Sony er off. Dýrt og ég nenni ekki að standa í þessu ef eitthvað bilar. Toshiba voru nice fyrir nokkrum árum en mér finnst þær eitthvað svo klossaðar í dag. Ég ætla samt að skoða þessar U500, þær looka allavega ágætlega. Takk fyrir ábendinguna.
Ástæðan fyrir því að ég vil helst ekki Lenovo/IBM er að vinur minn átti IBM og hún var algjört rusl. Auk þess hef ég aðeins kynnst þessum tölvum í gegnum vinnuna og ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þessu. Finnst alltaf eins og þær séu að hrynja í sundur. Mér sýnist Lenovo vera of dýrt miðað við specs nema að Nýherji sé að leggja ágætlega mikið á þær.
ElbaRado skrifaði:Annar galli við þessar tölvur að þegar ert með tölvuna meira en 90°opna þá blæs viftan heitu lofti upp á skjáinn þannig að það er komin eyðing í vinstra hornið hja mér.
Ég fór niðrí EJS áðan og ótrúlegt en satt þá er þetta ennþá á studio xps! Fann aðeins um þetta á cnet þannig að hitavesenið er greinilega enn til vandræða:
Dell has placed one of the primary exhaust vents at the back edge of the laptop, which, in our opinion, isn't a good idea. It gets partially obscured when the screen is open at a 90° angle, and is blocked almost completely when the screen is tilted back further. This, unsurprisingly, causes the laptop to get hot.
Mér finnst líklegast að ég taki samt studio xps 13 þrátt fyrir þetta vesen:
CPU: Intel core 2duo P8700 2,53Ghz
eða P7450 2,13Ghz (báðir 3MB, 1066MHz)
RAM: 4gb 1067mhz DDR3
Skjákort: 512 MB nVidia GeForce 210M - EJS eru með nVidia GeForce 9400M G
Skjár: 13,3" white LED WXGA TrueLife (1280x800 upplausn) - EJS ekki með LED
svo á ég eftir að meta það hvernig HDD ég hef í henni, líklega 320 eða 500gb 7200rpm.
Er mikill munur á P7450 2,13Ghz og P8700 2,53Ghz? Það er eiginlega það eina sem ég hef áhyggjur af.