Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.

Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf falcon1 » Sun 02. Mar 2025 12:10

Hvenær gaf þjóðin leyfi að falla frá friðarstefnunni og yfir í það að stunda brask með vopnakaup fyrir erlend ríki?

Ég held að meirihluta landsmanna finnist stjórnvöld hafa farið alltof langt í því að gerast beinir þáttakendur (með vopnakaupum) í stríðsbrölti annarra þjóða. Með þessu hafa stjórnvöld að sjálfsögðu sett meira skotmark á Ísland en þyrfti að vera.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Mar 2025 13:35

100% sammála síðasta!

Ég gæti ekki verið meira á móti þessu. Ekki bara er þetta þvert á allar stefnur um hlutleysi, heldur gerir þetta okkur beinlínis að skotmarki verði alvöru stríð í Evrópu. Svo hamast þetta lið við að lýsa því yfir að þetta sé vilji þjóðarinnar. Það væri fróðlegt að fá atkvæðagreiðslu um það. Ég er ekkert viss um að meirihluti þjóðarinnar vilji þetta.

Betlarinn frá Kíev var ekki lengi að fljúga til Bretlands og sníkja 400 milljarða ISK til vopnakaupa eftir að Trump henti honum út úr Hvíta húsinu. Það tók hann innan við sólarhring, örugglega besti sölumaður í heimi.
Augljóst er að hann vill ekki frið, því friður myndi þýða afléttingu herlaga og það þyrfti að kjósa upp á nýtt. Þar sem hann er ekki lengur kjörinn forseti heldur situr í skjóli herlaga, þá er ekkert víst að það myndi fara vel fyrir honum.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Sun 02. Mar 2025 14:12

Var eitthvað sérstakt að gerast eða koma fram?

Hefur Ísland ekki aðallega verið að styðja við mýkri mál og svo setja í sjóði sem önnur ríki hafa umsjón með?

https://www.stjornarradid.is/verkefni/u ... da/#helsta

Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf falcon1 » Sun 02. Mar 2025 14:35

Við erum t.d. að styrkja drónaframleiðslu skv. Þorgerði Katrínu, svo höfum við verið að kaupa skotfæri og vopn. Ég er algjörlega á móti slíku, að minnsta kosti að það sé gert án aðkomu þjóðarinnar. Þetta er stefnubreyting sem þarfnast samþykkist þjóðarinnar.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Mar 2025 14:57

falcon1 skrifaði:Við erum t.d. að styrkja drónaframleiðslu skv. Þorgerði Katrínu, svo höfum við verið að kaupa skotfæri og vopn. Ég er algjörlega á móti slíku, að minnsta kosti að það sé gert án aðkomu þjóðarinnar. Þetta er stefnubreyting sem þarfnast samþykkist þjóðarinnar.

Algjörlega!

BudIcer
Fiktari
Póstar: 94
Skráði sig: Fim 25. Sep 2008 13:03
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf BudIcer » Sun 02. Mar 2025 16:15

GuðjónR skrifaði:
Betlarinn frá Kíev var ekki lengi að fljúga til Bretlands og sníkja 400 milljarða ISK til vopnakaupa eftir að Trump henti honum út úr Hvíta húsinu. Það tók hann innan við sólarhring, örugglega besti sölumaður í heimi.
Augljóst er að hann vill ekki frið, því friður myndi þýða afléttingu herlaga og það þyrfti að kjósa upp á nýtt. Þar sem hann er ekki lengur kjörinn forseti heldur situr í skjóli herlaga, þá er ekkert víst að það myndi fara vel fyrir honum.

Er Kremlin áróður alveg búinn að grilla á þér hausinn? Úkraína hefði varla getað fengið betri leiðtoga en Zelenskyy, hann hefur staðið sig eins og hetja. Að kalla hann í hvíta húsið fyrir 'samningsviðræður' sem aldrei voru planaðar sem slíkar, að hóta honum engri aðstoð vegna þess að þessum tveimur wannabe 'leiðtogum' fannst Zelenskyy ekki segja takk nógu og oft, þvílíkur brandari. Þetta er svo langt frá því hvernig alvöru leiðtogar haga sér. Að halda því fram að Zelenskyy vilji ekki frið svo hann geti verið áfram við stjórn er fásinna, hvernig nákvæmlega á að halda kosningar á stríðstíma þegar stjórnarskráin þeirra leyfir það ekki? Á að taka hermenn af víglínum til að kjósa? Á að búa til kosningarstaði sem yrðu samstundis skotmörk rússa? Hvernig á að koma í veg fyrir að rússar næðu að koma einhverjum Pútín stuðningsmanni á seðil?

Ég er ekki að segja þér hvernig þú átt að hugsa, vertu bara betri.

Cpu Ryzen 3900 - Gpu Gigabyte RTX 2080 - MB Gigabyte X570 Aorus Ultra - Ram Kingston HyperX Predator RGB 32GB (4x8GB) DDR4 3600MHz - Psu Corsair AX1000 Titanium - Kæling Noctua NH-U12A

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Mar 2025 16:38

Gríðalega fær leiðtogi sem þráir frið...eða þannig.
Hann er örugglega jafn góður í hommamyndböndum og betli en þjóðarleiðtogi er hann ekki. Honum er skítsama þó hann dragi heiminn með sér í svaðið. Ég gjörsamlega fyrirlít þetta gerpi.

Og short video.
https://youtube.com/shorts/fnOBSiIPeLQ? ... _DU40GIcyq

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Sun 02. Mar 2025 17:19

falcon1 skrifaði:Við erum t.d. að styrkja drónaframleiðslu skv. Þorgerði Katrínu, svo höfum við verið að kaupa skotfæri og vopn. Ég er algjörlega á móti slíku, að minnsta kosti að það sé gert án aðkomu þjóðarinnar. Þetta er stefnubreyting sem þarfnast samþykkist þjóðarinnar.

Sammála, Ísland á að vera styðja við neyðaraðstoð til almennings í Úkraínu.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Sun 02. Mar 2025 17:24

GuðjónR skrifaði:Gríðalega fær leiðtogi sem þráir frið...eða þannig.
Hann er örugglega jafn góður í hommamyndböndum og betli en þjóðarleiðtogi er hann ekki. Honum er skítsama þó hann dragi heiminn með sér í svaðið. Ég gjörsamlega fyrirlít þetta gerpi.

Og short video.
https://youtube.com/shorts/fnOBSiIPeLQ? ... _DU40GIcyq

Mér finnst svo ótrúlegt að einhver sé á þessari skoðun.

Hvað er það sem maðurinn hefur gert til að verðskulda þessa fyrirlitiningu?

Ég spyr af einlægni, forvitni og áhuga, ég er virkilega undrandi og væri til að vita hvað það er sem hefru farið svona framhjá mér.

Þú þarft ekki að skrifa einhverja langa rullu, bara pósta hlekkjum á einhverjar trúverðugar heimildir sem fjalla um það sem hann á að hafa gert.

Ég get svo lesið það sjálfur eða horft/hlustað.

Skjámynd

ekkert
Ofur-Nörd
Póstar: 209
Skráði sig: Mán 05. Apr 2021 11:23
Reputation: 101
Staða: Tengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf ekkert » Sun 02. Mar 2025 17:40

Ekki lengur nýtsamlegt að kenna Biden fjölskyldunni um...
Ekki lengur sniðugt að kenna nýnasistum í Úkraínu um...
Ekki lengur gott að kenna bandaríkjunum og "NATO expansion" um...
Kennum bara Zelensky um innrásina!

AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Mar 2025 18:38

ekkert skrifaði:Ekki lengur nýtsamlegt að kenna Biden fjölskyldunni um...
Ekki lengur sniðugt að kenna nýnasistum í Úkraínu um...
Ekki lengur gott að kenna bandaríkjunum og "NATO expansion" um...
Kennum bara Zelensky um innrásina!

Auðvitað er það ekki Zelensky að kenna að innrásin átti sér stað, rætur þessa stríðs liggja mun dýpra og sumir rekja þær allt aftur til 1992. Það er óhætt að segja að stækkun Bandaríkjanna og NATO hafi átt stóran þátt í þessari þróun.

Þrátt fyrir það hafa verið mörg tækifæri undanfarin þrjú ár til að binda enda á stríðið. Mér finnst hins vegar augljóst að Zelensky hefur engan raunverulegan áhuga á því, enda hagnast hann á áframhaldandi átökum. Af hverju ætti hann að vilja stöðva stríð sem þjónar hans eigin hagsmunum?

Blaðamannafundurinn í Hvíta húsinu var hreint og klárt leikrit. Ég horfði á hann óklipptan í rúmar 50 mínútur og þetta var ekkert annað en sýndarmennska. Þessa pappíra hefði hæglega mátt undirrita rafrænt eða í bakherbergi og síðan halda stuttan fund þar sem menn hefðu brosað, faðmast og tilkynnt um frið. En það var augljóslega aldrei markmiðið.

Zelensky ranghvolfdi augunum, nuddaði nefið, gretti sig, byrsti sig og greip ítrekað fram í. Hann dró fram myndamöppu með myndefni af fólki sem rússar höfðu misþyrmt og drepið og sýndi Trump. Svo gerði hann lítið annað en að kalla Pútín morðingja, ekki sérlega diplómatískt þegar maður er að reyna að semja um frið. Lokaniðurstaðan var svo algerlega út úr kortinu þegar hann hótaði því að stríðið myndi að endingu berast til Bandaríkjanna.

Auðvitað má segja að Trump sé harðorður þegar hann vill eigna sér helming auðlinda Úkraínu, en hann er þó hreinskilinn um það. Ef það þýðir varanlegan frið í Úkraínu og Evrópu, er það þá ekki smávægilegt gjald fyrir stóran ávinning?

Orri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 951
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 184
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf Orri » Sun 02. Mar 2025 19:03

GuðjónR skrifaði:Þrátt fyrir það hafa verið mörg tækifæri undanfarin þrjú ár til að binda enda á stríðið.

Fyrir Zelensky og Úkraínu? Með því að gefa eftir landsvæði til Rússa?

Hvað værir þú til í að gefa mikið af Íslensku landsvæði til Rússa ef þeir væru að ráðast inn til Íslands? Myndirðu vilja að forseti Íslands myndi skrifa undir einhvern sturlaðan samning við Trump þar sem hann fengi íslenskar auðlindir í skiptum fyrir hernaðaraðstoð meðan væri verið að ráðast inn í landið okkar?

Restin af þvælunni að Zelensky hafi verið dónalegur í þessum sýndarleik Trump og JD Vance er varla svaravert. Landið hans er í miðju stríði og þeir sitja þarna og grenja yfir að hann hafi ekki þakkað nógu oft fyrir aðstoð Bandaríkjamanna? Sem hann hefur gert ítrekað. Gagnrýna svo að maðurinn sé ekki í jakkafötum meðan Elon Musk mætir í bol og derhúfu þangað alla daga.

Væri ekki bara best ef Trump, talsmaður friðar og góðvinur Putin, myndi binda enda á þetta stríð með því að biðja besta vin sinn um að hætta þessari innrás? Það er eitt að varla-læsir Bandaríkjamenn falli fyrir þessum hugarleikfimum sem Trump er að reyna að spila, en að Íslendingar skuli falla fyrir þessu er hreint út sagt ótrúlegt að mínu mati.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf GuðjónR » Sun 02. Mar 2025 19:33

Orri skrifaði:Hvað værir þú til í að gefa mikið af Íslensku landsvæði til Rússa ef þeir væru að ráðast inn til Íslands? Myndirðu vilja að forseti Íslands myndi skrifa undir einhvern sturlaðan samning við Trump þar sem hann fengi íslenskar auðlindir í skiptum fyrir hernaðaraðstoð meðan væri verið að ráðast inn í landið okkar?

Ef það væri spurning um það eða murka líftóruna úr okkur á er svarið já allan daginn.
Myndi ekki hika við að taka fiskinn af Samherja og láta Trump hafa hann ef það kæmi í veg fyrir útrýmingu okkar.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Sun 02. Mar 2025 20:22

GuðjónR skrifaði:
ekkert skrifaði:Ekki lengur nýtsamlegt að kenna Biden fjölskyldunni um...
Ekki lengur sniðugt að kenna nýnasistum í Úkraínu um...
Ekki lengur gott að kenna bandaríkjunum og "NATO expansion" um...
Kennum bara Zelensky um innrásina!

Auðvitað er það ekki Zelensky að kenna að innrásin átti sér stað, rætur þessa stríðs liggja mun dýpra og sumir rekja þær allt aftur til 1992. Það er óhætt að segja að stækkun Bandaríkjanna og NATO hafi átt stóran þátt í þessari þróun.

Þrátt fyrir það hafa verið mörg tækifæri undanfarin þrjú ár til að binda enda á stríðið. Mér finnst hins vegar augljóst að Zelensky hefur engan raunverulegan áhuga á því, enda hagnast hann á áframhaldandi átökum. Af hverju ætti hann að vilja stöðva stríð sem þjónar hans eigin hagsmunum?

Blaðamannafundurinn í Hvíta húsinu var hreint og klárt leikrit. Ég horfði á hann óklipptan í rúmar 50 mínútur og þetta var ekkert annað en sýndarmennska. Þessa pappíra hefði hæglega mátt undirrita rafrænt eða í bakherbergi og síðan halda stuttan fund þar sem menn hefðu brosað, faðmast og tilkynnt um frið. En það var augljóslega aldrei markmiðið.

Zelensky ranghvolfdi augunum, nuddaði nefið, gretti sig, byrsti sig og greip ítrekað fram í. Hann dró fram myndamöppu með myndefni af fólki sem rússar höfðu misþyrmt og drepið og sýndi Trump. Svo gerði hann lítið annað en að kalla Pútín morðingja, ekki sérlega diplómatískt þegar maður er að reyna að semja um frið. Lokaniðurstaðan var svo algerlega út úr kortinu þegar hann hótaði því að stríðið myndi að endingu berast til Bandaríkjanna.

Auðvitað má segja að Trump sé harðorður þegar hann vill eigna sér helming auðlinda Úkraínu, en hann er þó hreinskilinn um það. Ef það þýðir varanlegan frið í Úkraínu og Evrópu, er það þá ekki smávægilegt gjald fyrir stóran ávinning?

Var það á 11:50 sem allt fór í fokk?
Átti Z að taka þátt í lygi Trump um að Evrópa hefði stryrkt Úkraínu miklu minna en USA hefur gert?

Var það þegar Zelenzky var að mæra hann um 15:25?

Var það um 17:20 þegar Zelensky fékk ekki tækifæri tilað komast að til að svara spurningu sem vað beint til þeirra beggja?

Var það um 32:50 þegar Trump var að ljúga um ástandið í Úkraínu (líklega rugla því við Gaza).

34:15 - Þegar Trump talar um að þetta hafi verið hoax "russia russia russia hoax" frá Joe Biden?

35:00+ Þegar Trump, Rubio og JD halda því frm að ritskoðun sé svo mikil í UK (Thought crime) ?

Nei, það byrjaði 40:40 þegar Zelensky spyr JD um hvernig diplómacy hann ætlar að semja við Pútín eftir að Rússar hafa ítrekað brotið alla samninga...

JD var þá nýbúinn að segja að það væri ekki búið að reyna neina samningagerð, að nú væri kominn tími til að hætta að berja sér á brjóst og standa í stríði, að diplomacy hefði aldrei verið reynt...

Eftir það segir JD að Úkraína sé með "propaganda tour" fyrir þá sem koma til þeirra og að hann hafi séð "stories" um það...

Og í stað þess að leyfa Zelensky að svara þá kemur "You think it is respectful to come to the oval office and attack the administration?"

Zelensky róar og reynir að benda á að um allan heim finni fólk fyrir áhrifum stríðsins... en "You dont dictate what we feel" kemur frá Trump.

Og svo bara versnar þetta...

Eina fólkið sem fór algjörlega út af sporinu voru Trump og JD.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rostungurinn77 » Mán 03. Mar 2025 00:11

Since Russia's full-scale invasion of Ukraine in February 2022, combat and civilian losses have steadily climbed. Ukraine's President Volodymyr Zelensky said in February 2024 that 31,000 Ukrainian soldiers had been killed, though external estimates suggest the figure may be significantly higher. A confidential Ukrainian assessment earlier in 2024, reported by the Wall Street Journal, placed Ukrainian troop losses at 80,000 killed and 400,000 wounded.

https://www.newsweek.com/people-died-ca ... te-2033371

Það búa hvað 35 milljón manns í Úkraínu, eða bjuggu þar í upphafi stríðsins.

Núna er stríðið bara komið á þann stað að víglínan er bara ein stór kjötkvörn, víglínan hreyfist lítið sem ekkert of fórnaðurkostnaðurinn við hvern fermetra er gríðarlegur. Fannst ég sjá töluna 83 ár, um hvað tæki Rússa langan tíma að hertaka alla Úkraínu miðað við núverandi hraða.

Geta Úkraínumanna til þess að mata fóður í þá vél eykst ekki með tímanum og sögur af vaxandi fjölda liðhlaupa þeirra megin bendir bara til þess að Úkraínumanna bíði hörfun en ekki sókn.

Eiga Rússar að vera í Úkraínu? Nei

Verða þeir hraktir þaðan án þess að erlendir herir evrópuríkja eða BNA stígi fæti í Úkraínu? Mjög ólíklega.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf appel » Mán 03. Mar 2025 01:11

rostungurinn77 skrifaði:

41 milljón í upphafi stríðs. Sem er meira en fólksfjöldi Póllands. Ímyndaðu þér ef rússar hefðu ráðist inn í Pólland.

En þetta er hárrétt greining hjá þér. Á meðan evrópulönd halda bara fundi þá senda rússir lifandi lík á víglínuna til að berjast. Það er enginn vilji hjá evrópulöndum að senda hermenn á víglínuna.

Reyndar hef ég lengi spáð því að evrópuherir fari inn í úkraínu og inn á Kíev svæðið, en ekki austar en það.

Og fyndið að það þurfi Trump og hótun um að hætta stuðningi svo þessi helvítis evrópulönd komi sér saman um alvöru stuðning. Fyrrum heimsveldi öll sömul sem stjórnuðu plánetunni og geta ekki drullast til neins. Það að BNA þurfi eiginlega að skipta sér af þessu stríði er bara dómur á vangetu evrópskra ríkja sem hafa skorið rækilega undan sér.
Síðast breytt af appel á Mán 03. Mar 2025 01:12, breytt samtals 1 sinni.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Mán 03. Mar 2025 07:50

appel skrifaði:
41 milljón í upphafi stríðs. Sem er meira en fólksfjöldi Póllands. Ímyndaðu þér ef rússar hefðu ráðist inn í Pólland.

En þetta er hárrétt greining hjá þér. Á meðan evrópulönd halda bara fundi þá senda rússir lifandi lík á víglínuna til að berjast. Það er enginn vilji hjá evrópulöndum að senda hermenn á víglínuna.

Reyndar hef ég lengi spáð því að evrópuherir fari inn í úkraínu og inn á Kíev svæðið, en ekki austar en það.

Og fyndið að það þurfi Trump og hótun um að hætta stuðningi svo þessi helvítis evrópulönd komi sér saman um alvöru stuðning. Fyrrum heimsveldi öll sömul sem stjórnuðu plánetunni og geta ekki drullast til neins. Það að BNA þurfi eiginlega að skipta sér af þessu stríði er bara dómur á vangetu evrópskra ríkja sem hafa skorið rækilega undan sér.

Þau eru að stíga varlega til jarðar gegn kjarnorkuveldi.

Hefðir þú í alvöru kosið að fá WW3 á augabragði?

Það þurfti að gefa þessu tíma svo að önnur lönd gætu tekið upplýsta ákvörðun um hvern ætti að styðja og afhverju og gefa Kína, Íran ofl. tíma til að bakka frá Rússum, leyfa Rússum að átta sig á sinni stöðu og svo semja.

Af hverju heldur þú að Rússar séu að fagna svona svakalega núna?

Þeir voru komnir út í horn og einangraðir, nú er Trump allt í einu farinn að vinna vinnuna fyrir þá, að sundra bandamönnum Úkraínu.

Þeor voru orðnir örvæntingarfullir.

Nú fengu þeir örlitla von og það gerir framhaldið bara erfiðara... ekki auðveldara.

Trump var bara að lengja í þessu stríði því hann er stupid.

Til að setja þetta í samhengi við karaktera sem við þekkjum:

Í LOTR væri hann sko enginn Gandalfur (klár), hann er ekki Fróði (man on a mission), hann er ekki Sómi Gamban (hollusta og vinátta)... hann er Gollrir (spillt kvikindi sem skilur ekki eigin langanir)... og þegar hann fattar að hann var bara tool í höndum Sauron (Pútín) þá mun hann líklega self-destructa til að reyna bjarga vott af sjálfsvirðingu.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rostungurinn77 » Mán 03. Mar 2025 11:14

rapport skrifaði: Trump var bara að lengja í þessu stríði því hann er stupid

Lengja í því hvernig?

Heldur þú að Rússar frekar en Úkraínumenn séu í kapphlaupi við tímann.

Þetta er orðið að skotgrafarhernaði á víglínu sem hreyfist varla.

Rússar eru væntanlega búnir að teppaleggja sitt svæði í jarðsprengjum. Úkraínumenn hafa líklegast rétt svo mannaflann í að halda línunni. Ekki nóg til þess að sækja fram.

Úkraína glímir við mannfall og liðhlaup og sóaði auk þess mikilvægum mannafla í að hertaka Kúrsk í von um að draga rússa frá víglínunni, eitthvað sem rættist ekki.

Rússar eru kannski að missa tvöfalt eða þrefalt á við Úkraínu en á meðan möguleg herstærð er 10:1 þá munu þeir samt hafa betur ef ekkert breytist.

Er það skilningur margra að Rússar hafi verið að þrotum komnir?

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Mán 03. Mar 2025 11:28

Það er skilningur margra að samningsstaða Rússa sé sterkari núna en fyrir mánuði síðan af því að Trump skeit uppá bak með svokölluðum "digurbarkalegum yfirlýsingum" sem ég persónulega mundi kalla "kaldrifjaðar lygar" um hvernig þetta stríð hófst...

Og svo virðist hann hafa fallið í þá gryfju að tala við Rússa sem auðvitað vilja semja og hirða land af Úkraínu en hann er svo mikill samningakarl að hann fattaði ekki að það er miklu auðveldara að semja við Rússa sem hafa allt að græða...

Hann virðist ekki hafa fattað að það yrði erfitt að fá Úrkáinu til að semja af sér og svo fá Evrópu til að gúddera það.

Og þannig kom hann sér í mjög fyrirsjáanlega kreppu.

Verður hann Júdas sem flúði burt með peningana sína (ekki hermennina sína) eða verður hann melló og heldur áfram óbreyttum stuðningi eða fer hann all in?

Ég veðja á að hann ætli að "spara auriunn og kasta krónunni" eins og það kallast á góðri íslensku.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fjármögnun vopna erlendra ríkja

Pósturaf rapport » Lau 22. Mar 2025 09:01