Hvaða reglur og viðmið ættu að gilda?
Öll erum við sammála um að fólk sem fremur alvarlega glæpi á ekki að fá ríkisborgararétt og missir réttinn til að koma aftur til Ísland ef það ferðast eitthvað annað.
Hér er svo vinkill sem ég hef aldrei séð áður. Ég er s.s. orðinn of gamall til að geta fengið vinnu í Hong Kong sem útlendingur.
Age limit for non-local skilled workers seeking jobs in Hong Kong raised to 40
Innflytjendalöggjöfin
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 911
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 110
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
Það á að loka landamærunum sem mest. Það gengur ekki að hafa þetta svona stjórnlaust að innflytjendur séu komnir í næstum eða yfir 20% af þjóðinni í ár eða úr 7% árið 2012. Enda erum við rétt byrjuð að súpa seyðið af þessu stjórnleysi á landamærunum.
Fólk sem ætlar að koma hingað til að vinna á að læra íslensku, það á að vera skilyrði fyrir dvalarleyfi til lengri tíma en eins árs.
Ef þú kannt ekki íslensku þá áttu ekki að geta fengið íslenskan ríkisborgararétt.

Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
falcon1 skrifaði:Það á að loka landamærunum sem mest. Það gengur ekki að hafa þetta svona stjórnlaust að innflytjendur séu komnir í næstum eða yfir 20% af þjóðinni í ár eða úr 7% árið 2012. Enda erum við rétt byrjuð að súpa seyðið af þessu stjórnleysi á landamærunum.
Fólk sem ætlar að koma hingað til að vinna á að læra íslensku, það á að vera skilyrði fyrir dvalarleyfi til lengri tíma en eins árs.
Ef þú kannt ekki íslensku þá áttu ekki að geta fengið íslenskan ríkisborgararétt.
Enginn vinnustaður sem ég hef unnið á undanfarin 20 ár hefði fúnkerað almennilega án innflytjenda.
Ísland væri skugginn af sjálfu sér ef það væri ekki fyrir farandverkafólk og innflytjendur.
Í Reykjanesbæ er um 1/3 íbúa af erlendum uppruna og svo líklega þúsundir faranfverkafólks sem eru á vegum erlendra fyrirtækja í flugstöðinni, ferðaþjónustu, byggingageiranum ofl.
Hvernig er ekki hægt að sjá hvað við treystum mikið á þetta frábæra fólk?
Auðvitað eru svo skemmd epli en rétta leiðin til að fækka skemmdum eplum er ekki að "hætta að kaupa epli" heldur passa betur upp á eplin sem eru keypt, geyma þau við réttar aðstæður og meðhöndla þau varlega.
Sínum fólki virðingu, þá sýnir það okkur virðingu.
Maður spyr sig hvaðan þessi slæmu viðhorf gegn innflytjendum koma og hvernig fólk getur viljandi litið svona algjörlega framhjá ómissandi framlagi þeirra til samfélagsins.
Re: Innflytjendalöggjöfin
rapport skrifaði:falcon1 skrifaði:Það á að loka landamærunum sem mest. Það gengur ekki að hafa þetta svona stjórnlaust að innflytjendur séu komnir í næstum eða yfir 20% af þjóðinni í ár eða úr 7% árið 2012. Enda erum við rétt byrjuð að súpa seyðið af þessu stjórnleysi á landamærunum.
Fólk sem ætlar að koma hingað til að vinna á að læra íslensku, það á að vera skilyrði fyrir dvalarleyfi til lengri tíma en eins árs.
Ef þú kannt ekki íslensku þá áttu ekki að geta fengið íslenskan ríkisborgararétt.
Enginn vinnustaður sem ég hef unnið á undanfarin 20 ár hefði fúnkerað almennilega án innflytjenda.
Ísland væri skugginn af sjálfu sér ef það væri ekki fyrir farandverkafólk og innflytjendur.
Í Reykjanesbæ er um 1/3 íbúa af erlendum uppruna og svo líklega þúsundir faranfverkafólks sem eru á vegum erlendra fyrirtækja í flugstöðinni, ferðaþjónustu, byggingageiranum ofl.
Hvernig er ekki hægt að sjá hvað við treystum mikið á þetta frábæra fólk?
Auðvitað eru svo skemmd epli en rétta leiðin til að fækka skemmdum eplum er ekki að "hætta að kaupa epli" heldur passa betur upp á eplin sem eru keypt, geyma þau við réttar aðstæður og meðhöndla þau varlega.
Sínum fólki virðingu, þá sýnir það okkur virðingu.
Maður spyr sig hvaðan þessi slæmu viðhorf gegn innflytjendum koma og hvernig fólk getur viljandi litið svona algjörlega framhjá ómissandi framlagi þeirra til samfélagsins.
Það er 3,3% atvinnuleysi í dag, eigum við ekki bara að setja það í núll áður en við byrjum að flytja inn fólk í það miklum stíl að það verður önnur þjóð hérna eftir 50 ár?
Það er enginn ómissandi. Ef hér hefði enginn útlendingur komið þá værum við bara samt í fínum málum.
Þessi ofurréttlæting fyrir innfluttu vinnuafli er bara bull. Þjóðir með ekkert innflutt vinnuafl standa sig bara fínt. Ekkert samhengi þarna á milli.
Ég vil frekar að Ísland sé land íslendinga, heldur en land ókunnuga.
*-*
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
appel skrifaði:Það er 3,3% atvinnuleysi í dag, eigum við ekki bara að setja það í núll áður en við byrjum að flytja inn fólk í það miklum stíl að það verður önnur þjóð hérna eftir 50 ár?
Það er enginn ómissandi. Ef hér hefði enginn útlendingur komið þá værum við bara samt í fínum málum.
Þessi ofurréttlæting fyrir innfluttu vinnuafli er bara bull. Þjóðir með ekkert innflutt vinnuafl standa sig bara fínt. Ekkert samhengi þarna á milli.
Ég vil frekar að Ísland sé land íslendinga, heldur en land ókunnuga.
Það verður alltaf önnur þjóð hérna eftir 50 ár, það var önnur þjóð herna 1975 og allt önnur 1925 og hvað þá 1875.
Við værum ekki í góðum málum, við værum líklega útdauð og að farast úr genagöllum vegna skyldleikaræktunar.
Skil ekki af hverju það skiptir máli hvar fólk fæðist ef það bara hugsar vel um samfélagið sem það býr í hverju sinni.
Hér er haugur af tækifærum fyrir duglegt fólk sbr. þetta litla atvinnuleysi.
Lönd sem auka ekki sína framleiðslu með fólki eða tækni gengið veð sbr. Japan en þá er vandanum í raun bara seinkað.
Re: Innflytjendalöggjöfin
Japan er ekki að með svona innflæði útlendinga, og það er enginn að segja mér að það sé slæmt ástand í Japan eða vont að búa þar.
Síðast breytt af appel á Mán 09. Jún 2025 19:45, breytt samtals 1 sinni.
*-*
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
appel skrifaði:Japan er ekki að með svona innflæði útlendinga, og það er enginn að segja mér að það sé slæmt ástand í Japan eða vont að búa þar.
Um 3% íbúa eru innflytjendur í Japan, um 18% hér á Íslandi.
En íbúum Japan fer fækkandi og fjöldi innflytjenda jókst um 10% undanförnu ári.
Ástandið í helstu borgum Japan er ekki slæmt en framtíð Japan er ekkert sérstaklega björt NEMA þeri fari að flytja inn fleira fólk.
Re: Innflytjendalöggjöfin
rapport skrifaði:en framtíð Japan er ekkert sérstaklega björt NEMA þeri fari að flytja inn fleira fólk.
Sko, þetta er ríkjandi hugsun, þar sem fólki fari fækkandi samhliða öldrun þjóðar þá þýðir það að ástandið sé slæmt eða verði slæmt.
Ég er bara ekkert sannfærður um það. Hið gagnkvæma ætti einnig að vera satt þá, að ung þjóð sem fer fjölgandi þá sé bjart framundan hjá henni. Það eru til mörg dæmi um þjóðir þar sem fólksfjölgun er mikil og meðalaldur lágur, en ástand og horfur eru mjög slæmar, einkum í vanþróuðum löndum.
Ef þú skoðar lista yfir lönd með mestu fólksfjölgunina þá er ekkert samhengi milli ungrar aldur þjóðarinnar og góðrar efnahagslegrar stöðu þjóðarinnar.
Svo skipti máli hvaða fólk kemur hingað. Ástralir fluttu inn mikið vinnuafl hér áður fyrr, en þeir vildu bara menntað fólk til að fara í sérfræðistörf. Singapore gerði það sama, vildi aðeins menntað fólk. Ég tel það skárri nálgun.
Satt að segja vitum við ekkert hvað gerist þegar þjóðin verður eldri og okkur fækkar. Við vorum nú bara um 25 þús manns fyrir 500 árum eða svo, þannig að þó okkur fækki eitthvað þá ættum við að ná einhverju jafnvægi. Þessi fólksfjöldasprengja sem varð eftir seinni heimsstyrjöld er afbrigðileg, það er óraunhæft að halda að hér verði 5% fólksfjölgun á ári út í hið endalausa.
Japan fer úr 128 milljónum í 80 milljónir í lok aldarinnar. Það er ekki svo slæmt miðað við að fólksfjöldi í Japan var svipaður í seinni heimsstyrjöldinni.
Þetta mun ná einhverju jafnvægi, það er það sem ég spái.
Japan og japanir verða enn til árið 2100, en verður eitthvað til sem heitir "íslendingur"?
*-*
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 911
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 110
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
appel skrifaði:Japan og japanir verða enn til árið 2100, en verður eitthvað til sem heitir "íslendingur"?
Ekki ef við höldum áfram á sömu braut og síðustu ár.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Innflytjendalöggjöfin
falcon1 skrifaði:appel skrifaði:Japan og japanir verða enn til árið 2100, en verður eitthvað til sem heitir "íslendingur"?
Ekki ef við höldum áfram á sömu braut og síðustu ár.
Er fólk sem fæðist og elst upp á Íslandi ekki allt Íslendingar?
Eða fólk sem flytur hingað og fær ríkisborgararétt?
Held að Íslendingum muni fjölga hlutfallslega mun hraðar en Japönum.
Japan var með svolítið forskot á ísland, þegar byggð á Íslandi hófst þá var búið að vera byggð í Japan í a.m.k. 15.000 ár.
Haldið þið að það hafi bara flutt ein fjölskylda til Japan og svo hafi bara alltí einu orðið til þjóð?
Þetta voru þúsundir ef ekki milljónir fólks sem var að leita að betra lífi sem flutti þangað sem "innflytjendur".