Core i7 950


Höfundur
corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Core i7 950

Pósturaf corflame » Fös 03. Sep 2010 14:22

Erlendis (Amazon.com) munar einungis nokkrum $ á i7 930 ($284.99) og i7 950 ($299.99).

Ég hefði því haldið að það væri rakið dæmi að selja þessa örgjörva hér, en hef enga verslun séð sem selur þetta.

Hvet því tölvuverslanir hérlendis til að taka þetta í sölu!




vesley
Kóngur
Póstar: 4266
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 196
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Core i7 950

Pósturaf vesley » Fös 03. Sep 2010 15:15

Minna en vika síðan verðið á i7 örgjörvunum fór að lækka, Og gæti verið að það verði hætt með sölu á 930




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4245
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1422
Staða: Ótengdur

Re: Core i7 950

Pósturaf Klemmi » Fös 03. Sep 2010 23:57

corflame skrifaði:Erlendis (Amazon.com) munar einungis nokkrum $ á i7 930 ($284.99) og i7 950 ($299.99).

Ég hefði því haldið að það væri rakið dæmi að selja þessa örgjörva hér, en hef enga verslun séð sem selur þetta.

Hvet því tölvuverslanir hérlendis til að taka þetta í sölu!


Haha, þú gerir þér grein fyrir því að flestar ef ekki allar verzlanir á Íslandi panta örgjörva frá stórum birgjum (ekki beint frá Intel) og bæði þær og birgjarnir vilja helst klára sínar birgðir áður en þeir panta inn þessa og bjóða á svipuðu eða sama verði og i7-930 :)
Svolítið óþolinmæði finnst mér í þér, verðið á þessum örgjörvum lækkaði ekki úti (nema í forpöntunum) fyrr en fyrir 1-2 dögum :)


Starfsmaður Tölvutækni.is


everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Core i7 950

Pósturaf everdark » Lau 04. Sep 2010 10:10

corflame skrifaði:Erlendis (Amazon.com) munar einungis nokkrum $ á i7 930 ($284.99) og i7 950 ($299.99).

Ég hefði því haldið að það væri rakið dæmi að selja þessa örgjörva hér, en hef enga verslun séð sem selur þetta.

Hvet því tölvuverslanir hérlendis til að taka þetta í sölu!


Verðið á 950 var uþb helmingað síðasta mánudag.. svo það er varla hægt að ætlast til þess að þeir séu komnir með þetta í hillur strax, sérstaklega þeir sem eiga birgðir af 930 (sem eru þó líklega ekki margir..)




Höfundur
corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Re: Core i7 950

Pósturaf corflame » Lau 04. Sep 2010 15:52

Ég held þið séuð að misskilja þetta innlegg mitt, er ekki að ætlast til að þessu sé teleportað beint í hillur.

Heldur hugsaði ég sem svo, að fyrst ég sem áhugamaður um vélbúnað veit þann 23. ágúst að það er von á lækkun 30. ágúst, er þá ekki líklegt að þeir sem hafa lifibrauð af verslun með tölvuíhluti geri það líka?

Að þeir hafi hætt að taka inn eldri týpur og panti þetta inn um leið og lækkun hefur átt sér stað?

Ef Amazon getur verið með lækkað verð á þessari týpu frá fyrsta degi, hví geta íslenskar verslanir það ekki 4 dögum síðar?

Var því hissa að þetta væri ekki komið til landsins.




Höfundur
corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Re: Core i7 950

Pósturaf corflame » Lau 04. Sep 2010 16:03

Og í þeim skrifuðu orðum, þá sé ég þetta hjá Tölvutækni:

Kóði: Velja allt

Intel Core i7-950 3.06GHz, LGA1366, Quad-Core, 8MB cache, OEM

Vara #:  1802

Varan er væntanleg á lager 7. september, 2010.

50.900.-


Þá þarf maður að fara á stúfana í næstu viku og uppfæra :)