SGH U700 sími og NOVA

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6827
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 953
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

SGH U700 sími og NOVA

Pósturaf Viktor » Fim 17. Des 2009 01:08

Sælir.
Keypti U700 síma hjá Nova, svona "flip up" síma. Eftir nokkurra mánaðar notkun í venjulegu umhverfi var silfurlitaða húðin á símanum farin að flagna af og síminn brátt orðinn alveg ljósgrár með hliðinum, þar sem átti að vera "chrome" áferð. Svo nokkru síðar hætti ég að heyra í fólki í hátalaranum, heyrðust bara skruðningar.

Fór með símann í viðgerð og þeir löguðu hátalarann á 7-8 dögum og ég var nokkuð sáttur. Sé marga félaga mína með svona síma og tek eftir því að þeirra "chrome" húð er einnig farin að flagna af, og ein vinkona mín fór brjáluð niður í Nova og sagði að þetta væri ógeðslegt og fékk nýjar hliðar á símann frítt.

Félagi minn lendir í sama veseninu með hátalarann, plús annað vandamál að síminn "unlockaðist" ekki þegar hann opnaði hann(flip up). Hann fékk inneignarnótu upp á 24.000 kr (verð símans við kaup).

Núna fyrir helgi bilaði aftur hátalarinn og ég segi stráknum sem vinnur þarna að þetta sé í annað skipti sem síminn bili, og tek fram nokkra hluti sem pirra mig við símann:
    Hann ýtir á takka þegar ég "flippa" honum, svo að lyklaborðið aflæsist þegar ég svara, snertitakkarnir setja svo viðkomandi á HOLD
    Vekjaraklukkan hringir í eina mínútu og slekkur svo á sér, sama hvort maður sé vaknaður eða ekki
    Chrome hliðarnar flagnaðar af, augljóslega framleiðslugalli
    Þegar ég nota handfrjálsan búnað slekkur skjárinn ekki á sér og eyðir þessvegna margfalt meira rafmagni

Ég spurði hann hvort ég gæti ekki fengið nýjan síma útaf öllum þessum göllum, en nei, hann segir mér að síminn verði að fara að minnsta kosti þrisvar sinnum í viðgerð til að fá nýjan síma.
Ég segi honum frá vinkonu minni og félaga mínum, en hann segist ekkert getað sagt til um hvers vegna þessu var skipt út í þeirra tilfelli.

Var þessvegna að velta því fyrir mér hvort að þið könnuðust við einhverjar svona reglur hjá fyrirtækjum, hvort þetta sé almenn regla.
Og er þetta ekki greinilega framleiðslugalli á chrome-endunum á símanum fyrst þetta flagnar af í vasa hjá fólki, veit um 5 manns sem eiga svona síma og allt hefur flagnað af. Ef maður fær vöru með framleiðslugalla, á maður ekki rétt á nýju tæki?

Var bara svona að velta þessu fyrir mér :)

Mynd

Eitthvað sem ég fann á netinu:
Let me illustrate the problems that have occurred with this phone since it was purchased at the beginning of my contract.
1) Finish begins to wear off immediately, despite me spending R100 on a special cases to protect the phone.
2) Buttons stopped working
3) Lights stopped working
4) Phone would not switch on
-phone was repaired I bought another more expensive case to protect the phone better for R160 (Repair time-2weeks)
5) Finish wore off again
6) USB functionality ceased
7) Phone stopped charging
-phone was repaired and I was charged +-R300 except for usb functionality. I spent +-R200 on a bluetooth adapter as a work around
8) Finish wore of AGAIN!
7) Phone stopped emitting sound
- Phone sent for repair again (repair time - two weeks and counting)


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


ElbaRado
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Mið 16. Mar 2005 15:28
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: SGH U700 sími og NOVA

Pósturaf ElbaRado » Fim 17. Des 2009 01:10

Fór með símann minn einu sinni og fékk nýjan.




Bioeight
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: SGH U700 sími og NOVA

Pósturaf Bioeight » Fim 17. Des 2009 12:10

Almennt séð þá eru raftækjaverslanir ekki að ábyrgjast útlitsgalla sem þessa, þá þegar tækið virkar eins og það á að virka, það er samt mjög mismunandi eftir verslunum. Það er hinsvegar ef Samsung(framleiðandinn í þessu tilviki) hefur gefið út að þetta sé viðurkenndur galli og hann taki við þessum símum sem gölluðum eintökum að fyrirtækin ættu að taka við þeim þar sem þá yfirfærist mestur kostnaðurinn við þetta yfir á framleiðandann. Mér fannst það mjög skrýtið að vinkona mín gat farið með símann sinn (akkurrat þessi sami U700 sími) til Nova og fengið nýjan útaf því að hann var allur farinn að flagna. Þetta virðist vera mjög algengt vandamál með þessa síma hérna á Íslandi en ég svo sem hef ekki skoðað hvernig þetta er úti. Ég á þennan sama síma, hann er í fínasta lagi hjá mér, ekkert farið að flagna og engin vandamál með hann(hann er líka keyptur hjá Nova og er að verða ársgamall).


Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: SGH U700 sími og NOVA

Pósturaf Gúrú » Fim 17. Des 2009 20:37

Held að þið ættuð að fá einhverjar vinkonur ykkar til að fara með símana til NOVA, það virðist vera með 100% árangri.


Modus ponens


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: SGH U700 sími og NOVA

Pósturaf Blackened » Fim 17. Des 2009 20:43

Annars er það nú ekki NOVA sem að þjónustar þessa síma.. þetta fer alltsaman í gegnum fyrirtæki sem heitir að mig minnir Hátækni og ég hef aldrei fengið annað en lélega þjónustu hjá ;)

alltaf topp þjónusta NOVA megin.. þeir vilja allt fyrir mig gera.. en Hátækni hafa undantekningalaust í mínu tilfelli verið með allt niðrum sig.. sendi sama símann 4 sinnum í viðgerð á 2 eða 3 mánaða tímabili.. og ég notaði hann samt aldrei

fékk hann bara til baka jafn bilaðann eða öðruvísi bilaðann.. meiraðsegja í síðasta skiptið var ónýtur í honum skjárinn og þeir sendu mér hann þannig!

endaði með því að Nova létu mig bara hafa nýjann síma :)