Óska eftir 5000/3000 series Ryzen 9 eða 7

Hér getur þú óskað eftir tölvum og tölvutengdum búnaði.

Höfundur
JóhannBr
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Fös 13. Des 2019 09:07
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Óska eftir 5000/3000 series Ryzen 9 eða 7

Pósturaf JóhannBr » Fös 23. Maí 2025 15:15

Son minn vantar örgjörva fyrir X470 AORUS ULTRA GAMING (rev. 1.0) móðurborð.
Hann er með Ryzen 5 3600 en langar að uppfæra.

Best væri: Ryzen 9 5000 series eða 3000 series
eða: Ryxen 7 5000 series

Sendið endilega skilaboð ef þið eigið eitthvað sniðugt fyrir hann.




Gemini
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 40
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Óska eftir 5000/3000 series Ryzen 9 eða 7

Pósturaf Gemini » Fös 23. Maí 2025 15:35

Ef hann er aðallega að pæla í leikjum þá mæli ég sterklega með að splæsa í X3D örgjörva, þeir eru töluvert sprækari í leikjunum og takmarka að einhverju leiti hvað DDR4 minnið á AM4 er hægt. T.d 5700X3D https://kd.is/category/9/products/3372.

Muna að uppfæra BIOS áður en þú setur nýjan örgjörva í móðurborðið. Mæli með að setja alltaf nýjasta en þarft að lágmarki það sem kemur fram þarna https://www.gigabyte.com/Motherboard/X4 ... upport-cpu




Höfundur
JóhannBr
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Fös 13. Des 2019 09:07
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óska eftir 5000/3000 series Ryzen 9 eða 7

Pósturaf JóhannBr » Fös 23. Maí 2025 20:10

Takk kærlega fyrir ábendinguna. Þetta er akkúrat hugsað til að hann nái fleiri römmum á sekúndu.




Gemini
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 40
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Óska eftir 5000/3000 series Ryzen 9 eða 7

Pósturaf Gemini » Fös 23. Maí 2025 21:31

JóhannBr skrifaði:Takk kærlega fyrir ábendinguna. Þetta er akkúrat hugsað til að hann nái fleiri römmum á sekúndu.


Örgjörvinn getur bætt við römmum en oftast er það frekar skjákortið sem bætir þá. Örgjörvinn er með meira álag á sér í svona leikjum með stóra heima eða marga npc's t.d. Hins vegar eru leikir reglulega að kalla í örgjörvann ef hann vinnur ekki nægilega hratt í takti við skjákortið og ferðu þá fyrst að finna fyrir svona míkróhiksti í leikjum og þegar þetta er orðið verulega ábótavant færðu alveg reglulegt mikið hrap Í FPS. Fólk notar oft t.d. að fylgjast með 1% lows í FPS t.d. til að sjá þessa hluti líka. Það er eðlilegt að leikur sé lægri þar en venjulega FPSinu en ef það er orðið mjög mikill munur eða miklar sveiflur þar er örgjörvinn líklega sökudólgurinn (getur verið minnið líka en X3D bjargar því oftast).

Þannig ég mæli með smá væntingastjórnun á að sjá mjög mikið stökk í FPS tölunni sjálfri. En eins og ég sagði þá hefur þetta samt töluverð áhrif á spilaupplifun ef örgjörvi er ekki að halda í við skjákortið.