Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf GuðjónR » Mið 26. Feb 2025 11:45

Íslenskir jólarsveinar dreifa peningum sem ekki eru til á meðan innviðir okkar eru í molum.
Þjóðvegir, heilsugæsla og borgin á hausnum svo eitthvað sé nefnt.

Vonandi hafði hún vit á að gera eins og Trump og taka veð í náttúruauðlindum þeirra því ríkissjóður er í mínus sem þýðir að við þurfum að fjármagna þetta með lánsfé.

P.S. Umdeilda kílómetragjaldið skilaði 2 milljörðum á síðasta ári, svona til að setja 3.600.000.000 í samhengi.
Viðhengi
IMG_2800.jpeg
IMG_2800.jpeg (456.64 KiB) Skoðað 992 sinnum



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf rapport » Mið 26. Feb 2025 12:05

Sé ekkert að því að styðja við Úrkaínu.

Það er náttúrulega ekki satt að upphæðin hafi verið millifærð...

Ísland gerir eins og aðrar þjóðir semur við sína birgja um ýmiskonar vöru- og þjónustukaup.

Þegar við segjumst ætla að kaupa bara fyrir okkur þá fáum við 10% afslátt en ef við segjumst ætla kaupa fyrir okkur og Úkráinu þá fáum við 15% afslátt en kaupum fyrir 20% meira... eða komumst í ný veðrmæt viðskiptasömbönd eða notum innlenda þjónustu, framleiðslu eða bara flutninagmiðlun.

Fyrir vikið þá getum við sagt að andvirði aðstoðarinnar sé 3,6 miljarðar.... en bein útgjöld voru hugsanlega miklu lægri og jafnvel er íslenskt samfélag að koma út í plús... líkt og USA sem eru að mokgræða á þessu stríði, sama hvað Trump segir.

Persónulega þá hugsa ég "fáfræði og fordómar" þegar ég sé fólk vera pósta einhverju svona á internetinu því ég fæ það á tilfinninguna að fólk hafi bara ekki viljað hugsa þetta skrefinu lengra.

Fólk sem fer í Costco á að vita að "buying in bulk" er hagstæðara, annað hvort er það ódýrara eða fólk borgar svipað verð in the long run en fær meiri gæði.

Hversu mikið af þessum 3.600.000.000 kr. ætli hafi farið í vinu opinberra aðila sem voru hvort sem er að launum?

Hversu mikið ætli hafi farið í vörur og þjónustu innanalnds?

Hvað ætli sitji svo eftir af reynslu, þekkingu og viðskiptasömböndum fyrir íslenskt samfélag að hagnast á í framtíðinni?

+ þetta fer í málefni sem er gott, að verja úrkaínsk heimili og úkraínskt fólk frá innrásarher Rússa.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf GuðjónR » Mið 26. Feb 2025 13:05

Ég veit að fjárstuðningur Bandaríkjanna hagnast þeim mest sjálfum. Þeir veita fé sem fer beint til vopnaframleiðenda, þar sem þeir geta send gömul og úreld vopn frá lagerum sínum og nýtt peningana til að þróa ný vopn og endurnýja eigin vopnabúr. Það sem meira er, þá eru þeir að tryggja sér yfirráð yfir náttúruauðlindum Úkraínumanna, sem metnar eru á yfir 13 trilljarða dollara.

Á meðan eru trúðarnir í Evrópu að henda peningum í Úkraínu án nokkurra trygginga á endurgreiðslu. Ef ég skildi Macron rétt, þá er hann að vonast til að Evrópusambandið fái eitthvað af þeim fjármunum sem eru í eigu Rússa og voru frystir, en það er bara blautur draumur. Þetta er að verða jafn bjánalegt allt saman og plasttapparnir.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf rapport » Mið 26. Feb 2025 16:55

Mér finnst það sem USA er að gera siðlaust, að reyna að taka einhverskonar veð í náttúruauðlindum Úkraínu til að tryggja sig.

Þetta hljómar bara eins og Tesla hangi á hnetunum hans Trumps um að hann tryggi battarýsverksmiðjunni þeirra nægt hráefni í framtíðinni.

Þetta eru ekki alþjóðaviðskipti, þetta er kúgun.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf appel » Mið 26. Feb 2025 21:32

rapport skrifaði:Mér finnst það sem USA er að gera siðlaust, að reyna að taka einhverskonar veð í náttúruauðlindum Úkraínu til að tryggja sig.

Þetta hljómar bara eins og Tesla hangi á hnetunum hans Trumps um að hann tryggi battarýsverksmiðjunni þeirra nægt hráefni í framtíðinni.

Þetta eru ekki alþjóðaviðskipti, þetta er kúgun.


Tja, svona stunda lönd viðskipti.

Í seinni heimsstyrjöldinni var svokallað "land-lease program" stundað, Bandaríkin aðallega lánuðu t.d. Bretlandi, Sóvétríkjunun, Kína og öðrum.

Þetta var nærri $1 trilljón dollarar leiðrétt fyrir verðbólgu.

Það voru vextir á þessu, og mörg lönd einsog Bretland og Rússland kláruðu ekki að borga fyrr en 2005 og 2006.

Ekki tíðkast bara að gefa peninga, heldur oftast er lánað, og stundum seinna er lánið fyrirgefið, en sumir borga það.


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Gjafmildir íslenskir jólasveinar

Pósturaf rapport » Fim 27. Feb 2025 08:43

appel skrifaði:
rapport skrifaði:Mér finnst það sem USA er að gera siðlaust, að reyna að taka einhverskonar veð í náttúruauðlindum Úkraínu til að tryggja sig.

Þetta hljómar bara eins og Tesla hangi á hnetunum hans Trumps um að hann tryggi battarýsverksmiðjunni þeirra nægt hráefni í framtíðinni.

Þetta eru ekki alþjóðaviðskipti, þetta er kúgun.


Tja, svona stunda lönd viðskipti.

Í seinni heimsstyrjöldinni var svokallað "land-lease program" stundað, Bandaríkin aðallega lánuðu t.d. Bretlandi, Sóvétríkjunun, Kína og öðrum.

Þetta var nærri $1 trilljón dollarar leiðrétt fyrir verðbólgu.

Það voru vextir á þessu, og mörg lönd einsog Bretland og Rússland kláruðu ekki að borga fyrr en 2005 og 2006.

Ekki tíðkast bara að gefa peninga, heldur oftast er lánað, og stundum seinna er lánið fyrirgefið, en sumir borga það.



Biden kom þessu á, þetta er hugsað til að stjórnvöld geti með auðveldari hætti samþykkt og veitt aðstoð.

Þetta er "programmið" sem Trump virðist ekki skilja.

https://en.wikipedia.org/wiki/Ukraine_D ... ct_of_2022

Það sem Trump er svo að gera með offorsi núna er "reverse lend lease" sem var gert eftir WW2 og er með algjöran fókus á að komast í auðlindir sem henta fyrirtækjum Musk.

Er ekki siðlaust að fara semja um endurgreiðslur í miðju stríði, fyrst þarf að ljúka stríðinu og svo er samið um greiðslur, styrki o.s.frv.