https://www.visir.is/g/20252734539d/fae ... a-ara-skja
Þetta er augljóst ábyrgðarmál EN neytandinn sendi ekki mynd sem sýndi gallann.
Svo er fréttin í raun 95% um forsendur málsins og rétt í lokin minnst á að ákvörðunin sé vegna þess að neytandinn sendi ekki mynd af gallanum.
Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
Síðast breytt af rapport á Fim 05. Jún 2025 10:39, breytt samtals 1 sinni.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 17028
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2297
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
Sammála, algjört lágmark að sýna fram á gallann.rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20252734539d/faer-ekki-nyjan-skja-vegna-dauds-depils-i-tveggja-ara-skja
Þetta er augljóst ábyrgðarmál EN neytandinn sendi ekki mynd sem sýndi gallann.
Svo er fréttin í raun 95% um forsendur málsins og rétt í lokin minnst á að ákvörðunin sé vegna þess að neytandinn sendi ekki mynd af gallanum.
Ég hjó líka eftir tvennu sem mér finnst athygisvert.
Í þessu tilfelli sé depillinn á skjánum svartur punktur og því ekki jafn hvimleiður galli og ef um væri að ræða ljósan punkt. Seljandinn sagði engan skjáframleiðanda taka ábyrgð á einum svörtum undirdepli á skjá og því væri ekki forsvaranlegt að ætlast til þess að söluaðili beri ábyrgð á virkni allra depla á einum tölvuskjá.
Kærunefndin byggði ákvörðun sína á lögum um neytendakaup en ekki ábyrgðarskilmála framleiðanda skjásins þar sem óheimilt er að bera fyrir sig kjör sem eru neytanda óhagstæðari en leiðir af ákvæðum laganna.
Þetta sýnir okkur að galli er galli, punktur! Skiptir engu máli hvort hann er hvimleiður eða ekki og hvort framleiðandinn sé sömu skoðunar eða ekki. Hér er farið að lögum, ekki vinnureglum eða skoðunum framleiðandans, en að því sögðu þá er lágmarkskrafa að neytendur sanni mál sitt.
Ég er 100% sammála þessum úrskurði.
Re: Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
Ef þú lest skilmála flestra framleiðanda þá þurfa að vera fleiri en 12 dauðir pixlar í 4K skjá svo hægt sé að kalla eftir ábyrgð.
En þú auðvitað getur skilað strax ef þú sérð dauðan pixel fyrstu 30 dagana.
En þú auðvitað getur skilað strax ef þú sérð dauðan pixel fyrstu 30 dagana.
Síðast breytt af olihar á Fim 05. Jún 2025 11:38, breytt samtals 1 sinni.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 17028
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2297
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...

olihar skrifaði:Ef þú lest skilmála flestra framleiðanda þá þurfa að vera fleiri en 12 dauðir pixlar í 4K skjá svo hægt sé að kalla eftir ábyrgð.
En þú auðvitað getur skilað strax ef þú sérð dauðan pixel fyrstu 30 dagana.
Þannig að 11 dauðir pixlar í hrúgu í beinni sjónlínu telst ekki galli að mati framleiðenda? Ekki frekar en dökkir „dauðir“ pixlar? Ég er ekki viss um að neytendastofa sé því sammála. Neytendalög og skilgreining neytendastofu trompar alltaf vinnureglur framleiðanda eins og sést í þessum úrskurði.
Re: Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
olihar skrifaði:Ef þú lest skilmála flestra framleiðanda þá þurfa að vera fleiri en 12 dauðir pixlar í 4K skjá svo hægt sé að kalla eftir ábyrgð.
En þú auðvitað getur skilað strax ef þú sérð dauðan pixel fyrstu 30 dagana.
Framleiðendur geta ekki yfirskrifað lög. Ég fékk iPhone skipt út hjá Epli, mér var sagt að það væri 3 mánaða ábyrgð á nýja símanum – hvort það sé rétt eða ekki að þá er tveggja ára kvörtunarfrestur þegar vöru er skipt út. Ef síminn hættir að virka degi fyrir þennan tveggja ára kvörtunarfrest að þá er ég að fara fá nýjan síma (eða láta laga hann), alveg sama hvað Epli segir.
-
- has spoken...
- Póstar: 186
- Skráði sig: Fös 24. Apr 2020 16:00
- Reputation: 49
- Staða: Ótengdur
Re: Neytendur sem fokka upp fyrir öðrum...
Ég lenti í því fyrir mörgum árum að fá ítrekað skjái með dauðum pixlum frá Tölvutek. S.s. alltaf sami skjárinn og nýtt eintak. Sennilega gerðist þetta allt á örfáum dögum. Sumir eru næmir fyrir þessu og aðrir ekki. Ég þurfti tvisvar að fara inn á verkstæði hjá Tölvutek og benda tæknimönnunum á pixlana. Ég beið ekki í tvö ár, that's your problem right there.
En já, varan er gölluð ef hún virkar ekki skv. lýsingu, óháð þeim amerísku skilmálum sem menn kunna að benda á.
En já, varan er gölluð ef hún virkar ekki skv. lýsingu, óháð þeim amerísku skilmálum sem menn kunna að benda á.