Nýr kafli í leikritinu

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Þri 11. Mar 2025 08:16

Ánægður með hann, hann hefur aldrei forgangsraðað eigin hag, eign egó eða orðspori ofar almennings í Úkraínu.

Hann hefur alltaf valið að gera það sem er sinni þjóð fyrir bestu og hefur ekki farið í felur með sínar ákvarðanir.

Það er svo augljóst að "þjóðin stjórnar honum" sem er andstaða einræðistilburða margra annarra.

Þingið í Úkraínu hefur verið mjög virkt og ekki eins og Zelensky hafi verið að skipta sér mikið af þeirra ákvörðunum eða þröngva sínum vilja upp á aðra.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/ ... afsokunar/

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Þri 11. Mar 2025 12:48

Nú munu Bandaríkjamenn greiða hærri tolla meða veikari gjaldmiðli = 25% tollur og 5% veiking.

Dæmi um rafmagn frá Kanada, eitthvað sem kostaði $10 í gær (1500 kr.) kostar í dag c.a. $1,05 og svo bætast við 25% tollur = $13,4 = 34% hækkun.

Og Kanadamenn fá þarna $2,5 frá USA til að nota í varnarmál, kaupa vopn o.þ.h.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... fur_eftir/

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Þri 11. Mar 2025 18:30

Vandi bandaríkjanna er má segja bandaríkjadollar.

En er jafnframt styrkur bandaríkjanna.

Þetta er í raun kannski bara "dutch disease" (https://en.wikipedia.org/wiki/Dutch_disease)

Þ.e. þegar land uppgötvar t.d. olíu eða gas og verður ríkt af því þá þarf það ekki að hafa fyrir hlutunum, kaupir allt erlendis frá. Fyrir vikið hverfur öllu innanlandsframleiðsla og hagkerfið verður ekki samkeppnishæft.

Bandaríkjadollar er í raun þessi olía, bandaríkin flytja út dollar, skuldir sínar, sem útlendingar kaupa, og fyrir vikið fá bandaríkin vörur og hráefni staðinn. Innanlands hagkerfið, framleiðsluhagkerfið, líður fyrir það.
Ein lausnin er að setja á himinháa tolla.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Þri 11. Mar 2025 18:50

appel skrifaði:Vandi bandaríkjanna er má segja bandaríkjadollar.

https://www.investopedia.com/articles/f ... dollar.asp

Dollarinn var alltaf bakkaður upp með eftirspurn/greiðslum fyrir olíu þar til petroldollarinn "dó" / "hætti"

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Þri 11. Mar 2025 21:05

rapport skrifaði:

Dollarinn hefur í raun síðan þá notið stóraukins vægis í alþjóðaviðskiptum. Jafnvel tvö lönd sem bæði hata BNA geta ekki haft viðskipti sín á milli nema með því að nota bandaríkjadollar. BRICS eru eitthvað að reyna að stunda viðskipti sín á milli með eigin gjaldmiðlum, en langstærsti viðskipta í heiminum notar bandaríkjadollar. Það tekur enginn við kínverska gjaldmiðlinum, vita ekkert hvað á að gera með hann, hvað þá rúblunni, eða indversku rúpíunni.
Staðreyndin er að dollarinn er allsráðandi, og þessvegna hafa bandaríkjamenn komist upp með að prenta hann og flytja út til þeirra sem vilja hann. Þetta er auðvitað ósanngjarnt gagnvart löndum t.d. einsog Íslandi sem þurfa að stýra fjármálum sínum skynsamlega (oftast varla) og ná í gjaldeyri til þess að geta flutt inn vörur.

Íraksstríðið var sem dæmi bara fjármagnað út á hinn almáttuga dollar, peningarnir prentaðir fyrir stríðinu, kom lítið niður á fjárhag almennings og ríkisins, erlendir aðilar keyptu skuldirnar og allt fjármagnað þannig.

Þetta er skuldakúla sem stækkar í sífellu og er að nálgast exponential vöxt, vaxtabyrðin er orðin slík að þau eru meiri en útgjöld til hernaðarmála. Gætu nálgast óviðráðanlega tölu innan fárra ára. Þetta er ástæðan fyrir drastískum niðurskurði í ríkisrekstri, sem margir súpa kveljur yfir, en það er bara verið að reyna bjarga bandaríkjunum frá einhverskonar hruni.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Mið 12. Mar 2025 15:03

https://www.investopedia.com/us-dollar- ... d-11693167

https://www.schwab.com/learn/story/will ... -dethroned

Dollarinn er stærri og sterkari... en the crash will be bigger...

Hugsanlega bara best að forða sér frá dollar sem fyrst

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6573
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 354
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf gnarr » Fös 14. Mar 2025 13:39

m79y2zwr6noe1.png
m79y2zwr6noe1.png (63.15 KiB) Skoðað 6473 sinnum

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Sun 23. Mar 2025 11:25

Er einhver nýr kafli í leikritinu frá því að einhver kommentaði hér seinast?

Þetta er bara áframhaldandi chaoz og það virðist flest ef ekki allt bara fara versnandi fyrir greyin í USA.

Evrópa er heldur betur að átta sig á að það borgar sig ekki að treysta á vopn frá USA sbr. umræður um "kill switch" í herþotum frá þeim (þá líklega F-35) og að USA geti auðveldlega gert vopn óstarfhæf með því að takmarka upplýsingagjöf, afhendingu varahluta o.s.frv.

BNA sem hafa verið einn stræsti hergagnaframleiðandi í heiminum virðast hafa skotið sig í fótinn.

Ef þetta er það sem Evrópulönd eru að ræða opinberlega um sinn "samstarfsaðila" þá er nokkuð öruggt að lönd annarstaðar í heiminum horfa sömu augum á vopn frá USA, að það sé ekki hægt að treysta á þau.

Fyrir utan þetta efnahagslega turmoil sem Trump er búinn að hamast í, þetta tollastríð.

Umræðan er þróast á þá leið að nú sé USA að grafa sína gröf, þau muni ekki hafa fjárhagslega burði til að kaupa hráefni til landsins (því meiri samkeppni verður um það), greiða hærra tímakaup en tíðkast í öðrum löndum og lenda í hærri tollum á sínum útflutningi.

Ég held að nún aum jólin 2025 þá verði allt brjálað í USA þegar fólk fer að sjá muninn á kaupmættinum sínum í smanburði við fyrri ár.

Sumarið verður líklega OK því það er meira þjónustudrifið en fólk mun virkilega finna fyrir áhrifunum um jólin.

En við hverju bjóst fólk?

Maðurinn þurfti að verða forseti til að komast hjá því að fara í fangelsi...

Fólk sem styður Trump ætti að skoða möguleikann á að krefjast þess að Ásthildur Lóa verði næsti forseti hér á Íslandi, fái hreinleg sstöðuhækkun fyrir að vera á siðferðislega gráu svæði... og auðvitað að hafa ekki rofið þungunina...

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Mán 24. Mar 2025 22:34

Getur þetta verið satt?

Að æðsta stjórn USA sé ekki varkárari en þetta?

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Mán 24. Mar 2025 23:46

rapport skrifaði:Getur þetta verið satt?

Að æðsta stjórn USA sé ekki varkárari en þetta?

Nokkuð skondið bara.

Byrjendamistök? Held það. Auðvitað á að rýna í þetta og refsa þeim sem voru svona óábyrgir, þetta hefði getað stefnt bandarískum hersveitum í hættu.

Þó ég sé ekkert sammála öllu sem Trump gerir, þá er eitt ljóst að hann er að valda miklum jarðskjálftum í heimsstjórninni, kannski spennulosun sem mun draga úr líkum á þriðju heimsstyrjöldinni, kannski, veit ekki.

Það sem ég held að Trump sé að gera sé að draga fókus BNA af Evrópu og láta þessa ríku heimsálfu sjá um sín eigin mál og varnir.
Og í staðinn beina 100% og óskiptri athygli BNA í áttina að Kína, sem er jú stærsta ógnin.
Þetta var ferli sem hófst undir Obama með Hillary Clinton í stjórn, og kallaðist "pivot". Að BNA væru að snúa sér að auknum mæli að Asíu frekar en Evrópu. Þetta er frekar augljós og hægfara stefnubreyting. Evrópa skiptir máli, en er á allt öðrum stað í dag heldur en í kalda stríðinu þegar Evrópa var bækluð eftir WW2 og þurfti vernd frá BNA fyrir Sóvétríkjunum.

NATÓ á enn rétt á sér, það er enn ógn af Rússum. En ég held að evrópulöndin eigi að geta séð um sínar varnir sjálfar ef þær sýna því áhuga... og það er aðeins fyrst núna sem þessi lönd vilja sinna þessu þegar þau vita að vernd BNA er ekki lengur 100% til staðar.

Bandaríkin eru ekkert ógurlegt ósigranlegt afl. Það hriktir í stoðum dollarsins, skuldir ríkisins gríðarlegar. Ef dollarinn missir stöðu sína sem "reserve currency of the world" þá er þessi "fyrsti heimur" þ.e. vestræni heimur að hruni kominn. Vernd evrópu hefur verið haldið uppi í raun af styrk dollarsins.
Basically BNA hafa ekki efni á þessu lengur.

Þannig að tel ég Trump eitthvað óábyrgan? Mér líkar ekkert við að hann sé að hætta stuðningi við Evrópu, en gagnvart eigin landi, BNA, þá væri óábyrgt að gera ekki meiriháttar breytingar. Það væri óábyrgt að halda áfram óbreyttri þróun sem mun leiða til hruns BNA.

*-*

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Mán 24. Mar 2025 23:59

Held að næsti kafli "í leikritinu" verði þegar BNA byrja að kalla til baka hersveitir sínar staðsettar í Evrópu, Þýskalandi einkum, líklega skilja þeir einhverja eftir í Bretlandi og Ítalíu. En fyrst munu bandarískar hersveitir hverfa frá Litháen, Lettlandi, Eistlandi.

*-*

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Þri 25. Mar 2025 00:23

https://www.telegraph.co.uk/us/politics ... cret-chat/

Evrópa getur ekki einu sinni varið siglingaleiðir sínar þar sem 40% af sínum vöruviðskiptum fara um, þurfa hjálpa BNA við það, sem hafa bara 3% að vernda.

Ef BNA myndu hætta að verja skip þarna, þá myndi verða svona 20% verðbólga á Íslandi.

Já, BNA niðurgreiða stórkostlega okkar lífskjör hérna, við bara kunnum ekki að meta það. Vanþakklátustu hálfvitar sem fyrirfinnast á jörðinni, engin furða að Trump vilji skera á þetta rugl.

Veit að margir hérna vilja kenna Trump um allt... en sjáiði ekki bjálkann í eigin augum? Evrópa hefur vanhirt stórkostlega það að taka öryggismál sín alvarlega. Þetta er Evrópu að kenna, evrópskum leiðtogum, evrópa er veikburða drasl sem er ekki þess virði að verja ef það vill ekki verja sig sjálft.

Þetta er ekki einhver U-turn sem Trump hefur gert, heldur er þetta þróun sem hefur gerst yfir 20-25 ár. Bush kallaði Evrópu "gamla evrópu". Fengu í raun gálgafrest með Biden. Obama hafði þegar breytt fókus BNA í átt að Asíu. Evrópulönd bara kusu að hunsa öll þessi viðvörunarljós.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Þri 25. Mar 2025 12:56

appel skrifaði:https://www.telegraph.co.uk/us/politics/2025/03/24/trump-cabinet-complained-free-loading-europe-secret-chat/

Evrópa getur ekki einu sinni varið siglingaleiðir sínar þar sem 40% af sínum vöruviðskiptum fara um, þurfa hjálpa BNA við það, sem hafa bara 3% að vernda.

Ef BNA myndu hætta að verja skip þarna, þá myndi verða svona 20% verðbólga á Íslandi.

Já, BNA niðurgreiða stórkostlega okkar lífskjör hérna, við bara kunnum ekki að meta það. Vanþakklátustu hálfvitar sem fyrirfinnast á jörðinni, engin furða að Trump vilji skera á þetta rugl.

Veit að margir hérna vilja kenna Trump um allt... en sjáiði ekki bjálkann í eigin augum? Evrópa hefur vanhirt stórkostlega það að taka öryggismál sín alvarlega. Þetta er Evrópu að kenna, evrópskum leiðtogum, evrópa er veikburða drasl sem er ekki þess virði að verja ef það vill ekki verja sig sjálft.

Þetta er ekki einhver U-turn sem Trump hefur gert, heldur er þetta þróun sem hefur gerst yfir 20-25 ár. Bush kallaði Evrópu "gamla evrópu". Fengu í raun gálgafrest með Biden. Obama hafði þegar breytt fókus BNA í átt að Asíu. Evrópulönd bara kusu að hunsa öll þessi viðvörunarljós.

Evrópa er bara Evrópa og hefur bakkað undanfarin 100 ár frá því að vera nýlenduherrar og hafa verið að hætta því að segja öðrum þjóðum hvernig þær eiga að vera...

USA aftur á móti er að vasast í valdabrölti um allan heim sem er alltaf að skarast meira og meira á við sjónarmið Evrópu.

Að vernda verslunarleiðir með því að ráðast á annað land og drepa þar almenna borgara...

Þetta geta ekki verið eðlileg viðbrögð og hvað þá að "láta Evrópu borga fyrir það"...

Þetta er bara nýtt level af klikkun.

Og að fara nota Telegram eða Signað til að skilja ekki eftir sig rekjanlega slóð í stjórnsýslunni... þetta er glæpsamlegt + allir þessir menn voru nánast að fremja landráð með því að deila upplýsingum með þessum hætti - https://is.wikipedia.org/wiki/Landr%C3%A1%C3%B0

Evrópa hefur nefnilega ekki vanhirt sín öryggismál, Evrópa hefur talið sig nokkuð örugga og ekki verið með paranoiu á sama háa stiginu og USA... eiginlega bara verið sjálfstæð í sínu og treysta á gerða samninga... sem USA er núna að svíkja hægri vinstri.

Einu stóru mistökin sem Evrópa virðist hafa gert er að treysta USA.

Hvaða önnur stór mistök hefur Evrópa gert í sínum öryggismálum?

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 25. Mar 2025 14:46

rapport skrifaði:Evrópa hefur nefnilega ekki vanhirt sín öryggismál, Evrópa hefur talið sig nokkuð örugga og ekki verið með paranoiu á sama háa stiginu og USA... eiginlega bara verið sjálfstæð í sínu og treysta á gerða samninga... sem USA er núna að svíkja hægri vinstri.

Einu stóru mistökin sem Evrópa virðist hafa gert er að treysta USA.

Hvaða önnur stór mistök hefur Evrópa gert í sínum öryggismálum?

Ertu að vísa í einhverja aðra samninga en samningana þar sem Nató-lönd ætluðu að borga ákveðið hlutfall af landsframleiðslu í varnarmál og stóðu svo ekki við það?

Hver er þín skilgreining á sjálfstæði? Er það þegar eitt ríki er háð öðru um varnir?

Var það mjög skynsamlegt hjá t.d. Þýskalandi að verða háð Rússum um orku? Mistök? Stór mistök?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Þri 25. Mar 2025 16:22

rostungurinn77 skrifaði:

NATO og viðmið um útgjöld í hlutfalli við landsframleiðslu var að mestu náð og fylgt. Var USA að hleypa öðrum að, voru það ekki USA sem voru í forsvari?

En hvað varðar svikin loforð og samkömulög USA:

USAID... var ekki bara fjármagnað af BNA, BNA sá bara um bókhaldið og reksturinn - https://fortune.com/2025/03/23/european ... doge-cuts/

Bandaríkin hafa frá því að Trump tók völd sagt sig frá, hætt að fjármagna eða staðið í vegi fyrir störfum: WHO, WTO, NATO, NAFTA, ICC... just to name a few...

Er Þýskaland háð orku frá Rússum?

Er Þýskaland og EU ekki bara háð innfluttri orku og hefur verið að greiða hana dýru verði til USA undanfarið?

Tölfræðu EU/Þýskalands
https://www.cleanenergywire.org/factshe ... ssil-fuels

Tölfræði USA:
https://www.eia.gov/energyexplained/us- ... xports.php

Útflutningur USA á gasi (mestmegnis til EU vegna viðskiptaþvingana á Rússa):
https://www.eia.gov/energyexplained/nat ... xports.php

En bara svo að það sé sagt þér er sjálfstæði alls ekki það sama og að vera fullkomlega sjálfbær í einhverjum sjálfsþurftarbúskap.

Að stunda viðskipti er alltaf af hinu góða og sérstaklega ef viðskiptasambönd eru notuð til að þoka réttindum og kjörum almennings í viðskiptalöndunum í rétta átt með því að gera kröfur til viðskiptanna.

Í raun er það miklu áhrifaríkari leið umbóta sem "gulrót" en ekki "svipa".

Persónulega þá vona ég að mannkynið komist á það stig sem Star Trek lýsir, að framleiðsla orku og matvæla sé orðin svo auðveld að það verði engin barátta um þessar auðlindir, að enginn upplifi fátækt en hver sem nennir geti orðið ríkur.

En auðvitað er samt endalaus barátta og blóðsúthellingar í Star Trek, heimurinn mun ekki losna undan því öllu saman.

Síðast breytt af rapport á Mið 26. Mar 2025 19:34, breytt samtals 2 sinnum.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Mið 26. Mar 2025 15:52

https://www.aljazeera.com/news/liveblog ... tack-plans

Þetta er svo hlægilegt og sorglegt um leið.

Á sama tíma eru bílaframleiðendur í USA að biðja um að tollum verði sleppt því þeir gagnist þeim ekkert.

Hagfræðingar tala um að umfram framleiðslugeta utan USA muni líklega auka samkeppni og snarlækka verð annarstaðar í heiminum.

Held að USA hafi komist að þvì að þau eru háð heiminum en ekki öfugt.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Mið 26. Mar 2025 21:47

rapport skrifaði:https://www.aljazeera.com/news/liveblog/2025/3/26/trump-live-pressure-builds-as-the-atlantic-shares-yemen-attack-plans

Þetta er svo hlægilegt og sorglegt um leið.

Á sama tíma eru bílaframleiðendur í USA að biðja um að tollum verði sleppt því þeir gagnist þeim ekkert.

Hagfræðingar tala um að umfram framleiðslugeta utan USA muni líklega auka samkeppni og snarlækka verð annarstaðar í heiminum.

Held að USA hafi komist að þvì að þau eru háð heiminum en ekki öfugt.

Ekki vanmeta hvað kínverjar eru að reyna gera, og er að takast, að sölsa undir sig alla helstu framleiðslu í heiminum og framleiðslukeðjur, með því að niðurgreiða alla þessa framleiðslu, einsog á rafbílum. Markmið þeirra er að slátra allri samkeppni og ná stjórn á framleiðsluhagkerfi heimsins algjörlega. Það er þeirra aðferð í stríði gegn BNA og vesturlöndum. Kínversk stjórnvöld endurgreiða t.d. útflytjendum alla tolla sem eru settir á vörur þeirra. Hugsið hvað markmið þeirra er.

T.d. hef ég aldrei skilið hví flutningskostnaður frá BNA til Íslands er margfalt margfalt hærri heldur en flutningskostnaður frá Kína til Íslands. Þarna er mikil bjögun í þessari samkeppni. Flutningskostnaður N-Evrópu (Hollandi, Þýskalandi, Danmörku) til Íslands er einnig margfalt hærri heldur en frá Kína.

Flutningskeðjur frá Kína til Íslands eru mun lengri og flóknari heldur en flutningskeðjan frá BNA til Íslands eða Evrópu til Íslands, t.d. fljúga margar Icelandair farþegaþotur frá BNA og Evrópu á hverjum degi sem gætu tekið með varning. En vegna reglna alþjóða póstmálastofnunarinnar þá nýtur Kína ívilnunar vegna þess að það flokkast sem þróunarland.

Vestræn lönd eru að skjóta sig í báða fæturnar með því að taka ekki á þessum rugli og leyfa að taka sig svona illilega.

Trump er í raun að reyna kollvarpa þessu kerfi sem hefur leitt til algjörrar hnignunar í framleiðslukerfi BNA. BNA framleiða bara lítið agnarsmátt brot af því sem Kína framleiðir af ýmsum mikilvægum hrávörum og hátæknivörum. Einhversstaðar sá ég að Kína framleiðir þúsundfalt fleiri skip á hverju ári heldur en BNA. Þegar þú lendir í heimsstyrjöld þá skiptir máli að hafa þannig iðnað, sem getur framleitt hergögn. Kína hefur allt núna og BNA ekkert. Ef það yrði stríð milli Kína og BNA og báðir aðilar misstu allan sinn herafla, þá gæti Kína endurbyggt sinn herafla á einu ári á meðan BNA myndu aldrei geta endurbyggt þó þeir hefðu 20 ár.

Auðvitað var það heimskasta sem BNA gátu gert upp úr 2000 að flytja alla framleiðslu sína úr landi og til Kína. Ég fylgdist aðeins með þeirri þróun á sínum tíma og mér fannst þetta grátlegt, þeir vissu ekki hvað þeir voru að gera, allt drifið áfram að stundargeðveikis-græðgi þvert á langtíma þjóðarhagsmuni.

En hér erum við í dag, með forseta sem heitir Trump, sem vill breyta um stefnu.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Fim 27. Mar 2025 00:06

appel skrifaði:

Kínversk fyrirtæki greiða ekki tolla erlendis, tollar eru greiddir af kaupendum ekki seljendum... Hvað ættu þau þá að fá endurgreitt?

En þetta er bara USA að sprikkla í snörunni og virðast allt í einu vera á móti globalization. Kínverjar eru háðir þessum viðskiptum líka, þeir færu fljótt í kreppu ef allt færi í bál og brand, þeir hafa einna mestra hagsmuna að gæta.

En þú veist að þú færð vörur hraðar frá Kína því þær eru oftast afgreiddar frá Evrópu. Að fá pakka frá Kína er oft 8+ vikur...og hann gæti alveg endað á Írlandi...

Besta leiðin til að forðast stríð er að halda friðinn og EKKI VERÐLAUNA ÁRASAHERNAÐ.

Trump er búinn að skíta upp á bak í þeim efnum og Rússar fara ekki einusinni í felur með hvað þeim finnst um USA og Trump, þeir blasta því í öllum fjölmiðlum hvað hann er mikill ræfill.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Fim 27. Mar 2025 21:22

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Fim 27. Mar 2025 23:43

Þetta kallast "china export tax rebate".
Þetta er endurgreiðsla á sköttum, oftast VSK, á útflutningsvörum.
Trump hefur kvartað yfir VAT/VSK, að amerískar vörur eru skattlagðar með VSK, en það er ekki lagður VSK á innflutningsvörur. Ólík skattkerfi. Hinsvegar bætir það salti á sárin að ef þú flytur vöru til BNA þá færðu VSK endurgreiddan af ríkinu.

Þannig að þegar þú pantar vöru frá BNA þá er það á því verði sem almenningur í ameríku borgar. En ef neytandi í BNA pantar vöru frá Kína, eða Íslandi, þá er það á lægra verði en almenningur í þeim löndum borgar.

25% tollur á innflutningsvörur... er það ekki bara nákvæmlega það sem íslendingar leggja á innfluttar amerískar vörur í formi virðisaukaskatts?
Finnst það þá koma út á jöfnu. 24% vsk á amerískar innflutningsvörur, og BNA menn leggja 25% toll á íslenskar útflutningsvörur. Sama nánast, munar 1%.

Stundum er ágætt að reyna skilja afhverju hinn aðilinn hugsar einsog hann hugsar. Okkur myndi finnast þetta ósanngjarnt einnig. En bandaríkjamenn hafa sitt tariff kerfi og líklega er það komið til að vera.
Síðast breytt af appel á Fim 27. Mar 2025 23:45, breytt samtals 1 sinni.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Fös 28. Mar 2025 16:44

appel skrifaði:Þetta kallast "china export tax rebate".
Þetta er endurgreiðsla á sköttum, oftast VSK, á útflutningsvörum.
Trump hefur kvartað yfir VAT/VSK, að amerískar vörur eru skattlagðar með VSK, en það er ekki lagður VSK á innflutningsvörur. Ólík skattkerfi. Hinsvegar bætir það salti á sárin að ef þú flytur vöru til BNA þá færðu VSK endurgreiddan af ríkinu.

Þannig að þegar þú pantar vöru frá BNA þá er það á því verði sem almenningur í ameríku borgar. En ef neytandi í BNA pantar vöru frá Kína, eða Íslandi, þá er það á lægra verði en almenningur í þeim löndum borgar.

25% tollur á innflutningsvörur... er það ekki bara nákvæmlega það sem íslendingar leggja á innfluttar amerískar vörur í formi virðisaukaskatts?
Finnst það þá koma út á jöfnu. 24% vsk á amerískar innflutningsvörur, og BNA menn leggja 25% toll á íslenskar útflutningsvörur. Sama nánast, munar 1%.

Stundum er ágætt að reyna skilja afhverju hinn aðilinn hugsar einsog hann hugsar. Okkur myndi finnast þetta ósanngjarnt einnig. En bandaríkjamenn hafa sitt tariff kerfi og líklega er það komið til að vera.

Þú ert með sama takmarkaða skilning á VSK og Trump... og þetta er ekki eitthvað sérstakt kínverskt... það er almennt ekki lagður VSK á útflutningsvörur.

Sjá bls. 23 - https://www.skatturinn.is/media/baeklin ... 119.is.pdf

Vara sem seld er úr landi. Ekki skal reikna útskatt á verð vöru sem seld er úr landi. Sala hér innanlands til aðila búsettra erlendis og sendimanna erlendra ríkja er ekki útflutningur. Því skal alltaf innheimta virðisaukaskatt af sölu til þessara aðila. Þeir geta hins vegar í vissum tilvikum fengið skattinn endurgreiddan. Þá ber að innheimta virðisaukaskatt af verði vara sem seldar eru til tollfrjálsra verslana, t.d. Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

Innlend og erlend framleiðsla ber samam VSK því að VSK fer eftir tegund vöru en ekki uppruna hennar.

Það eru bara tollar sem fokka upp þessu mjög gegnsæa systemi = það er það sem Trump er að gera því hann er dumb dumb.

Af hverju taka USA bara ekki upp VAT kerfi í stað þess að rukka söluskatt í hvert skipti sem vara skiptir um eiganda?

Orðum þetta svo aðeins öðruvísi... USA fær tekjur af öllum sínum útflutningi með söluskatti og öllum sínum innflutningi með tollum.

Önnur lönd rukka bara VSK af vörunotkun innanlands því það er virkilega sanngjarnt og gott kerfi...

USA eru fórnarlömb eigin fávitaskapar og það er engum nema þeim að kenna.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Fös 28. Mar 2025 22:44

Þetta eru ólík kerfi, vissulega, en það er held ég ljóst að það hallar aðeins á BNA í vöruviðskiptum við land sem er með háan VSK.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Fös 28. Mar 2025 23:16

appel skrifaði:Þetta eru ólík kerfi, vissulega, en það er held ég ljóst að það hallar aðeins á BNA í vöruviðskiptum við land sem er með háan VSK.

Nei, alls ekki.

Það land skattleggur alla jafnt innanlands og útflutningur ber ekki VSK.

Í USA er söluskattur á öllu, líka útflutningi = útflutningstollar ig innflutningstollar... Ríkið í USA makar krókinn allstaðar.

Ef þeir mundu bara hætta með söluskatt til útlanda þá yrði þetta ögn jafnara.

https://www.facebook.com/share/r/1ASYFWjPfw/
Síðast breytt af rapport á Fös 28. Mar 2025 23:16, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf appel » Lau 29. Mar 2025 00:47

rapport skrifaði:
appel skrifaði:Þetta eru ólík kerfi, vissulega, en það er held ég ljóst að það hallar aðeins á BNA í vöruviðskiptum við land sem er með háan VSK.

Nei, alls ekki.

Það land skattleggur alla jafnt innanlands og útflutningur ber ekki VSK.

Í USA er söluskattur á öllu, líka útflutningi = útflutningstollar ig innflutningstollar... Ríkið í USA makar krókinn allstaðar.

Ef þeir mundu bara hætta með söluskatt til útlanda þá yrði þetta ögn jafnara.

https://www.facebook.com/share/r/1ASYFWjPfw/

Ég viðurkenni að þetta er erfiður samanburður. Samt velti ég fyrir mér hvort þessi innbyggða skattbyrði í BNA sem fellur inn í vöruverð sé innifalin í útflutningsvörunni, á meðan lönd með VSK eru með "hreinlegra" kerfi og geta flutt út án þessarar skattbyrðar.
Ég veit að ég mun aldrei panta neitt frá BNA, það er bara alltof dýrt, fáránlega dýrt, miklu ódýrara að panta frá Kína.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýr kafli í leikritinu

Pósturaf rapport » Lau 29. Mar 2025 11:00

appel skrifaði:
rapport skrifaði:
appel skrifaði:Þetta eru ólík kerfi, vissulega, en það er held ég ljóst að það hallar aðeins á BNA í vöruviðskiptum við land sem er með háan VSK.

Nei, alls ekki.

Það land skattleggur alla jafnt innanlands og útflutningur ber ekki VSK.

Í USA er söluskattur á öllu, líka útflutningi = útflutningstollar ig innflutningstollar... Ríkið í USA makar krókinn allstaðar.

Ef þeir mundu bara hætta með söluskatt til útlanda þá yrði þetta ögn jafnara.

https://www.facebook.com/share/r/1ASYFWjPfw/

Ég viðurkenni að þetta er erfiður samanburður. Samt velti ég fyrir mér hvort þessi innbyggða skattbyrði í BNA sem fellur inn í vöruverð sé innifalin í útflutningsvörunni, á meðan lönd með VSK eru með "hreinlegra" kerfi og geta flutt út án þessarar skattbyrðar.
Ég veit að ég mun aldrei panta neitt frá BNA, það er bara alltof dýrt, fáránlega dýrt, miklu ódýrara að panta frá Kína.

Og 90% líkur á að það sé "made in China".

En þetta er bara bull í Trump, það er bara gamaldags skattkerfi USA sem hugsanlega skapar einhvern mismun en þá er verðmunurinn tilkominn því stjórnvöld í USA voru að plokka peninga.