Það er nú ekki svo langt síðan að ég m.a. auglýsti hvort einhverjum vantaði vinnu í þræði hérna á vaktinni, og reyndar fleiri stöðum. (Þar sem að ráðningarstofurnar voru ekki alveg að fúnkera.)
Það er skemmst frá því að segja að það var ráðinn starfsmaður sem sá póstinn minn hérna á vaktinni. Reyndar ekki virkur notandi, but hey.
Þó ég hafi hugsað mér að vinna áfram hjá Símanum í einhvern tíma, þá er þetta spurningin um að grípa tækifærin þegar þau bjóðast. Og þar af leiðandi sagði ég starfi mínu lausu eftir 5 ára starf.
Þannig að ef einhver hérna kann e-ð á networkin, og vantar vinnu eða langar að breyta til...
http://dev02.simi.is/Brunnar%5Ctesting%5CSiminnStaffApp.nsf/form/umsokn.html?openForm&E454C4ACE77AB514002570C20056D1D2
Þetta er reyndar sami texti og var við fyrri auglýsingu, líklega einhver leti í stjórnendum, but hey.
