Íslenskur her og herskylda

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.

Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Íslenskur her og herskylda

Pósturaf falcon1 » Mið 26. Feb 2025 14:30

Eru menn orðnir alveg galnir í hausnum? Við getum ekki einu sinni haldið úti Landhelgisgæslunni svo skammlaust sé!

https://www.visir.is/g/20252693792d/leg ... her-skyldu

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf GuðjónR » Mið 26. Feb 2025 15:24

Þetta er sturlun eins og svo margt annað. Fólki er stjórnað með hræðsluáróðri. Og gangrýnin hugsun er barin niður með upphrópunum.

Covid er gott dæmi. Úkraína er frábært dæmi, Pútin er vondur, við þurfum að dæla milljónum í hernað, núna er Trump vondur og þá þarf að hervæðast.

Flokkunarscamið, ekki svo langt síðan að sorphirðan kostaði 10k á ári, farin að nálgast 100k í dag.

Loftlags-scamið. Útrýma jarðefniseldsneytisbílum af því að þeir eru að setja heiminn á hliðina (segir einkaþotuliðið).
Þó eitt lítið eldgos mengi meira en allir bílarnir okkar í 100.000 ár.

Og hefur fólk kynnt sér samsetningu andrúmslofts?

  • Nitur (N₂) – Um 78% af andrúmsloftinu.
  • Súrefni (O₂) – Um 21%.
  • Argon (Ar) – Um 0,93%.
  • Koldíoxíð (CO₂) – Um 0,04%
  • Aðrar lofttegundir – Eins og neon, helíum, metan og krypton, í mjög litlu magni.

Koldíoxíð sem við erum að borga milljarða fyrir er 0,04%
Árið 1920 var Koldíoxíð (CO₂) – Um 0,03%
Við viljum ekki að þessi tala lækki.Plöntulíf treystir á Koldíoxíð (CO₂) við ljóstilífun

Niðurstaðan er, hræðsluáróður virkar.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf rapport » Mið 26. Feb 2025 16:59

Þetta er það sem Trump er að krefjast að lönd í Evrópu verji sig sjálf.

Þetta er sniðugt... og sanngjarnt... og eðlilegt... :guy

Það er bara stupid að útvista þessu til annarra landa sem eru með her, sérstaklega landa sem segjast hugsanlega ekki ætla standa við gerða samninga sbr. USA/Trump og 5.gr NATO.

Ef við getum ekki treyst USA, hverjum getum við treyst.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf appel » Mið 26. Feb 2025 17:10

rapport skrifaði:Þetta er það sem Trump er að krefjast að lönd í Evrópu verji sig sjálf.

Þetta er sniðugt... og sanngjarnt... og eðlilegt... :guy

Það er bara stupid að útvista þessu til annarra landa sem eru með her, sérstaklega landa sem segjast hugsanlega ekki ætla standa við gerða samninga sbr. USA/Trump og 5.gr NATO.

Ef við getum ekki treyst USA, hverjum getum við treyst.

Nató er enn gilt, þetta er lögformlegur treaty sem þing landanna eru búin að samþykkja, og löndin þá "treaty bound" skv honum. Svo náttúrulega er spurning þegar á hólminn er komið hvort lönd komi hvort öðru til bjargar, þau gætu svikið það vegna eigin ástæðna.

En Ísland er búið að njóta verndar BNA frá seinna stríði, en mjög margir sem kunna ekki að vera þakklátir fyrir það, finnst það bara liggur við mannréttindi að BNA haldi áfram að verja Ísland og allir bölsótast út í Trump. Finnst það vera bara hroki, vanþakklæti og svona "entitlement" hugsunarháttur. BNA byggðu þetta land upp nánast, komu því inn í nútímann, en mjög fáir í dag þakka fyrir það eða kunna að meta það.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf rapport » Mið 26. Feb 2025 18:54

appel skrifaði:

BNA notaði nú líka Ísland sér til framdráttar og hagsmunir beggja fóru saman.

En æðsti yfirmaður herafla USA er búinn að gefa öðrum í NATO tilefni til að efast um að hægt sé að treysta á USA þegar neyð ber að garði.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf appel » Mið 26. Feb 2025 20:55

rapport skrifaði:

Ísland fékk svakalegt á móti, miklu meira en margir geta ímyndað sér. Saga viðveru bandaríkjahers hér frá seinni heimsstyrjöld, í gegnum kaldastríðið og svo að því loknu, er alveg verðugt rannsóknarefni og væri áhugavert ef RÚV myndi taka þetta saman, hverskonar breytingar á samfélaginu urðu með komu bandaríkjahers hér. Eiginlega alveg sama hvar er stigið niður fætinum, bandaríkjaher kom að því.

Flugið
Flugvöllurinn í Keflavík, og bygging Leifsstöðvar sem var gjöf Bandaríkjanna til íslendinga.
Auk þess að veita okkur heimildir til að fljúga til Bandaríkjanna, láta okkur í té flugvélar, og þjálfa flugmenn. Bandaríkin komu með flugið til Íslands.
Þó bretar hafi lagt reykjavíkurflugvöll upphaflega þá voru það bandaríkjamenn sem tóku við honum og breyttu í betri flugvöll, t.d. með steinsteyptum flugbrautum. Svo auðvitað að byggja keflavíkurflugvöll.

Vega og brúarsmíði. Þeir áttu t.d. þátt í viðhaldi brúarinnar yfir Ölfusá og öðrum lykilbrúm.

Ásamt því að byggja upp og bæta hafnir á Suðurnesjum og víðar fyrir skip og birgðaflutninga.

Svo jú uppbygging raforkuinnviða á suðurnesjum.

Svo lagði bandaríkjaher ljósleiðarastrenginn sem liggur hringinn í kringum landið.

Svo hjálpuðu bandaríkin íslenskum bændum að tæknivæðast, með traktorum og ýmislegum nútímalegri landbúnaðarvélum, ásamt bætta fóðurframleiðslu og öðrum háttum. Bændur svo sendir til bandaríkjanna í skóla að læra á þetta allt saman.

Svo jú fyrstu útvarpsútsendingar hér með tónlist og slíku, sem leiddi til þrýstings um stofnun RÚV og íslenskra útvarpssendinga.

Alveg sama liggur við hvar er stigið niður í fætinum í sögu íslendinga frá seinni heimsstyrjöld, hér hefði lítið gerst nema fyrir framlag bandaríkjanna til að ýta hlutunum áfram.

Allan þann tíma sem BNA voru hér þá streymdu bandaríkjadollarar, gjaldeyrir, inn í landið sem var gríðarlega mikil búbót fyrir landið. Þegar herinn fór 2005 þá misstum við líklega 100 milljón dollara inn í landið í gjaldeyri á hverju ári, en sem betur fer var búið að byggja upp útflutningsgreinar hér einsog áliðnað.

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskur her og herskylda

Pósturaf rapport » Fim 27. Feb 2025 08:30

Þú ert að vitna í Marshall áætlunina - https://is.wikipedia.org/wiki/Marshall% ... 3%A6tlunin

Um 20% af aðstoðinni til Íslands var lán sbr. https://en.wikipedia.org/wiki/Marshall_Plan

Á þessum tíma eftir WW2 þá held ég að fólk sem bauð sig fram í stjórnmálum hafi skilið inn að beini hvers virði friður og velsæld er.

Þau þekktu án efa öll einhvern sem hafði látist í stríðinu, þau höfðu öll heyrt sögur um viðbjóðinn sem viðgekkst í stríðinu og hugsanlega upplifað hann á eigin skinni á marga vegu.

Fólk þessa tíma hafði jafnvel lifað að sjá afleiðingar WW1 þar sem efnavopnum og jafnvel sýklavonum var beitt.

Á þessum tíma var forseti USA (og ameríska þjóðin) með það á samviskunni að hafa með tveimur sprengjum drepið yfir 100.000 almenna borgara og nánast þurrkað út borgirnar sem fólkið bjó í og kavalafullan dauðdaga þeim sem lifðu sprenginguna sjálfa.

Þetta eru aðstæður sem heimurinn ætti að forðast og hreinlega mundi maður vilja sjá þing UN yfirheyra alla stjórnmálamenn sem samþykkja og hvetja til stríðsreksturs, að þeir útskýri af hverju þeir haldi að herinn sé bara tölur í excel en ekki manneskjur.

Að sama skapi þá veit ég líka að heimurinn er ekki svona einfaldur...

Hugsjónin og skilningurinn sem var að baki samvinnu og samstarfi á alþjóðavísu virðist vera gufa upp og fólk virðist vera falla í þá gryfju að halda að það geti haft það betra ef einhver annar hafi það verra... því að hinn hafi það gott á þeirra kostnað...

Það er ekkert fast eða augljóst samband á milli "virðis" sem útgjöld skapa og "kostnaðar".

Dæmi frá 1990: https://www.youtube.com/watch?v=6KcoPODwvW4

Í stjórnmálum dagsins í dag virðist sem að ríkjum sem ekki hegnt nægilega fyrir að trufla friðinn og þar má setja USA ofarlega á blað.

USA deilir sínum heimshluta með Canada og Mexico en er svo að pikka fight út um allan heim.

Við erum að uppskera ein sog við sáum, við virðumst hafa gert samning við einhvern bully um að koma að hjálpa okkur ef lendum í örðum bully.