Vinn í þessum bransa og það er margt sem þarf að skoða og þess vegna hefur ekkert verið gert. Skrifa nokkra punkta.
1. Á að byggja eina stóra brennslu fyrir allt landið eða eina fyrir höfuðborgarsvæðið + nágrenni og aðrar minni út á landi. Enginn getur verið sammála með þetta. En minni brennslur eru alltaf að verða betri og ódýrari.
2. Ekkert sveitarfélag vill hafa sorpbrennslu en öll sveitarfélög vilja sorpbrennslu yfir höfuð.
3. Orkuþörf erlendis er meiri en á Íslandi og sum skip sigla tóm til baka sem gerir ''kolefnissporið'' ekki það slæmt + kolefnissporið við að framleiða orku erlendis. Hvað kostar kw frá brennslu vs kg af sorpi sent út. Í framtíðinni mun þetta alltaf líta betur út að framleiða orkuna á Íslandi.
4. Flest öll útboð sem gefin eru út varðandi sorphirðu hjá sveitarfélögum, ríkinu o.s.fr. þá á verkkaupi sorpið sem er tekið. Til þess að svona stöð borgi sig þyrfti flest allt sorp sem sótt er fara í stöðina. Það þyrfti að fara byrja uppfæra útboðsgögn um þetta ef það á að byrja byggja stöðina því lengd útboða er vanalega 5 ár.
5. Hver á að borga fyrir stöðina, hver mun eiga hana og sjá um að rukka inn, viðhald o.s.fr.
Annars mjög spennandi verkefni sem ég vona að við gerum einn daginn.
Pæling dagsins - Sorpbrennsla
-
- 1+1=10
- Póstar: 1191
- Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
- Reputation: 170
- Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
- Staða: Ótengdur
Re: Pæling dagsins - Sorpbrennsla
Ryzen 7 9800X3D// Geforce RTX 5080 // 2x 2TB M.2 // Be Quiet Dark Power Pro 13 1600W // G.Skill 96GB Ripjaws M5 RGB Black 6400 // ASRock X870E Taichi Lite ATX AM5 // Samsung Odyssey Neo G8 32'' 4K 240Hz
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
My CPU's Hot But My Core Runs Cold
Re: Pæling dagsins - Sorpbrennsla
Fínt að planta einni svona sorpbrennslu á Bolungarvík, þá getur Landsnet hætt með varaaflsvélarnar sína sem eru þar og umhverfissinnar hætt að væla þegar þessar vélar eru settar í gang. Lítið mál að sigla með sorpið vestur, Eimskip siglir hringinn í kringum landið í hverri viku hvort eð er. Að auki myndi svona stöð stuðla að stórauknu raforkuöryggi á norðanverðum Vestfjörðum.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1081
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Reputation: 220
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Pæling dagsins - Sorpbrennsla
Er ekki sorpbrennslustöð í Keflavík ?
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video