Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild

Póstkassi
has spoken...
Póstar: 197
Skráði sig: Mið 03. Okt 2012 00:13
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Pósturaf Póstkassi » Lau 15. Mar 2025 10:59

Er ekki málið að setja vaktina almennilega inná github og þá er hægt að vinna þetta saman?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Pósturaf GuðjónR » Sun 16. Mar 2025 11:09

Póstkassi skrifaði:Er ekki málið að setja vaktina almennilega inná github og þá er hægt að vinna þetta saman?

Það er reyndar frábær hugmynd!




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 118
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Pósturaf dadik » Mán 17. Mar 2025 12:04

GuðjónR skrifaði:
Póstkassi skrifaði:Er ekki málið að setja vaktina almennilega inná github og þá er hægt að vinna þetta saman?

Það er reyndar frábær hugmynd!


Hvað er vandamálið við að uppfæra í nýjustu útgáfu af phpBB? Ertu með einhver sérskrif?


ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Pósturaf GuðjónR » Mán 17. Mar 2025 13:41

dadik skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Póstkassi skrifaði:Er ekki málið að setja vaktina almennilega inná github og þá er hægt að vinna þetta saman?

Það er reyndar frábær hugmynd!


Hvað er vandamálið við að uppfæra í nýjustu útgáfu af phpBB? Ertu með einhver sérskrif?

Já og nei... en nei, nei, ekkert vandamál þannig séð. Málið er að ýmsir sérsniðnir hlutir hafa byggst upp í kerfinu okkar í gegnum tíðina, og þeir þurfa aðlögun við uppfærslu.

Til dæmis:

  • Litaþema: Við byggjum á prosilver, sem er blátt og hvítt – ekki okkar litir. Það þarf að uppfæra þemað í samræmi við okkar útlit.
  • Sérsniðinn haus (custom header): Við notum sérsniðinn haus fyrir borðana, og það þarf að laga hann að nýja kerfinu með uppfærðu skjali. Tilraunasíðan er með þetta, en það virkar ekki á farsímum eins og er – það þarf að lagfæra.
  • Reputation-kerfið: Við munum tapa því í uppfærslunni, en það verður bara að hafa það. Við getum mögulega fundið nýja lausn eða byggt upp nýtt kerfi frá grunni.
  • Recent topics: Venjulega birtir phpBB nýjustu umræðurnar í einum lista, en hjá okkur hefur þessu verið skipt upp í tvo flokka – almennar umræður og söluþræði. Þetta þarf að sérsníða upp á nýtt í nýja kerfinu.
  • Íslenskun: Ég hafði þegar íslenskað nýjustu phpBB útgáfuna að um 80%, en síðan þá hafa komið nokkrar nýjar uppfærslur. Það þyrfti því að taka upp þráðinn og klára verkið – svona handavinna sem gæti tekið tíma. Sem betur fer gæti ég nú fengið hjálp frá ChatGPT við það, sem var ekki til staðar síðast þegar ég vann í þessu.

Til viðbótar mætti skoða hvernig þetta lítur út á gamma.vaktin.is, sem keyrir á nýjustu phpBB útgáfunni með smá breytingum. Við gætum byrjað þar og unnið út frá því til að sjá hvað virkar og hvað þarf að laga.

Það er því ekki beint "vandamál" að uppfæra, en það er ýmislegt sem þarf að aðlaga og laga áður en allt virkar fullkomlega í nýju útgáfunni.



Skjámynd

Saber
FanBoy
Póstar: 763
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Reputation: 15
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Re: Framtíðarplön spjall.vaktin.is - phpBB að deyja

Pósturaf Saber » Fim 20. Mar 2025 18:53

Opes skrifaði:Infinite scroll + timeline er t.d. eitthvað sem ég myndi fíla að hafa á Vaktinni í staðinn fyrir pagination.

Infinite scroll er það versta sem internetið hefur alið af sér s.l. 20 ár!

"Back" aðgerðin, sem kom mörgum árum áður, er svo vinsæl og mikið notuð að fólk setti sér takka á músina fyrir hana. Svo kom einhver bjáni, örugglega með mús með mynd af ávexti og engum takka, og hugsaði "hvað ef við gerum síðuna okkar þannig að hún klárast aldrei að load-a og fólk sé alltaf í veseni með að finna hluti aftur". Við það hefur allt hitt já-fólkið á fundinum klappað fyrir honum og þakkað honum fyrir að tryggja sér laun næstu mánuði.

Plííís ekki breyta Vaktinni úr gamla "forum" viðmótinu! [-o<

Opes skrifaði:LENGI LIFI VAKTIN!

Sammála þessu hins vegar.