Tölvuþjónusta

Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Tölvuþjónusta

Pósturaf Pandemic » Mið 18. Jún 2025 19:27

Ég leita að þjónustuaðila sem sér um heildarrekstur tölvukerfa fyrir millistór fyrirtæki (50+ starfsmenn). Þjónustan ætti að ná yfir netkerfi, Microsoft-umhverfi, þjónustu við endanotendur og mögulega kaup og uppsetningu á endabúnaði.

Hvað eru menn að mæla með? Margir af stærri aðilunum virðast fyrst og fremst senda reikninga – en svara varla símanum.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4350
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 407
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf chaplin » Mið 18. Jún 2025 20:54

Techsupport.is?



Skjámynd

lal
Nörd
Póstar: 111
Skráði sig: Fös 24. Okt 2008 17:53
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf lal » Mið 18. Jún 2025 21:05

Ég starfa hjá Sensa og hef því góða innsýn í þjónustuna. Að mínu mati uppfyllum við allar ofangreindar kröfur og leggjum ríka áherslu á persónulega þjónustu – ekki einungis reikningasendingar :)

Ef þú vilt ræða þetta nánar, geturðu sent mér línu á sala@sensa.is eða hringt í 4251672.

Kv. Jóhannes



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf rapport » Mið 18. Jún 2025 21:39

Hljómar eins og stafrænt faðmlag OK.
Þekki þau bara af góðu.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6554
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 529
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf worghal » Fim 19. Jún 2025 09:15

Við hjá Origo getum þetta allt :D
erum að sinna litlum sem stórum fyrirtækjum og viðskipta vinir okkar eru oftast á mjög góðum kjörum þegar kemur að því að versla og fá uppsettann búnað :D


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf rapport » Fim 19. Jún 2025 13:32

Þetta er í raun geggjuð spurning að fá hingað inn.

Ég hef verið í forsvari fyrir notendaþjónustu og að einhverju leiti útstöðvarekstur hjá tveimur af stærstu tölvuumhverfum landsins, LSH og RVK, en hef líka unnið í tölvuumhverfi Baugs á sínum tíma og svo Húsó sem hafði verið úthýst með slæmum árangri og skipt var um þjónustuaðila.

Þá er maður alltaf til skrafs og ráðagerða um hvað er gott að gera og hvað beri að forðast.

Það sem ég mundi segja að væri algjört NO NO (af eigin reynslu og reynslu annarra):

1) Ekki leyfa hvaða eftirlits eða vöktunarhugbúnað sem er, og sérstaklega ekki á útstöðvum. Hef heyrt af megnri óánægju með að svona clientar séu að throttla nýjar tölvur. Nota BitLocker og ég mundi fá nokkra tíma ráðgjöf frá Crayon um það sem þeir kalla "Zero Touch IT" sem er í raun hámarks hagnýting á microsoft lausnum.

2) Gera SLA sem byggir á "priority matrix" og "RACI" en tryggja að fyrir öll kerfi í rekstri sé búið að skilgreina þjónustustig/viðbragð/rekstrarviðmið.

3) Hugsa CMDB = gera þjónustuaðila ábyrgan á að viðhalda CMDB sem þú hefur aðgang að og í honum á að vera; öll tæki, öll hugbúnaðarleyfi og áskriftir, allar skýjaþjónustur, allar vefþjónustur, allir notendur, öll auðkenni. Þetta er þá "scope" samningsins = þetta er það sem þjónustuaðilinn ber ábyrgð á að virki og sé öruggt.

4) Útbúa 1-3 "enterprise architecture" viðmið (principle) sem eru reglur um hvernig tölvuumhverfið skuli þróast og rekið. T.d. ef ein reglan er "við tryggjum hámarks öryggi" þá þýðir það að patchar og uppfærslur eru forgangsmál og munu þurfa peninga og auðlindir, trufla rekstruinn o.þ.h.
Ef að principle er "við viljum einfalt agile tölvuumhverfi" þá þarf að passa að vera ekki að fjölga kerfum, hugbúnaði o.þ.h. ef það eru til leiðir til að nota núverandi kerfi, tæki og tól til að leysa sama vandamál eða veita sömu þjónustu.



Skjámynd

Höfundur
Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvuþjónusta

Pósturaf Pandemic » Fim 19. Jún 2025 13:50

Flott útlistun hjá þér, Rapport. Mjög gott að fá ráð og ábendingar um hvernig eigi að semja um svona hluti – hvað þarf að skilgreina og hvar ábyrgðin liggur. Held að það sé einmitt vandamálið hjá mörgum óánægðum fyrirtækjum í útvistun á tölvumálum að engar skilgreiningar liggja að baki neinu.