Stenst þetta, eða er þetta bara auglýsingatrix?
Sjö ára ábyrgð á einhverju kínversku noname-merki, EPOQ.
Ég þurfti sjálfur að fara með augljósan galla í rúmlega þriggja ára og 500+ þúsund króna „hágæða“ LG-sjónvarpi fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, þar sem þeir neituðu að viðurkenna gallann og héldu fram að einungis væri tveggja ára ábyrgð á tækinu.
Auðvitað töpuðu þeir málinu, en þessi leiðindi tóku hálft ár og kostuðu mig mikla skriffinsku og vinnu.
Á fólk bara að treysta þessu? Ég efast um að þetta EPOQ dót þeirra endist í sjö ár. Hvað ætla þeir þá að gera? Taka sama snúning og þeir reyndu á mér, halda því fram að tækin séu vitlaust eða of mikið notuð?
ELKO með 7 ára ábyrgð?
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1045
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
- Reputation: 137
- Staða: Ótengdur
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
Þetta er white-label vörumerki sbr það sem Ikea er að gera með sín raftæki. Virðist hafa verið stofnað 2007 skv. fjárfestasíðu Elkjøp Nordic.
Mjög líklegt er að þetta komi úr sömu verksmiðju og önnur þekktari vörumerki (sem dæmi þá framleiðir Midea stóran hluta af öllum örbylgjuofnum í heiminum - eini munurinn er útlitið og vörumerkið sem er sett á).
Mjög líklegt er að þetta komi úr sömu verksmiðju og önnur þekktari vörumerki (sem dæmi þá framleiðir Midea stóran hluta af öllum örbylgjuofnum í heiminum - eini munurinn er útlitið og vörumerkið sem er sett á).
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
Ég get ekki betur séð en að þetta merki Epoq sé í eigu Elkjøp(Elko) og er þeirra merki, þar sem Elkjøp virðist vera í eigu breska fyrirtækisins Currys er framleiðsla væntanlega undir þeim, fékk það ekki staðfest samt.
Cpu Ryzen 3900 - Gpu Gigabyte RTX 2080 - MB Gigabyte X570 Aorus Ultra - Ram Kingston HyperX Predator RGB 32GB (4x8GB) DDR4 3600MHz - Psu Corsair AX1000 Titanium - Kæling Noctua NH-U12A
-
- Græningi
- Póstar: 31
- Skráði sig: Þri 12. Nóv 2024 22:04
- Reputation: 0
- Staðsetning: RKV
- Staða: Ótengdur
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
I've bought a washing machine from EPOQ at ELKO and asked about this warranty - ELKO gives standard 2 year warranty or 1 year warranty if bought on company, another 5 years are just producer warranty and they're responsible for it using contact form on their website.
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
Þeirra eigið White Label merki sem þeir hafa greinilega fulla trú á og ef eitthvað bilað þá eru þeir væntanlega sjálfir með ódýra varahlutakeðju til þess að standa við þessi 7 ár.
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
Var að kaupa, Epoq þvottavél í dag hjá Elko
Svo er bara að bíða og vona að hún standi sig, ef ekki, þá fá þeir hana í hausinn.

Svo er bara að bíða og vona að hún standi sig, ef ekki, þá fá þeir hana í hausinn.
P4 @ 1,5 GHz | Msi 845 Pro Socket 423 | 2x256Mb og 1x512Mb@ 133MHz | Nvidia GeForce4 MX 420 64 MB | Samsung SP1614N| Sennheiser HD430 | Logitech Cordless Desktop Pro og Mouse Man|Win XP Pro |Sampo 19" |
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1597
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Reputation: 139
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: ELKO með 7 ára ábyrgð?
Það eru allir að framleiða fyrir alla. AEG er í eigu og framleitt af Electrolux. Ikea tækin eru Whirlpool og Electrolux.
Vörur eru bara framleiddar ódýrt í dag og kannski eina high end merkið sem lifir er Miele og þú borgar eftir því. Ég meina, hver vill ekki borga 499þ fyrir Miele þvottavél? Þvotturinn hlýtur að verða hreinni fyrir svoleiðis pening.
Annars er ég í dag með Epoq kæliskáp og uppþvottavél og líkar bara skrambi vel við.

Have spacesuit. Will travel.