Núna er kominn tími á að fá sér Digital Upptökuvél og þar sem ég veit ekki mikið um þessa hluti var ég að vonast til þess að þið vissuð eitthvað meira en ég um þá. Ég er ekki tilbúinn að eyða meira en 50 þús kalli í hana (kannski 60 þús) og hún þarf að vera létt og þæginleg. Eftir að ég hafði skoðað hitt og þetta rakst ég í auglýsingu í fréttablaðinu. Þar var myndavélin "Jvc Gr-d30" auglýst á 53 þús kr. (hún kostar 50.000 í fríhöfninni) Getur einnhver sagt mér hvort það sé góð kaup og ef einnhver á þannig endilega segja mér hvernig þeim aðila finnst hún. http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=GRD30 Það eina sem ég veit um hana er að hún sé 800.000 pixlar og ég hef ekki græna glóru hvort það sé betra eða verra en sést á spólum. Endilega komið með einnhverja skemmtilega punkta og "gæðakannanir" ef þið vitið um þannig.
Með fyrirframm þökk
DA Prankster
