Ég veit það er annar þráður um mp3 spilara en ætla nú samt að gera nýjan

Ég er að hugsa um að fá mér mp3 spilara, er að hugsa um að fá mér bara lítinn, 256mb væri sennilega alveg nóg. Hverjir eru að selja þetta? Ég var að skoða MSI Megastick sem er verið að selja á nokkrum stöðum. Eða á maður ekkert að vera að kaupa þetta hérna á landi? Ég er svona nokkurn veginn alveg ráðalaus nema ég ætla ekki að eyða miklum peningi í þetta og langar ekki í nein hlunk né langar mig í ipod (ætla ekki að borga ~60kr fyrir 20gb mp3 spilara).
Hvernig spilara eigiði? Hvaða spilara langar ykkur í? Hverjir eru að selja þetta hérna á landi? Bestu kaupinn?
Ath, ég er meira að líta á hljóðgæði / batterýsendingu / útlit heldur en stærð á geymsluplássi.