Ég er að pæla í því að setja saman svona server. Það er að segja, tölvu sem ég nota til að host'a servera og svona, t.d. Teamspeak servera og þannig. Ég veit ekki hvað væri besti serverinn, en ég ætla mér ekki að spila neina leiki á henni eða neitt. Bara hafa kveikt á henni 24/7 með 1 eða fleiri servera í gangi. Nú er komið að ykkur að hjálpa mér. Ég er nú þegar með móðurborð (man ekki hvaða gerð) og 1100mhz Celeron Örgjörfa einhvers staðar í felum. Svo held ég að ég eigi 4GB harðann disk líka. En ég þarf held ég að kaupa restina. Svo á ég auðvitað kassa líka

Edit: Og ef einhver er að selja svona low end drasl mjög ódýrt, þá skal ég skoða verðið og kaupa ef það er nógu lágt
