Skriflegt: https://en.m.wikipedia.org/wiki/Budapest_Memorandum
Munnlegt... "og NATO er ekkert að fara stækka..."
Skriflegt v.s. munnlegt
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
rapport skrifaði:Skriflegt: https://en.m.wikipedia.org/wiki/Budapest_Memorandum
Munnlegt... "og NATO er ekkert að fara stækka..."
Sammála.
Rússar lifa í einhverjum einhverfuveruleika.
Engir sáttmálar í gildi þar sem kveðið var á um hvaða lönd gætu gengið í NATÓ og ekki.
Alltaf litið á þessar árásarstríð Pútíns gagnvart Úkraínu sem meiriháttar mistök. Landið var ekki á leið í NATÓ, heldur frekar ESB.
En ég hef líka átalið Evrópu fyrir að hafa ekki drullast til að gera meira... og þessi helvítis evrópa virðist ekki geta drullast til að geta gert meira. Stríð á þeirra eigin landamærum og þau geta ekki framleitt andskotans neitt hernaðarlega séð.
Skil Trump vel .... þetta er "þeirra stríð"... og bara "gangi þeim vel"... "ég sagði þeim að auka útgjöld til hernaðarmála, en þau gerðu það ekki"...
Kenni ekki Trump um neitt... heldur þessari fokking Evrópu sem er vonlaust apparat.
*-*
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
appel skrifaði:En ég hef líka átalið Evrópu fyrir að hafa ekki drullast til að gera meira... og þessi helvítis evrópa virðist ekki geta drullast til að geta gert meira. Stríð á þeirra eigin landamærum og þau geta ekki framleitt andskotans neitt hernaðarlega séð.
Skil Trump vel .... þetta er "þeirra stríð"... og bara "gangi þeim vel"... "ég sagði þeim að auka útgjöld til hernaðarmála, en þau gerðu það ekki"...
Kenni ekki Trump um neitt... heldur þessari fokking Evrópu sem er vonlaust apparat.
Er þetta ekki steinn úr glerhúsi, komandi frá manni sem býr í herlausu landi sem hefur frá WW2 haft varnarlið frá BNA í 50 ár og frá NATO í 20 eftir það?
Varnargeta Íslands: https://www.dv.is/frettir/2020/09/16/mp ... ild-sinni/
En, við vorum þessu "gengi" sem kallast NATO og þar höfðu lönd skipt með sér hlutverkum og USA valdui sér sitt hlutverk.
Evrópulöndin eru friðarsinnar sem ákváðu að vera almennt ekki að safna vopnum í sarpinn við þröskuldinn hjá Rússum en leyfðu USA að gera það, fóru skynsamlegan milliveg.
USA aftur á móti gat ekki hætt að espa upp björninn og hnoðast í Úkraínu og startar þessu stríði (ekki NATO... USA, gerði það óstutt).
En svo syrtir í álinn og ráðist er inn í Úkraínu, og BNA skilja Úkráinu eftir í skítnum og miðla ekki einusinni upplýsingum til þeirra... gera þetta auðveldara fyrir Rússa.
Evrópu finnst þetta eðlilega algjörlega siðlaus framkoma USA og ákveða að gefast ekki upp fyrr en í gulla hnefana.
USA heldur áfram að mála sig út í horn sem fokking drullusokkar og svikarar, sem þeir sannarlega eru.
Mistökin sem Evrópa gerði var að trúa og treysta á USA sem er í dag að haga sér eins og Rússar hafa verið að gera, að brjóta gera samninga og draga sig úr alþjóðasamstarfi.
Evrópa hefur ekki haft raunverulega ástæðu til að vera með svakalegan fókus á hernað... því Evrópa treysti líka Rússum, betur en USA gerði sbr. alla samningagerðina í kringum að stöðva stríðið 2014-2015 (sem USA snerti lítið) - https://en.wikipedia.org/wiki/Minsk_agreements
Það er því algjör sögufölsun að segja að Evrópa hafi ekki gert neitt.
Evrópa hefur nefnilega róað þetta stríð og hélt því rólegu í 10+ ár áður en innrásinhófst, gert samninga og samkömulög (mikið til án aðkomu USA) sem hafa öll verið brotin...
Það er engin ástæða til að semja eina ferðina enn og alls ekki að leyfa að Rússar taki bara það sem þeir vilja þvert á alla gerða samninga.
Hvað næst, á USA að koma með flugmóðurskip hingað og segjast vilja fá Vestmannaeyjar... og Grænland...
Ef við leyfum Rússum að taka hluta af Úkraínu emð þessum hætti, hvað ætti að stoppa önnur stórveldi í að ráðast inní önnur lönd og fara skipta heiminum á milli sín?
Frjáls tollalaus viðskipti slá ástæður til innrásar úr höndunum á löndum = "af hverju innlima land X ef við getum hvort sem er átt hömlulaus viðskipti við það?"...
Að koma á tollastríði = espa til stríðs (warmongering) og það er akkúrat það sem USA er að gera, skemma friðinn.
Ég hef nær óendanlega mikla óbeit á Trump og hans fólki, það er ekkert af því sem þau eru að gera fallegt eða gott... þetta er allt hagsmunagæsla af verstu gerð = óhófleg og jafnvel ólögleg valdbeiting, frekja og hótanir.
-
- spjallið.is
- Póstar: 424
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 146
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
rapport skrifaði:
Evrópulöndin eru friðarsinnar sem ákváðu að vera almennt ekki að safna vopnum í sarpinn við þröskuldinn hjá Rússum en leyfðu USA að gera það, fóru skynsamlegan milliveg.
Hvað þarf að vera í mikilli afneitun til að trúa þessu?
Evrópa er bara eins og fullorðinn einstaklingur sem býr heima hjá mömmu og pabba og lifir á þeim og verður síðan brjálaður þegar ætlast er til þess að viðkomandi greiði með sér.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 911
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Reputation: 110
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
appel skrifaði:...
En ég hef líka átalið Evrópu fyrir að hafa ekki drullast til að gera meira... og þessi helvítis evrópa virðist ekki geta drullast til að geta gert meira. Stríð á þeirra eigin landamærum og þau geta ekki framleitt andskotans neitt hernaðarlega séð.
...
Evrópa getur ekki einu sinni haft stjórn á landamærunum sínum. Hleypa ótékkuðu fólki bara inn og gefa þeim endalausar gjafir. Rússland er ekki mesta hætta Evrópu heldur óvinurinn sem er nú þegar komin inn fyrir landamæri Evrópu þökk sé Angelu Merkel og co.
Nú þegar allavega einn staðfestur óþokki með tengsl við hryðjuverkasamtök sem hefur komið til Íslands... ætli hann sé ennþá í landinu?
Síðast breytt af falcon1 á Fös 07. Mar 2025 10:29, breytt samtals 2 sinnum.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
rostungurinn77 skrifaði:rapport skrifaði:
Evrópulöndin eru friðarsinnar sem ákváðu að vera almennt ekki að safna vopnum í sarpinn við þröskuldinn hjá Rússum en leyfðu USA að gera það, fóru skynsamlegan milliveg.
Hvað þarf að vera í mikilli afneitun til að trúa þessu?
Evrópa er bara eins og fullorðinn einstaklingur sem býr heima hjá mömmu og pabba og lifir á þeim og verður síðan brjálaður þegar ætlast er til þess að viðkomandi greiði með sér.
Nefnilega alls ekki.
https://www.nato.int/nato_static_fl2014 ... 104-en.pdf
Þetta er eins og að fara út að borða mánaðarlega með vinafólki þar sem þið ákveðið öll saman að fara á einhvern miðlungs dýran veitingastað svo að þetta verði ekki of dýrt, þessi máltið eigi að kosta c.a. 2% af mánaðarlaununum og 20% af öllum veitingahúsaferðum mánaðarins.
Í það heila eru þið á svipuðum stað efnahagslega og vinahjón ykkar.
Þið hjónin farið varlega í þetta, pantið ykkur ekki forrétt, farið bara í húsvínið og fáið ykkur irish coffee í desert.
Vinahjón ykkar far aaftuir á móti all-in, fara í sjörétta óvissuferð með sérpöruðum vínum.
Þau leyfa ykkur að smakka bita og bita af þessum réttum sem þau pöntuðu enda er svo mikill matur á borðinu að ef þau gefa ekki með sér þá verða bara leyfar sem fara í ruslið.
Í 10 ár eru allir sáttir við þetta fyrirkomulag enda en svo allt í einu segja vinahjónin... þið eru alltaf að skemmta ykkru á okkar kostnað!
Ykkar matur er bara ógirnilegur ógeðslegur og þið hafið bara í c.a. 50% tilvika staðið við skuldbindinguna um þessi 2% og 20%...
Þið hjónin, hugsið málið og farið að eyða aðeins meira. Þið virðið vinskapinn ykkar meira en eruð ekkert að fara hrútskýra fyrir þessum vinahjónum ykkar að þau séu að eyða allt of miklu í þessi matarboð, í raun tvöfallt meiru en þau þurfa. Þetta er fullorðið fólk, þau stjórna sér sjálf og þið virðið það.
En svo byrja þau að tala um að nú séu þau að eyða tvisvar sinnum meira en þið...
Þau gleyma að það er alltaf verið að hittast heima hjá ykkur í smá forpartý, að það er farið á ykkar bíl og að það er verið að nota ykkar sambönd og kontakta til að komast inn á veitingastaðinn, án hans þá þyrftu þau að borða asískan eða arabískan mat alla daga, sem er í allt öðru hverfi og samgöngurnar miklu flóknari og dýrari.
Þið hjónin eruð að missa áhugann á að fara út að borða með þessu liði.
Það eru stöndug asísk hjón nýflutt í hverfið en þau hafa allt öðruvísi smekk á mat.
Ætlið þið hjónin að halda áfram að fara út að borða með þessum leiðinlegu vinahjónum eða ætlið þið að prófa að hitta þessi asísku hjón og tékka hvort að þið getið stillt saman strengi og sameinast um veitngastað til að fara út að borða á?
-
- spjallið.is
- Póstar: 424
- Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
- Reputation: 146
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
Þórður Snær Júlíusson skrifaði:Allt of langan og leiðinlegan pistil.
Og þú ert að reyna að segja hvað?
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skriflegt v.s. munnlegt
rostungurinn77 skrifaði:Þórður Snær Júlíusson skrifaði:Allt of langan og leiðinlegan pistil.
Og þú ert að reyna að segja hvað?
USA eyðir tvöfallt meira af GDP í hernaðarbrölt en Evrópa samanlagt EN hversu mikið af því fer í NATO?
Næstum allt sem Evrópa gerir og græjar fer í NATO en USA er að brölta um allan heim, Asíu, Arabíu, Suður Ameríku...
Ætla BNA telji ekki með helling af stofnunum sem hafa það aðalhlutverk að hugsa um hag USA og NATO hefur takmarkaðan aðgang að og bara ftir því sem hentar USA.
Þessi samanburður er því rangur og ósanngjarn og er bara gerður til að æra óstöðugan, valda uppsteit og ósætti.
https://www.nato.int/nato_static_fl2014 ... 104-en.pdf