Eg hef nylega komist að þvi að það eru frekar margir virusar a tölvunni. Að mestu leyti Trojanar og svona. Svo veti eg einnig af Sonebot-B Orminum. Eg þarf hjalp við að fjarlægja þennan andskota þvi eg virðist ekki geta gert neitt með venjulegum virusvörnum.
Þetta er að pirra mig mjog mikið, og bið eg ykkur um hjalp. Eg get ekki startað i safe mode þvi þa corruptast einhver fæll og eg þarf að reformatta

Sorry fyrir skort a upplysingum, en eg þarf að flyta mer aður en þessi restart virus restartar tölvunni aftur

Edit: Jæja, er kominn í aðra tölvu, þannig að nú skal ég skýra betur frá máli mínu.
Helsta vandamálið akkúrat núna er það að eftir að hafa verið með kveikt á tölvunni í um 3 mínútur, þá hreinlega restartar hún sér alveg sjálfkrafa. Það er alveg á hreinu að þetta sé ekki hitavandamál vegna þess að hitinn á örgjörvanum er um 45°C þegar hún gerir þetta. Einnig er hún ekki undir neinu álagi vegna leikja eða einhverra annara forrita.
Annað vandamál er það að ég er með endalausa aðra vírusa sem ég losna bara ekkert við! Flestir af þeim eru trojanar, en svo er ég líka með Sonebot-B orminn á systeminu. Ég er alveg uppiskroppa með hugmyndir um hvernig ég ætti að fjarlægja þetta! Er búinn að reyna fullt af vírusvörnum, spyware scan o.s.frv.
Þriðja vandamálið er það að ef ég starta upp í Safe Mode, þá gengur allt vel, en þegar ég reyni að starta aftur venjulega þá get ég það ekki. Það kemur bara þegar hún startar sér að það er einhver fæll sem er missing eða corrupted eða eitthvað, sem neyðir mig á endanum að reformatta vélina.
Áður en það er hægt að gera eitthvað við öllu þessu, þá verð ég að losna við þetta endalausa restart. Ég er með mikið af gögnum inni á tölvunni sem ég vil alls ekki missa, eða að einhverju leyti hætta á það að missa. Það er það sem er að hindra mig í að hreinlega reformatta, en ég myndi og mun gera það ef ég get fengið nægann tíma milli restarta til að skrifa allt sem ég vil ekki missa á diska.
Vona að ég hafi skýrt nógu vel frá þessu. Þakka alla hjálp sem ég fæ.