Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)


Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Mán 11. Jan 2010 21:06

Mig vantar fartölvu fyrir næsta haust fyrir ca 200.000 og verður líklega ekki keypt á Íslandi. Hún verður aðallega notuð í skóladót (word/excel/forritun/etc) en líka í aðeins þyngri og leiðinlegri forrit sem tengjast tónlist eins og Serato Scratch Live. Líklega ekkert í leiki. Hún þarf að hafa góðan örgjörva og skjákort (veit samt ekkert hvernig), 802.11n wifi og helst ekki vera stærri en 13,3". Harði diskurinn þarf ekki að vera neitt sérstaklega stór, bara 7200rpm því ég mun líklega uppfæra hann og RAMið fljótlega og hvort sem er nota ég oft USB hýsingar utan um stærri HDD.

Það sem ég vil alls ekki er Acer og helst ekki Lenovo/IBM eða Apple (eiginlega bara af því að Apple eru of dýrar).

Það sem mér líst best á hingað til er Dell studio XPS 13. Ókosturinn er 1280x800 upplausn en er það ekki bara vegna þess að skjárinn er svo lítill?
Ég hef líka aðeins verið að skoða Sony Z á netinu en ég held þær kosti handlegg :| (sem er kannski þess virði fyrir 13,1" og 1600x900 upplausn)

Er séns að fá betri upplausn en 1280x800 á 13,3" skjá fyrir þennan pening? Er einhver hérna með reynslu af Sony laptops? Einhverjar tölvur sem þið mælið með? Hvað þarf ég að spá í varðandi örgjörva og skjákort?



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf Halli25 » Þri 12. Jan 2010 10:22

Ég legg eindregið á móti því að fá sér Sony á Íslandi, það er ekkert support fyrir þær hérlendis. Lagi ef þú ert í landi sem er með support center en ísland er bara of lítið markaðssvæði að sony nenni að leggja eitthvað uppúr þjónustu hér.

Hefurðu eitthvað skoðað Toshiba eins og t.d. Satellite U500 tölvurnar? http://eu.computers.toshiba-europe.com/ ... llite_u500
Síðast breytt af Halli25 á Þri 12. Jan 2010 10:48, breytt samtals 1 sinni.


Starfsmaður @ IOD


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf AntiTrust » Þri 12. Jan 2010 10:44

Eins mikið og mér finnst Vaio tölvurnar frábærar oftast hreint, þá tek ég undir fyrri póst, ekki kaupa þér tölvu þegar það er ekki í boði neitt support what so ever hérlendis.

Hinsvegar verð ég bara að spyrja, afhverju ekki IBM/Lenevo? Eins og þetta er nú framúrskarandi framleiðandi og hægt að fá fínustu vél fyrir þetta budget.

Annars finnst mér XPS vélarnar mjög solid, virka nokkuð rugged og ágætis build quality í þeim, og þessi upplausn er alls ekkert slæm fyrir 13.3" skjá.




ElbaRado
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Mið 16. Mar 2005 15:28
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf ElbaRado » Þri 12. Jan 2010 11:13

Ég á XPS M1330 og móðurborðið fór þrisvar á tveimur árum. Ef þú gúgglar XPS M1330 screen problem þá sérðu gallan. Ég veit ekki hvort þeir eru búnir að laga þetta í Studio13. Annar galli við þessar tölvur að þegar ert með tölvuna meira en 90°opna þá blæs viftan heitu lofti upp á skjáinn þannig að það er komin eyðing í vinstra hornið hja mér.




ElbaRado
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Mið 16. Mar 2005 15:28
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf ElbaRado » Þri 12. Jan 2010 11:13

Ég á XPS M1330 og móðurborðið fór þrisvar á tveimur árum. Ef þú gúgglar XPS M1330 screen problem þá sérðu gallan. Ég veit ekki hvort þeir eru búnir að laga þetta í Studio13. Annar galli við þessar tölvur að þegar ert með tölvuna meira en 90°opna þá blæs viftan heitu lofti upp á skjáinn þannig að það er komin eyðing í vinstra hornið hja mér.




Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Þri 12. Jan 2010 21:24

Sony er off. Dýrt og ég nenni ekki að standa í þessu ef eitthvað bilar. Toshiba voru nice fyrir nokkrum árum en mér finnst þær eitthvað svo klossaðar í dag. Ég ætla samt að skoða þessar U500, þær looka allavega ágætlega. Takk fyrir ábendinguna.

Ástæðan fyrir því að ég vil helst ekki Lenovo/IBM er að vinur minn átti IBM og hún var algjört rusl. Auk þess hef ég aðeins kynnst þessum tölvum í gegnum vinnuna og ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þessu. Finnst alltaf eins og þær séu að hrynja í sundur. Mér sýnist Lenovo vera of dýrt miðað við specs nema að Nýherji sé að leggja ágætlega mikið á þær.

ElbaRado skrifaði:Annar galli við þessar tölvur að þegar ert með tölvuna meira en 90°opna þá blæs viftan heitu lofti upp á skjáinn þannig að það er komin eyðing í vinstra hornið hja mér.


Ég fór niðrí EJS áðan og ótrúlegt en satt þá er þetta ennþá á studio xps! Fann aðeins um þetta á cnet þannig að hitavesenið er greinilega enn til vandræða:

Dell has placed one of the primary exhaust vents at the back edge of the laptop, which, in our opinion, isn't a good idea. It gets partially obscured when the screen is open at a 90° angle, and is blocked almost completely when the screen is tilted back further. This, unsurprisingly, causes the laptop to get hot.


Mér finnst líklegast að ég taki samt studio xps 13 þrátt fyrir þetta vesen:
CPU: Intel core 2duo P8700 2,53Ghz eða P7450 2,13Ghz (báðir 3MB, 1066MHz)
RAM: 4gb 1067mhz DDR3
Skjákort: 512 MB nVidia GeForce 210M - EJS eru með nVidia GeForce 9400M G
Skjár: 13,3" white LED WXGA TrueLife (1280x800 upplausn) - EJS ekki með LED
svo á ég eftir að meta það hvernig HDD ég hef í henni, líklega 320 eða 500gb 7200rpm.


Er mikill munur á P7450 2,13Ghz og P8700 2,53Ghz? Það er eiginlega það eina sem ég hef áhyggjur af.




ElbaRado
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Mið 16. Mar 2005 15:28
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf ElbaRado » Þri 12. Jan 2010 21:49

Hvað er þessi tölva að kosta í EJS? Myndi athuga hvort það sé ódýrara að kaupa tölvu úti og færa ábyrgðina heim.
En annars á ég XPS M1330 með specca eins og sja ma og viðhenginu, og hun hefur ráðið við mikið af leikjum og er mjög fljót að vinna.
Viðhengi
speccy.png
speccy.png (77.07 KiB) Skoðað 1498 sinnum




Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Þri 12. Jan 2010 22:03

ElbaRado skrifaði:Hvað er þessi tölva að kosta í EJS? Myndi athuga hvort það sé ódýrara að kaupa tölvu úti og færa ábyrgðina heim.


Hún kostar 250k í EJS en það er örugglega hægt að prútta um 5-10% afslátt. Þeir eiga víst bara 2 eftir og ég myndi staðgreiða. Ókosturinn er að þeir eru ekki með LED skjái og skjákortið er ekki eins gott og t.d. í DK. En hvað meinarðu með að færa ábyrgðina heim? Hvernig virkar það? Ábyrgðin er nefninlega eini kosturinn sem ég sé við að versla við EJS.




ElbaRado
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Mið 16. Mar 2005 15:28
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf ElbaRado » Þri 12. Jan 2010 22:07

Ég er með LED skja og hann er mun bjartari og orkusparneyttari en hinn skjárinn.

Ég keypti mina í Ástralíu og fekk hana senda, ég hringdi bara niður í EJS og bað þá um að færa ábyrgðina frá Ástralíu til Íslands(getur tekið 2-3vikur).
Gallinn við það er samt að þá er bara ábyrgð á hlutunum ekki vinnunni. Ég veit ekki hvort það sé hægt að kaupa auka ábyrgð í EJS sem nær þá líka yfir vinnu.

Myndi bara hringja í þá og spurja.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf AntiTrust » Þri 12. Jan 2010 22:27

benson skrifaði:Ástæðan fyrir því að ég vil helst ekki Lenovo/IBM er að vinur minn átti IBM og hún var algjört rusl. Auk þess hef ég aðeins kynnst þessum tölvum í gegnum vinnuna og ég get ekki sagt að ég sé hrifinn af þessu. Finnst alltaf eins og þær séu að hrynja í sundur. Mér sýnist Lenovo vera of dýrt miðað við specs nema að Nýherji sé að leggja ágætlega mikið á þær.


Say WHAT?

Ef IBM/Lenevo eru þekktir fyrir e-ð í tölvuheiminum, þá er það fyrir að byggja by FAR best rugged og solid fartölvur sem völ er á, meira segja ódýru vélarnar gefa lítið eftir hjá Lenevo í dag þegar kemur að build quality.

Aldrei á minni tölvuævi hef ég heyrt manneskju kalla IBM rusl. Mér er auðvitað alveg sama hvaða tölvu þú endar á, enda hef ég engra hagsmuna að gæta, en ég myndi nú lesa eitt, tvö eða tíu review um IBM vélar og sjá hvort álitið þitt breytist ekki. Ég er búinn að vera í tölvum almennt í MÖRG ár og hef talsverða reynslu sem almennt tölvunörd, viðgerðarmaður og þjónustuaðili og búinn að eiga á annan tug af fartölvum í gegnum árin, og ég hef aldrei kynnst eins góðum vélum og IBM, er á minni 3ju núna og er að panta mína fjórðu á næstu vikum, og mun afar, afar seint skipta yfir í e-ð annað.




Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Þri 12. Jan 2010 22:43

ElbaRado skrifaði:Ég er með LED skja og hann er mun bjartari og orkusparneyttari en hinn skjárinn.

Ég keypti mina í Ástralíu og fekk hana senda, ég hringdi bara niður í EJS og bað þá um að færa ábyrgðina frá Ástralíu til Íslands(getur tekið 2-3vikur).
Gallinn við það er samt að þá er bara ábyrgð á hlutunum ekki vinnunni. Ég veit ekki hvort það sé hægt að kaupa auka ábyrgð í EJS sem nær þá líka yfir vinnu.

Myndi bara hringja í þá og spurja.


Já ok, snilld. Ef að móðurborðið klikkar eins og hefur gerst þá er mér slétt sama um tímavinnu :D

Say WHAT?

Ef IBM/Lenevo eru þekktir fyrir e-ð í tölvuheiminum, þá er það fyrir að byggja by FAR best rugged og solid fartölvur sem völ er á, meira segja ódýru vélarnar gefa lítið eftir hjá Lenevo í dag þegar kemur að build quality.

Aldrei á minni tölvuævi hef ég heyrt manneskju kalla IBM rusl. Mér er auðvitað alveg sama hvaða tölvu þú endar á, enda hef ég engra hagsmuna að gæta, en ég myndi nú lesa eitt, tvö eða tíu review um IBM vélar og sjá hvort álitið þitt breytist ekki. Ég er búinn að vera í tölvum almennt í MÖRG ár og hef talsverða reynslu sem almennt tölvunörd, viðgerðarmaður og þjónustuaðili og búinn að eiga á annan tug af fartölvum í gegnum árin, og ég hef aldrei kynnst eins góðum vélum og IBM, er á minni 3ju núna og er að panta mína fjórðu á næstu vikum, og mun afar, afar seint skipta yfir í e-ð annað.


Þá er ég fyrstur ;)
En ég er alls ekki að efast um getu þína eða reynslu af tölvum. En málið er að first impression af IBM er ekkert æðisleg. Ég hef örugglega ekki unnið við eða haft jafn mikla reynslu af þessu eins og þú en ég held ég yrði aldrei sáttur með IBM. En ég ætla að tékka á Nýherja í vikunni og lesa nokkur review áður en ég tek loka ákvörðun sem verður örugglega ekki fyrr en í sumar :)
Btw er einhver annar staður með gott úrval af Lenovo?




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf AntiTrust » Þri 12. Jan 2010 22:52

benson skrifaði:Þá er ég fyrstur ;)
En ég er alls ekki að efast um getu þína eða reynslu af tölvum. En málið er að first impression af IBM er ekkert æðisleg. Ég hef örugglega ekki unnið við eða haft jafn mikla reynslu af þessu eins og þú en ég held ég yrði aldrei sáttur með IBM. En ég ætla að tékka á Nýherja í vikunni og lesa nokkur review áður en ég tek loka ákvörðun sem verður örugglega ekki fyrr en í sumar :)
Btw er einhver annar staður með gott úrval af Lenovo?


Hehe, ég skil þetta reyndar alveg með first impression - Maður þarf oft að vera proper njörður til að meta lúkkið og bygginguna á flestum Thinkpad vélunum. T.d. sú staðreynd að LCD panel coverið á vélinni minni sé gert úr títaníum og magnesíum málmblöndu er nóg til að gefa mér fiðring. Það að það sé hægt að "nudda" rispurnar af coverinu á Thinkpad vélunum finnst mér líka óumdeilanlega kúl faktor. Gleymdi reyndar að minnast á það að það eina sem IBM er frægara fyrir en gæðin sem slík, er að ég hugsa að þau séu óneitanlega með bestu lyklaborð sem þú færð á fartölvu. Svo ég minnist ekki á geðveika recovery/emergency PE OSið sem kemur uppsett á öllun vélunum, eða liquid drain gatið í gegnum lyklaborð og úr tölvunni að neða, eða active protection systemið fyrir harða diskinn..

.. Ég geri mér hinsvegar grein fyrir því að ég er örlítið IBM-hneigður. Heh.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6827
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 953
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf Viktor » Þri 12. Jan 2010 23:01

Mæli með Asus fartölvum. Traustar og bila lítið.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf AntiTrust » Þri 12. Jan 2010 23:04

Sallarólegur skrifaði:Mæli með Asus fartölvum. Traustar og bila lítið.


Nýlegu línurnar já, voru í efsta sæti í reliability charts fyrir 2009.




Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Mið 13. Jan 2010 08:56

AntiTrust skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Mæli með Asus fartölvum. Traustar og bila lítið.


Nýlegu línurnar já, voru í efsta sæti í reliability charts fyrir 2009.


Já ég var búinn að heyra þetta. Ég heyrði líka að HP voru mest unreliable og í öðru sæti... Dell :/



Skjámynd

viddi
Stjórnandi
Póstar: 1311
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 12:50
Reputation: 7
Staðsetning: <?php
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf viddi » Mið 13. Jan 2010 09:26

Ef þú ættlar í Studio xps þá myndi ég mæla með því að þú talir við Lárus í shopusa hann er að flytja inn og selja dell vélar með ábyrgð á mun lægra verði en hjá ejs, síminn hjá honum er: 772-4080



A Magnificent Beast of PC Master Race


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6365
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 168
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf AntiTrust » Mið 13. Jan 2010 09:58

benson skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Mæli með Asus fartölvum. Traustar og bila lítið.


Nýlegu línurnar já, voru í efsta sæti í reliability charts fyrir 2009.


Já ég var búinn að heyra þetta. Ég heyrði líka að HP voru mest unreliable og í öðru sæti... Dell :/


Ekki alveg rétt það, Dell er í 5.ta sæti af 10 stærstu. Tek þó fram að bilanatíðnimunurinn á milli Asus sem er á toppnum og HP sem er á botnum er ekki nema 7% á 2 ára tímabili og 10% á 3 árum. Svo eru hin fyrirtækin þarna á milli, með 1-3% mun á milli framleiðanda upp stigann.




Höfundur
benson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 330
Skráði sig: Þri 30. Des 2008 21:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf benson » Mið 13. Jan 2010 11:01

viddi skrifaði:Ef þú ættlar í Studio xps þá myndi ég mæla með því að þú talir við Lárus í shopusa hann er að flytja inn og selja dell vélar með ábyrgð á mun lægra verði en hjá ejs, síminn hjá honum er: 772-4080


Snilld, ég tékka á þessu!




biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)

Pósturaf biturk » Mið 13. Jan 2010 12:45

ibm all the way, sterkar, flottar, bila lítið, geðveikt lyklaborð, í thinkpadinu mínum var líka forrit sem ég man ekki hvað heitir en það gaf þér möguleika að slökkva og kveikja á infrared og breita öllum helstu stillingum sem annars hefði þurt að restarta og fara í bios til að breita, þægilegar í rifi og hreinsun og umfram allt. LANGT UMFRAM ALLT er þessi littli rauði snípur í miðju lyklaborðinu besta uppfining sem tölvuheimurinn hefur fengið, þetta er eina sem virkar á fartölvu ef þú ert ekki með mús tengda (enda er touchpad einn helsti óvinur manns sem er að reina að gera eitthvað hratt og vel í fartölvu) :lol:


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!