Keypti U700 síma hjá Nova, svona "flip up" síma. Eftir nokkurra mánaðar notkun í venjulegu umhverfi var silfurlitaða húðin á símanum farin að flagna af og síminn brátt orðinn alveg ljósgrár með hliðinum, þar sem átti að vera "chrome" áferð. Svo nokkru síðar hætti ég að heyra í fólki í hátalaranum, heyrðust bara skruðningar.
Fór með símann í viðgerð og þeir löguðu hátalarann á 7-8 dögum og ég var nokkuð sáttur. Sé marga félaga mína með svona síma og tek eftir því að þeirra "chrome" húð er einnig farin að flagna af, og ein vinkona mín fór brjáluð niður í Nova og sagði að þetta væri ógeðslegt og fékk nýjar hliðar á símann frítt.
Félagi minn lendir í sama veseninu með hátalarann, plús annað vandamál að síminn "unlockaðist" ekki þegar hann opnaði hann(flip up). Hann fékk inneignarnótu upp á 24.000 kr (verð símans við kaup).
Núna fyrir helgi bilaði aftur hátalarinn og ég segi stráknum sem vinnur þarna að þetta sé í annað skipti sem síminn bili, og tek fram nokkra hluti sem pirra mig við símann:
- Hann ýtir á takka þegar ég "flippa" honum, svo að lyklaborðið aflæsist þegar ég svara, snertitakkarnir setja svo viðkomandi á HOLD
Vekjaraklukkan hringir í eina mínútu og slekkur svo á sér, sama hvort maður sé vaknaður eða ekki
Chrome hliðarnar flagnaðar af, augljóslega framleiðslugalli
Þegar ég nota handfrjálsan búnað slekkur skjárinn ekki á sér og eyðir þessvegna margfalt meira rafmagni
Ég spurði hann hvort ég gæti ekki fengið nýjan síma útaf öllum þessum göllum, en nei, hann segir mér að síminn verði að fara að minnsta kosti þrisvar sinnum í viðgerð til að fá nýjan síma.
Ég segi honum frá vinkonu minni og félaga mínum, en hann segist ekkert getað sagt til um hvers vegna þessu var skipt út í þeirra tilfelli.
Var þessvegna að velta því fyrir mér hvort að þið könnuðust við einhverjar svona reglur hjá fyrirtækjum, hvort þetta sé almenn regla.
Og er þetta ekki greinilega framleiðslugalli á chrome-endunum á símanum fyrst þetta flagnar af í vasa hjá fólki, veit um 5 manns sem eiga svona síma og allt hefur flagnað af. Ef maður fær vöru með framleiðslugalla, á maður ekki rétt á nýju tæki?
Var bara svona að velta þessu fyrir mér


Eitthvað sem ég fann á netinu:
Let me illustrate the problems that have occurred with this phone since it was purchased at the beginning of my contract.
1) Finish begins to wear off immediately, despite me spending R100 on a special cases to protect the phone.
2) Buttons stopped working
3) Lights stopped working
4) Phone would not switch on
-phone was repaired I bought another more expensive case to protect the phone better for R160 (Repair time-2weeks)
5) Finish wore off again
6) USB functionality ceased
7) Phone stopped charging
-phone was repaired and I was charged +-R300 except for usb functionality. I spent +-R200 on a bluetooth adapter as a work around
8) Finish wore of AGAIN!
7) Phone stopped emitting sound
- Phone sent for repair again (repair time - two weeks and counting)