Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Allar tengt bílum og hjólum
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8804
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1416
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Mið 18. Feb 2026 20:41

GuðjónR skrifaði:Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir. :face

Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.

Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.


Opin náma... grús og endalaust ryk



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 761
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 53
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf gRIMwORLD » Mið 18. Feb 2026 20:45

Eins og kom fram þá eru þeir ekki beint að ryksuga göturnar heldur nota götusóparnir líka vatn við þrifin. Þeir geta það ekki ef hitastig er við eða undir frostmark eins og hefur verið lengi. En þá spyr maður sig....afhverju er ekki farið að nota vatnslausa götusópa sem hægt er að nota í öllum veðráttum og þykja jafnvel bæði umhverfisvænni, hraðvirkari og áreiðanlegri í lengri tíma litið?


9950X | 96GB | 2TB Gen5 | 3090 | ProArt X870 Creator

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1078
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 398
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Mið 18. Feb 2026 21:38

appel skrifaði:Það er einsog allt þurfi að fara í kalda kol fyrst áður en ráðamönnum dettur í hug að það þurfi að ráðast á vandann.

Að segja fólki bara að halda sig innandyra.... já ok segjum ef ALLIR fylgja því, þá er ekkert atvinnulíf, ekkert hagkerfi, engar skatttekjur. Svo lengi sem yfirvöld ná að spara í þrifnaði þá er það bara í lagi virðist vera. Þetta er svo sturlað hugarfar.

Ef þú ert með borg þá þarf að þrífa göturnar. Þýðir ekkert bara að segja viðkvæmu fólki að vera ekkert úti, eða fólki sem vill nýta góða veðursins í vetur að það geti ekki verið úti því yfirvöld þurfa að spara 100 milljónir í ár í að þrífa þennan skít.

Þetta auðvitað bara eyðileggur lífsgæði fólks sem býr hérna. Er þetta það sem þessir stjórnmálamenn vilja? Eyðileggja lífsgæði fólks því það á erfitt með að sætta sig við einkabílinn þó það sjálft ferðist um á slíkum?

Verslanir þrífa reglulega gólfin sín því viðskiptavinir ganga um á útiskóm. Einkafyrirtækin geta þetta, en hið opinbera er bara á öðru plani með sitt hugarfar.

Þetta er ekkert flókið, ÞRÍFA ÞETTA, gera það reglulega, viðstöðulaust, allt árið, verður miklu betra loft hérna fyrir vikið.


Ég er nokkuð viss um að opinberar byggingar séu alveg líka þrifnar eins og einkareknar bygginar. Hinsvegar get ég bent þér á heilan haug af verslunum og öðrum einkavæddum apparötum þar sem allskonar rusl og drasl er fyrir utan sem er á þeirra ábyrgð, en ekkert gert. Þrátt fyrir hið mikla afl frjálsa markaðs.

Við búum ekki í einræðisríki þar sem einræðisherra ræður ríkjum. Er ekki vegagerðin ábyrg fyrir hraðbrautunum þar sem mesta svifrykið kemur frá? Er það ekki ábyrgðasamt af Reykjavíkuborg að benda íbúum sínum á þá hættu sem þarna er í gangi, og benda fólki að ef það getur, halda sig innandyra?

Eða á þetta bara vera eins og Norður Kórea eða Sovíetríkin, bara þykjast að vandamálið er ekki til staðar. Bannað að nefna það.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5991
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1095
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf appel » Fim 19. Feb 2026 00:09

DRULLIST TIL AÐ ÞRÍFA DRULLUNA!!!
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026 ... tur-467357


*-*


traustitj
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf traustitj » Fim 19. Feb 2026 13:13

GuðjónR skrifaði:Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir. :face

Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.

Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.


Rafmagnsbílar eru ekki mikið þyngri en hinn almenni bíll, kannski ef þú verð saman við Hyundai i10 eða Aygo. Það eru bara flestir á stærri bílum. 1800-2000 kg er ekki teljandi þyngri bíll en almennur fjölskyldu bíll eða strumpa strætó. Magnað hvað sum vitleysa neitar að drepast



Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1078
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 398
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Fim 19. Feb 2026 15:04

traustitj skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Búið að hamast á fólki að fara yfir í rafmangsbíla af því að þeir eru svo umhverfisvænir, þá allt í einu eru þeir það ekki af því að þeir eru svo þungir. :face

Varðandi rykið, þá er oft svartaþoka frá Kollafirði fram hjá Esjumelum á steypta kaflanum, þannig að fólk má troða nagladekkjasamsæriskenningunni þangað sem sólin ekki skín.

Nagladekin eru bara örlítið brot af vandanum, það þarf að sópa göturnar.


Rafmagnsbílar eru ekki mikið þyngri en hinn almenni bíll, kannski ef þú verð saman við Hyundai i10 eða Aygo. Það eru bara flestir á stærri bílum. 1800-2000 kg er ekki teljandi þyngri bíll en almennur fjölskyldu bíll eða strumpa strætó. Magnað hvað sum vitleysa neitar að drepast


Þeir eru auðvitað smá þyngri, eins og t.d. VW UP er allt að 997kg, VW E-up, rafútgáfan er allt um 1250kg. Samkvæmt google AI eru EV 10-30% þyngri en ICE bílar að meðaltali. Sem er auðvitað milljón fallt skárra en allur útblástur og viðhald sem fylgir bensín og dísel bílum.

Frekar klikkað að hugsa að I10, lítill borgarbíll sem er keyrðu 250þús, hefur brennt yfir 20 þúsund lítrar af eldsneyti. Meðalbíl á íslandi eyðir nær tvöfalt meira en það og væri þá nærri því 40 þúsund lítrar af eldsneyti brennt. Tala nú síðan ekki um dísel bílana sem blása út algjöru eitri.

Rafmagsbílar vinna yfir bensín og dísel alla daga, og það verður góður ávinningur þegar síðasti jarðeldsneytisbíllinn verður farinn úr umferð. Ég mun eflauast deyja úr kjánahrolli ef ég þarf enn eina ferðinna en hlusta á gamlingja væla um hvað beinskiptir bílar eru einu "alvöru" bílarnir.

En auðvitað eigum við að varast stóra og þunga bíla, og það er t.d. ekkert umhverfisvænt við nýja Hummer jeppan sem er kominn á göturnar hérna sem er yfir fjögur tonn. En fyrir hvern þannig eru samt trilljón stórir land cruiserar og pickupar sem eyða 20-30 lítrum.
Síðast breytt af Henjo á Fim 19. Feb 2026 15:04, breytt samtals 1 sinni.




EinnNetturGaur
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Mán 21. Maí 2018 12:41
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf EinnNetturGaur » Fim 19. Feb 2026 17:57

mér finnst mjög fínt að vera í hfj. þar sem helstu göturnar eru þrifnar þrisvar á ári jafnvel meir um næturnar en það er eitthvað við það að heyra í þeim á næturnar sem fær mann til að líða nokkuð vel.




agnarkb
FanBoy
Póstar: 745
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 137
Staða: Tengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf agnarkb » Fim 19. Feb 2026 20:06

Í mínum ungdóm voru allir bílar á nagladekkjum og sumir á keðjum, loftgæði voru almennt fín enda man ég eftir götusópum koma götuna hjá mér nokkrum sinnum í mánuði, nema þá kannski helst um allra köldustu mánuðina. Held því að nagladekk séu ekkert stærsti þátturinn í þessu, mig grunar að þetta sé þessi gífurlega aukning á þungaflutning innan borgarinnar sem byrjaði að aukast mikið eftir að strandsiglingar snarminnkuðu og svo spila inn í líka þessar endalausu byggingaframkvæmdir.

Í næstu götu við mig var gróðursæll blettur beint inn í miðju rótgrónuhverfi þar sem nú er verið að reisa mörg hundruð íbúðir, eiginlega bara nýtt hverfi inn í öðru hverfi. Þessu fylgja stórar vélar, sprengingar og allskonar jarðfvegsvinna. Það er búið að vera núna í næstum 4 ár moldarflag og sandhrúga í kringum allt vinnusvæðið sem þyrlast upp í hvert sinn sem keyrt er þarna framhjá og þetta er eins í öllum hverfum á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta er ósköp einfalt, taka til eftir sig og þrífa borgarlandið og loftgæðin batna. Ef borgin gæti hætt þessu corporate blæti sínu og sleppa því að ráða einhverja dýra millistjórnendur og sérfræðingu úr einkageiranum og fengi til sín vinnandi fólk til að sópa göturnar þá myndi þetta vandamál hverfa mjög fljótt.


Leikjavél | X870E | 9800x3D | RTX 5080 | 32GB 6000 | 1000W | Fractal Design North
Server | B760M DS3H | i7 12700 | 32GB DDR4 | 14 TB | Unraid Plus

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17234
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2375
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fim 19. Feb 2026 20:35

Ekki í lagi með þetta lið.
Viðhengi
IMG_0464.jpeg
IMG_0464.jpeg (241.43 KiB) Skoðað 58 sinnum