Nettir mp3 spilarar!

Skjámynd

Höfundur
Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Nettir mp3 spilarar!

Pósturaf Voffinn » Mán 24. Maí 2004 22:51

Sælir,

Ég veit það er annar þráður um mp3 spilara en ætla nú samt að gera nýjan :twisted:

Ég er að hugsa um að fá mér mp3 spilara, er að hugsa um að fá mér bara lítinn, 256mb væri sennilega alveg nóg. Hverjir eru að selja þetta? Ég var að skoða MSI Megastick sem er verið að selja á nokkrum stöðum. Eða á maður ekkert að vera að kaupa þetta hérna á landi? Ég er svona nokkurn veginn alveg ráðalaus nema ég ætla ekki að eyða miklum peningi í þetta og langar ekki í nein hlunk né langar mig í ipod (ætla ekki að borga ~60kr fyrir 20gb mp3 spilara).

Hvernig spilara eigiði? Hvaða spilara langar ykkur í? Hverjir eru að selja þetta hérna á landi? Bestu kaupinn?

Ath, ég er meira að líta á hljóðgæði / batterýsendingu / útlit heldur en stærð á geymsluplássi.


Voffinn has left the building..

Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mán 24. Maí 2004 23:19

Þetta heitir DigitalAudioPlayer ekki MP3 spilari!

Creative eru með bestu hljómgæði, margar mismunandi útfærslur á litlum spilurum og flestir með góða batterý endingu. http://www.nomadworld.com

Þú þarft auðvitað að borga STEF gjöld af þeim sama þótt þú pantir þá sjálfur að utan en ef þú kaupir þér ódýra lófatölvu þá losnarðu auðvitað við þann fjanda.

Zen Xtra er 40 GB á 40þús í BT ef hann er ekki uppseldur, bara svona fyrst þú ert að tala um helmingi lélegari spilara sem er 20 þús. dýrari. Bara svona fyrir hina sem eru að hugsa um að fá sér DAP.



Skjámynd

viddi
Stjórnandi
Póstar: 1311
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 12:50
Reputation: 7
Staðsetning: <?php
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf viddi » Þri 25. Maí 2004 00:03

ég held að þessi sé nokkuð fínn



A Magnificent Beast of PC Master Race

Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Þri 25. Maí 2004 00:09

sorry viddi ég hélt hann hefði sagt flottan en ekki ljótan :)



Skjámynd

Höfundur
Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Þri 25. Maí 2004 17:22

Er alveg hættur við að kaupa MSI Megastickið, mér líst ekkert á það. Er hinsvegar að skoða þennan og þennan núna. Diva Gem (sá seinni) er alveg linux compatible en þar kostar 256mb jafn mikið og 512mb í hinum og það er alveg ótrúlegt hvað það er til mikið af þessu, ég er alveg týndur.


Voffinn has left the building..

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Þri 25. Maí 2004 19:30

Creative Nomad Muvo NX :8)




sksig
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 12:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf sksig » Fim 27. Maí 2004 12:50

Þar sem að þú ert að leita að hljómgæðum og rafhlöðuendingu þá mæli ég eindregið með spilara frá Rio ( http://www.riomp3.is ). En ég mæli með því að þú fáir þér t.d. Rio Nitrus, hann er með 1.5 GB í minni og er mjög "slim" og smár. Þú getur verið með hann í gallabuxnavasa án þess að taka eftir honum. Kostur við harðdisk spilara, eins og Nitrus, er sá að þú færð mikið meira geymslupláss fyrir minni pening. Ég held að ég sé að fara með rétt mál að Rio spilararnir fái betri dóma heldur en t.d. Creative varðandi hljóðgæði. Rafhlöðu ending t.d. Nitrus er 15klst á einni hleðslu, sem tekur um 2-3 klst að hlaða. Ég er ekki svo viss um að þú sérst að greiða stef gjöld af spilurunum hér heima, ef svo er þá er það óveruleg tala. Þú þarft að greiða 7,5% toll og 25% vörugjöld svo náttúrulega 24,5% VSK. Þessi gjöld legjast líka á spilara sem þú pantar að utan. En hérna heima hefur þú tveggja ára ábyrgð, sem er yfirleitt ekki boðið uppá úti. Ég er sammála Vidda að þetta eru nettir spilarar sem standa til boða á riomp3.is t.d. Ég á Nitrus og félagi minn á Karma.. En Karma tekur t.d. Ipod og stóra spilarann frá Creative í nefið, ef það er verið að miða við "sánd", rafhlöðuendingu og einfaldleika ásamt fullt af dóti sem ég nenni ekki að nefna hér. Lestu þig bara vel til áður en þú fjárfestir ;-)



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Fim 27. Maí 2004 12:57

sksig halda mætti að þú værir að vinna hjá þeim...

Allar nákvæmar kannanir sem ég hef séð varðandi hljóðgæði hafa gefið Creative hærri einkunnir en öllum hinum og er það helsti kosturinn við spilara frá þeim svo ekki segja að einhver spilari sé að taka þá í nefið varðandi "sánd" auk þess sem þeir hafa smá EAX, ekki tala heldur um stóra spilaran frá Creative þar sem það eru til margir mismunandi spilarar frá þeim og er mjög mikill munur á Zen NX og Zen Xtra t.d.




sksig
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 12:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf sksig » Fim 27. Maí 2004 19:45

Ég hef reyndar ekki séð neinar tölur um sánd samanburð á þessum spilurum. En öll review sem ég hef lesið gefa Rio Karma topp einkun. Varðandi Creative spilarann... þá sagði ég "þessi stóri" af því að ég var ekki viss hvað hann héti, né að það væru til fleiri en týpa af t.d. 30GB spilara frá Creative. Ég kannaði þetta nánar og það virðist vera Zen Xtra sem er "flottastur" í þessari categoriu frá Creative. Ég rakst á tvær greinar um þá Zen og Karma. Þarna eru myndir til samanburðar og fullt af góðum upplýsingum. Gaurinn segir í greininni um Karma að hann sándi betur en Ipod og einhver spilari frá I-river, en Zen og Karma sándi á "pari", bara gott mál. Ég held að það sé misjafnt hvoran spilarann fólk myndi velja... smekksatriði. En fyrir mína parta þá myndi ég taka Karma. :wink:
Slóðirnar eru:

Zen http://gear.ign.com/articles/442/442693 ... ?fromint=1
Karma http://gear.ign.com/articles/456/456916p1.html



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Fim 27. Maí 2004 20:23

As is often the case with Creative portables, the Xtra sounds excellent. This is probably the best thing about the damn thing. It is extraordinarily loud and clear as could be. Like its predecessor, it boasts a 98dB SNR, which puts it at the top of the jukebox heap. There is no portable on the market that can compete with the Zen family of portables in terms of audio fidelity. All you iPod owners are tricking yourself if you think otherwise


Gætirðu kanski bent mér á hvar er sagt að Karma hljómi á "pari" við Zen?




sksig
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 12:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf sksig » Fim 27. Maí 2004 22:13

Sorrý.. linkurinn á Karma review-ið var vitlaus...

http://gear.ign.com/articles/458/458401p4.html

Þetta er textinn sem ég er að tala um:

"I only listened at 2/3 volume because the headphone amp is extremely powerful. I don't exactly how powerful it is, but it is one of the most powerful I've used. Sound remains clean up to the maximum volume. Sound quality depends more on your bit rates, but with good source material the Karma really sounds excellent. It bests the iRiver and the iPod, but is about on par with the Zen."



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Fös 28. Maí 2004 01:00

sksig skrifaði:Ég hef reyndar ekki séð neinar tölur um sánd samanburð á þessum spilurum. En öll review sem ég hef lesið gefa Rio Karma topp einkun.

Ég tek öllum dómum frá tölvutímaritum um hljóðgræjur með MJÖG miklum fyrirvara enda vita tölvudúddarnir sjaldnast neitt hvað gott sound er. Margir þessir tölvustaðir eru t.d. að gefa einhverjum Creative og Logitech hátölurum frábæra dóma þótt þeir séu alger hörmung í samanburði við "alvöru" hátalara sem, nota bene, eru oft ekkert mikið dýrari en tölvuhátalarar. Sama má segja um hljóðkort og heyrnartól - sumir tölvustaðir hafa t.a.m. verið að gefa þessum Zalman heyrnartólum svaka góða einkunn þótt þau komist ekki með tærnar þar sem Sennheiser, Grado, Beyerdynamic o.fl. hafa hælana. Allavega, pointið er að flestir þessara tölv-review-staða hafa ekki hundsvit á hljóði. Með einni undantekningu þó - http://www.digit-life.com vita um hvað þeir eru að tala.

Ég veit hinsvegar að Stereophile gaf iPod ágætis dóma og það nægir mér. Ágætar upplýsingar um MP3 spilara er örugglega að finna á hydrogenaudio.org, head-fi.org og nokkrum öðrum hljóðgræjustöðum. Svo auðvitað usenet og ecoustics.com.




sksig
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 12:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf sksig » Fös 28. Maí 2004 09:58

Þarna er ég smá pínu sammála.... En mjög mikið af þessu review-um sem ég hef lesið eru bara einhverjir dúdar útí bæ, og sumir af þeim kalla sig "audiophile"... :D



Skjámynd

Höfundur
Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Lau 29. Maí 2004 16:20

Jájá.. rio spilarinn kostar bara 37þús. Ég er alveg búinn að ákveða hvaða spilara ég ætla að taka :8)

http://www.mp3players.co.uk/site/uk/diva_gem.html

Er að hugsa um að láta kaupa hann fyrir mig úti í sumar.


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 31. Maí 2004 17:18

mér fannst langsniðugast að kaupa CD MP3 spilara, þá getur maður spilað venjulega diska líka, og limitið er bara hvað maður á marga CD-RW diska, og alveg OS-independant




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Mán 31. Maí 2004 17:23

Jæja ég er að fara til Florida eftir 2 daga og var að hugsa mér að fá mér mp3 spilara úti, hverju mæliði með sem er ekki of dýrt en samt góðum spilara (helst 256mb minni)




zream
Ofur-Nörd
Póstar: 207
Skráði sig: Fim 01. Apr 2004 15:42
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík, Ísland
Staða: Ótengdur

Pósturaf zream » Mán 31. Maí 2004 17:37

Kaupa spennubreyti



Skjámynd

Höfundur
Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 31. Maí 2004 20:04

MezzUp skrifaði:mér fannst langsniðugast að kaupa CD MP3 spilara, þá getur maður spilað venjulega diska líka, og limitið er bara hvað maður á marga CD-RW diska, og alveg OS-independant


Ég á þannig og það er ekki málið, bæði of stórt og er viðkvæmt fyrir hristingi.


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 31. Maí 2004 21:16

Voffinn skrifaði:Ég á þannig og það er ekki málið, bæði of stórt og er viðkvæmt fyrir hristingi.

Well, I've got big pockets :P

Þekki ekki þessi vandamál, hefur alltaf passað í vasana mína og hef örsjaldan fundið fyrir hiksti vegna hristings :/



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mán 31. Maí 2004 21:49

MezzUp einhverntíman farið út að hlaupa? CD spilarar eyða líka meira rafmagni en flash spilarar



Skjámynd

Höfundur
Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 31. Maí 2004 21:50

Þessi sem ég var að skoða kemur með svona strapi sem fer utanum hálsinn og er með innbyggðum heyrnatólum.


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 31. Maí 2004 23:30

IceCaveman skrifaði:MezzUp einhverntíman farið út að hlaupa? CD spilarar eyða líka meira rafmagni en flash spilarar

jamms, reyndar hef ég farið út að hlaupa, held samt ekki að það verði mikið vandamál með okkur tölvunördana hérna :P Annars hleyp ég svo hratt að það tekur því ekki fyrir mig að setja á mig spilara þegar ég fer út að hlaupa :D
Síðan er ég með hleðslubatterý, þannig að ég mæli ennþá með CD MP3 spilurum :)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 31. Maí 2004 23:32

Voffinn þarf að hlaupa...út í bíl eða niður á strætóstoppistöð.



Skjámynd

ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mán 31. Maí 2004 23:41

maður fer ekki út að hlapa til að hlaupa hratt á milli staða mezzup heldur til að halda sér í formi, þá er ekki málið að hlaupa hratt heldur lengur :lol:



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 31. Maí 2004 23:54

IceCaveman skrifaði:maður fer ekki út að hlapa til að hlaupa hratt á milli staða mezzup heldur til að halda sér í formi, þá er ekki málið að hlaupa hratt heldur lengur :lol:

jamms, ég vonaði bara að enginn tæki eftir þessum smágalla á þaulhugsaða svarinu mínu :D