Vextir - Snjóhengjan fellur!

Allt utan efnis
Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1191
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 170
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf g0tlife » Lau 24. Maí 2025 22:04

Lexxinn skrifaði:
nidur skrifaði:Nýbyggingar eru dýrar í byggingu, verðið er ekkert á leiðinni niður.

Aðföng og mannafli eru alltaf að hækka í verði, hvað ætli standi mikið eftir 10-15% fyrir byggingaraðilann.


Það er nú alþekkt að sumir verktakar vilja frekar liggja á hátt verðsettum íbúðum í nýbyggingum sem seljast ekki frekar en að lækka þær um 2-3milljónir og láta reyna á sölu.



Þekki mann sem var boðið að vera partur af uppbyggingu (borga sig inn) í nýju blokkunum í Vogabyggð í Rvk. Hann borgaði 70 milljónir og labbaði út með 200 milljónir þegar búið var að byggja og selja. Sagði að þetta var besta fjárfesting sem hann hefur gert.


Ryzen 7 9800X3D// Geforce RTX 5080 // 2x 2TB M.2 // Be Quiet Dark Power Pro 13 1600W // G.Skill 96GB Ripjaws M5 RGB Black 6400 // ASRock X870E Taichi Lite ATX AM5 // Samsung Odyssey Neo G8 32'' 4K 240Hz

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rostungurinn77 » Sun 25. Maí 2025 00:16

Lexxinn skrifaði:
Það er nú alþekkt að sumir verktakar vilja frekar liggja á hátt verðsettum íbúðum í nýbyggingum sem seljast ekki frekar en að lækka þær um 2-3milljónir og láta reyna á sölu.

Ef ég man rétt minnir mig einnig að enginn iðnaður á Íslandi sé jafn arðbær og byggingariðnaðurinn, er með 33% aftan í hausnum á mér af eitthverri ástæðu.


Byggingarbransinn er nú ekkert einn um þetta. Hefur líklegast eitthvað með bankana og veðsetningu að gera.

Einhverra hluta vegna virðast menn halda að það sé betra að sitja með eignir á lager á fullu verði uppi í hillu en að selja þær á afslætti til að losna við þær.

Bankinn á veð í lagernum og sófasettið sem skemmdist í flutningunum er 500 þúsund króna virði ónýtt uppi í hillu en kannski bara 250k virði ef það er selt með afslætti.

Arðsemi byggingariðnaðarins er hæst já, var 21% á tímabilinu 2019-23.

g0tlife skrifaði:Þekki mann sem var boðið að vera partur af uppbyggingu (borga sig inn) í nýju blokkunum í Vogabyggð í Rvk. Hann borgaði 70 milljónir og labbaði út með 200 milljónir þegar búið var að byggja og selja. Sagði að þetta var besta fjárfesting sem hann hefur gert.


Fékk hann 200 milljónir ári eða tveimur síðar eða mögulega áratug síðar?



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Hrotti » Sun 25. Maí 2025 21:59

g0tlife skrifaði:
Lexxinn skrifaði:
nidur skrifaði:Nýbyggingar eru dýrar í byggingu, verðið er ekkert á leiðinni niður.

Aðföng og mannafli eru alltaf að hækka í verði, hvað ætli standi mikið eftir 10-15% fyrir byggingaraðilann.


Það er nú alþekkt að sumir verktakar vilja frekar liggja á hátt verðsettum íbúðum í nýbyggingum sem seljast ekki frekar en að lækka þær um 2-3milljónir og láta reyna á sölu.



Þekki mann sem var boðið að vera partur af uppbyggingu (borga sig inn) í nýju blokkunum í Vogabyggð í Rvk. Hann borgaði 70 milljónir og labbaði út með 200 milljónir þegar búið var að byggja og selja. Sagði að þetta var besta fjárfesting sem hann hefur gert.


Það eru einhverjar mjög einkennilegar aðstæður í gangi ef að fjárfestir fær 200% ávöxtun á einu verkefni, það er amk langt frá því sem gengur og gerist í þessum bransa.


Verðlöggur alltaf velkomnar.