýrikerfið tekur 1-1,5Gb og þá er voðalega lítið eftir, nema þú sért ekki með SoU og HoU. Aðalatriðið við góðan server er að hafa gott I/O og sæmilegt minni.. annað skiptir ekki máli.

Annars eru lágmarkskröfur (samkvæmt heimasíðu Bioware):
CPU: PII 450Mhz (800mhz recomended)
RAM: 96Mb (256 recomended)
HDD: 2Gb (Svoldið lítið.. minnir að ég hafi verið kominn upp í 3Gb með SoU og HoU)

Sjálfur spilaði ég lengi á 866Mhz PIII, 256Mb minni og gömlu 32Mb skjákorti og það virkaði bara fínt (náttúrulega ekki með hámarks upplausn).

Leiðbeiningar fyrir NWN Linux uppsettningu.. og nokkur mismunandi Linux download (innannlands, Red Hat er fínt en margir eru hrifnir að öðrum útgáfum) svo geturðu örugglega fundið uppsettningar leiðbeiningar á netinu.. Annars getur verið best að nota bara Windows ef þú kannt betur á það.




Höfundur
ErectuZ
Geek
Póstar: 872
Skráði sig: Mið 24. Mar 2004 21:17
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf ErectuZ » Mán 12. Júl 2004 11:35

Sko, ég veit um lágmarkskröfur og allt það, en þegar maðut hostar NwN server, þá fer maður aldrei inn í leikinn sjálfann. Þetta er bara svona lítill gluggi þar sem að maður sér spilara o.s.frv. Ég er að pæla í að spila hann á annar tölvu. Þessari sem ég er á núna :)