Trúir þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Allt utan efnis

Fóru Bandaríkjamenn til Tunglsins fyrir 56árum?

106
82%
Nei
19
15%
Veit ekki, get ekki valið.
4
3%
 
Samtals atkvæði: 129

Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Þri 21. Jan 2025 21:02

Black skrifaði:Já, en samt myndi það ekki koma mér á óvart ef síðar kæmi í ljós að þetta hafi verið falsað.

Ég hef velt því fyrir mér hvort geimferðin hafi verið raunveruleg en að myndatökurnar og útsendingarnar hafi verið sviðsettar.

Kannski gerðu þeir þetta þannig að allt virtist ótrúlega flott, en í raun hafi þeir bara rétt svo komist lífs af. Það væri svo ekki endurtekið fyrr en tæknin væri orðin mun þróaðri.


Það var mikill þrýstingur á að gera eitthvað, sem var ógerlegt.



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1191
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 170
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf g0tlife » Þri 21. Jan 2025 21:02

Ég ákvað að spurja vin minn hann ChatGPT

Each Apollo moon landing was an immense undertaking that involved tens of thousands of people across various organizations, including NASA, contractors, suppliers, and support personnel. While exact figures vary for each mission, estimates suggest the following:
Overall Estimates for Each Moon Landing Mission:

NASA Personnel:
Around 400,000 people worked on the Apollo program at its peak. This includes engineers, scientists, administrators, mission planners, and support staff from NASA centers such as:
Kennedy Space Center (Launch operations)
Johnson Space Center (Mission Control in Houston)
Marshall Space Flight Center (Rocket development)

Contractors and Industry Partners:
Major aerospace companies like North American Aviation (later Rockwell), Boeing, Grumman, and IBM contributed significantly to spacecraft, rocket components, and computing systems.
It's estimated that 200,000–250,000 people were involved in design, manufacturing, and testing of equipment such as the Saturn V rocket, lunar modules, and command modules.

Mission Control and Flight Operations:
Approximately 15,000–20,000 people were directly involved in mission control, tracking, and communication during each mission.
The Mission Control Center in Houston had around 500 personnel working in shifts during each lunar landing.

Launch Operations:
At Kennedy Space Center, around 17,000 workers were involved in the preparation, assembly, and launch of each Saturn V rocket.

Astronaut Training and Support Teams:
Each mission involved hundreds of support personnel focused on astronaut training, life support systems, and contingency planning.

Logistics and Ground Support:
Thousands of logistics personnel, contractors, and suppliers provided food, transport, and materials needed for mission success.

Estimated Total for Each Mission:

Combining all efforts across various agencies, contractors, and support roles, each Apollo moon landing likely involved between 300,000 and 400,000 people in some capacity.


Ryzen 7 9800X3D// Geforce RTX 5080 // 2x 2TB M.2 // Be Quiet Dark Power Pro 13 1600W // G.Skill 96GB Ripjaws M5 RGB Black 6400 // ASRock X870E Taichi Lite ATX AM5 // Samsung Odyssey Neo G8 32'' 4K 240Hz

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Hrotti » Þri 21. Jan 2025 22:59

Manni eiginlega fallast hendur að þetta sé umræðuefni 2025 ](*,)


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2515
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 242
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf GullMoli » Mið 22. Jan 2025 00:29

Hrotti skrifaði:Manni eiginlega fallast hendur að þetta sé umræðuefni 2025 ](*,)


Svo mikið.. en hef einmitt fengið vafasamar spurningar frá ættingjum sem hanga allan daginn á Facebook og Youtube í elli árum sínum og fá á endanum þvælu beint í æð.


Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"


Hausinn
FanBoy
Póstar: 750
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 167
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Hausinn » Mið 22. Jan 2025 08:23

GullMoli skrifaði:
Hrotti skrifaði:Manni eiginlega fallast hendur að þetta sé umræðuefni 2025 ](*,)


Svo mikið.. en hef einmitt fengið vafasamar spurningar frá ættingjum sem hanga allan daginn á Facebook og Youtube í elli árum sínum og fá á endanum þvælu beint í æð.

Hvert skipti sem ég fæ lánaða fartölvu pabba míns þegar ég heimsæki þau er Youtube síðan hans stútfull af einhverjum pólítiskum grifting myndböndum. Gjörsamlega ömurlegt ástand sem samfélagsmiðlar eru komnir í og það virðist bara versna. :dontpressthatbutton



Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 851
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf jericho » Mið 22. Jan 2025 08:31

Ætli jörðin sé í raun og veru flöt? Ég meina think about it.... /s



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1081
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 220
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Jón Ragnar » Mið 22. Jan 2025 08:51

Langar að heyra álit þessara 14 sem svöruðu nei yfir hver þeirra röksemdarfærsla er :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video


KristinnK
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf KristinnK » Mið 22. Jan 2025 09:09

Nú horfði ég að stóran hluta þessa myndbands um tunglið, og mig langar að útskýra tvö stærstu atriðin sem höfundur myndbandsins notar til þess að færa rök fyrir því að mönnuð geimför hafi ekki náð til tunglsins.

1. Hann sýnir myndir þar sem hlutir í skugga eru engu að síður sýnilegir á myndunum, á meðan yfirborð tunglsins er koldimm. Útskýringin fyrir því er mjög einföld. Yfirborð tunglsins endurvarpar ljósi. Birtan af tunglinu lýs upp hlutina sem eru í skugga. En endurskinið af yfirborði tunglsins lýs ekki upp þann hluta yfirborðsins sem er í skugga, og er það því koldimmt. Það fyndna er að útskýringin sem hann stingur upp á, sviðsljós, myndu hins vegar líka lýsa upp yfirborðs tunglsins ekkert síður en hlutina á yfirborði þess, og það myndi ekki vera koldimmt á myndunum. Þannig þetta er í raun sönnurgagn um hið gagnstæða við það sem höfundur myndbandsins heldur fram.

2. Hann talar um Van Allen beltið, en í staðinn fyrir að tala um það hversu háan geislaskammt einstaklingar verða fyrir þar, talar hann í staðinn um orkugildi eindanna. Það skiptir auðvitað líka máli upp á það hvernig eindirnar hegða sér þegar þær víxlverka við líkamann, en það sem skiptir langmestu máli er það hversu hár geislaskammturinn er, þ.e. hversu miklu geislun líkaminn verður fyrir. Og geislaskammturinn er raunar mjög lágur. Samkvæmt þessum útreikningi um 14 rad. Það er innan við einn tíundi af bráðhættulegum geislaskammti, og geimfarið skýlir geimförunum fyrir einhverjum hluta geislunarinnar. Það er sannarlega hár geislaskammtur, en það hefði ekki haft áhrif á ferð til tunglsins.

Almennt þá virðist þessi maður þjást af því sem Georg Bjarnfreðarson myndi kalla meðalgreind, sem væri eitt og sér ekki neinum til ama, nema því hann virðist halda að hann búi yfir meiri greind en sem því nemur, og vill draga ályktanir um málefni sem hann einfaldlega hefur ekki skilning til.


AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580

Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Moldvarpan » Mið 22. Jan 2025 10:51

Þetta er búinn að vera æðislegur þráður. Skemmti mér mikið.




Peacock12
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Fim 17. Des 2020 13:25
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Peacock12 » Mið 22. Jan 2025 16:21

"Almennt þá virðist þessi maður þjást af því sem Georg Bjarnfreðarson myndi kalla meðalgreind"


Tölfræðilega þá óskar annar hver maður eftir að hafa amk meðalgreind...



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf GuðjónR » Mið 22. Jan 2025 18:18

Jón Ragnar skrifaði:Hvaða rök hafa menn fyrir að við fórum EKKI?

Það eru til myndir af landernum á yfirborði tunglsins :)

Hér er ein sem sannar þetta.
Viðhengi
A7FE9D91-E13E-4840-8F58-C1508A95C0AD.png
A7FE9D91-E13E-4840-8F58-C1508A95C0AD.png (2.26 MiB) Skoðað 2158 sinnum



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 746
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 49
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf gRIMwORLD » Mið 22. Jan 2025 21:46

Tæknin á þessum tíma var kannski frumstæð miðað við í dag en gleymum ekki að Voyager gervitunglin eru enn í gangi og vísindamenn enn að fá skilaboð frá þeim núna 48 árum síðar.

Mér finnst alltaf fyndnast, þegar talið berst að fyrstu sjónvarpsútsendingunni, menn kvarta yfir því hvað gæðin voru léleg. Eina stöðin sem gat móttekið "góða" útsendingu frá tunglinu var staðsett í Ástralíu, svo var útsendingin sjálf í allt öðru formati en sjónvörp og myndatökuvélar á jörðinni voru með og engin tækni til, til að umbreyta útsendingunni live. Studíóvél var því beint á lítinn skjá sem var með beinu útsendingunni frá tunglinu og þannig gátu þeir komið henni út um allan heim.

https://www.popsci.com/how-nasa-broadcast-neil-armstrong-live-from-moon/


IBM PS/2 8086

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Tengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf appel » Mið 22. Jan 2025 22:34

BNA lentu mönnum 5 sinnum á tunglinum. Menn einblína alltaf á þessa fyrstu lendingu, en pæla svo ekkert í seinni fjórum lendingunum.
Nóg af vísindalegum sönnunum, búnaði á tunglinu, för eftir rovera, etc etc. Ekkert land, Rússland/Sóvétríkin né Kína hafa efast um þetta.

En merkilegt að menn voru að keyra "bílum" á tunglinu fyrir 56 árum síðan, en svo gerist ekkert meira. Bara einstaka lendingar hinna og þessa með litla róbóta. En hvað mannkyninu hefur hnignað á ákveðinn hátt.

Reyndar er geimurinn mjög hostile manninum, og líklega munum við aldrei verða að "space faring civilization".


*-*

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2276
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 181
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf kizi86 » Mið 22. Jan 2025 23:24

appel skrifaði:.. En hvað mannkyninu hefur hnignað á ákveðinn hátt.

metnaður og áherslur færðust innar og nær en tunglið og mars. get ekki sagt að það hafi verið hnignun á þann hátt, mannkynið hefur jú svo sannarlega hnignað mikið, en að segja það vera hnignun að senda bara litla rovera?...


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 746
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 49
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf gRIMwORLD » Fim 23. Jan 2025 12:10

Þetta hefur ekkert að gera með metnað, en meira með ótta. Þjóðir fara ekki í svona megaframkvæmdir, sem ljóst er að skila engum hagnaði fyrir ríkið, nema það sé einhver ótti til staðar. Í tilfelli tungllendinganna þá var það ótti við að Sovétríkin næðu fótfestu á tunglinu/geimnum með vopn og tilheyrandi.

Um leið og ljóst var að ekkert væri að óttast, þá var þessu slaufað. Bandaríkjamenn hafa hingað til ekki getað sannfært sjálfa sig um frekari landvinninga á tunglinu, því slíkt próject myndi ekki skila þeim neinum hagnaði.


IBM PS/2 8086

Skjámynd

Stuffz
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 103
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Stuffz » Fim 23. Jan 2025 17:07

hef ekki guðmund, enda skiptir engu fyrir mig persónulega..

ef eitthverntímann sannaðist að væri blekking þá get ég amk sagst ekki hafa keypt það :-k :megasmile :lol:


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Áhugamál: Heimspeki, Tölvur, Tækni, Vélbúnaður, Mannlíf, Greiningar, Leikir, Hjólatúrar, Myndbandsgerð, Gervigreind, Kerfisfjölfræði, Framtíð
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 863
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Ótengdur

Re: Trúr þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Fim 23. Jan 2025 19:11

gRIMwORLD skrifaði:Þetta hefur ekkert að gera með metnað, en meira með ótta. Þjóðir fara ekki í svona megaframkvæmdir, sem ljóst er að skila engum hagnaði fyrir ríkið, nema það sé einhver ótti til staðar. Í tilfelli tungllendinganna þá var það ótti við að Sovétríkin næðu fótfestu á tunglinu/geimnum með vopn og tilheyrandi.

Um leið og ljóst var að ekkert væri að óttast, þá var þessu slaufað. Bandaríkjamenn hafa hingað til ekki getað sannfært sjálfa sig um frekari landvinninga á tunglinu, því slíkt próject myndi ekki skila þeim neinum hagnaði.


Þessu var ekkert slaufað, það var bara farið að gera aðra hluti í geimnum. Nixon var spurðu geimskutlan eða Mars, og hann sagði geimskutlan. Í kjölfar voru geimstöðvar byggðar og sjónaukar komið fyrir þarna uppi.

Þetta snerist ekki fótfestu á tunglinu eða vopn, heldur eingöngu að sanna hvort kapitalismi eða kommunismi væri betra. Enda á þeim tímapunkti þegar JFK hélt ræðuna sína frægu þá voru Rússarnir að rústa vesturlöndunum í þessum málum.

Sömuleiðis þá hættu kommúnistir engu heldu fóru að einbeita sér að öðrum hlutum eins og að lenda hlutum á Venus og byggja fyrstu geimstöðina.



Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 746
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 49
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Trúir þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf gRIMwORLD » Fim 23. Jan 2025 21:40

Edit: Tunglinu slaufað, og það að senda ómannað geimfar vs mannað geimfar er varla samanburðarhæft :)

Vísindaleiðangrar með ómönnuð geimför kosta brota brot af því sem mannaðar ferðir út fyrir sporbaug jarðar kosta. Ef það er ekki keppni/ótti til staðar þá mun engin þjóð taka á sig slíka áhættu eða kostnað. Það er bara ekki í eðli siðmenninga.


IBM PS/2 8086

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 863
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Ótengdur

Re: Trúir þú að Bandaríkin sendu menn til tunglsins?

Pósturaf Henjo » Fös 24. Jan 2025 02:34

En samt voru menn sendir útí geim áður en það var einusinni komið á hreint að maður gæti lifað slíka ferð af. Bandaríkin voru með núll áhuga á geimnum, þeir bókstaflega geymdu Von Braun útí eyðimörk og sögðu honum að halda kjafti öllum þessum fantasíum um geiminn. En samt fóru Rússar útí geim.

Alveg eins og Bandaríkjamenn eru að fara til tunglsins aftur núna, þrátt fyrir að það er ekkert annað heimsveldi sem er nálægt því að geta gert slíkt.

Venera var auðvitað allt öðruvísi en Apollo, og ekkert enginn um borð. Það þýðir samt ekki að það var auðvelt. Þeir lentu og sentu skilaboð frá annari plánetu... árið 1970. Og ekki bara hvaða plánetu sem er, fooking venus. Þar sem 500˚c gráðu hiti og 100 fallt meiri þrýstingur en á jörðinni. Þeir þurftu að skjóta upp frá jörðinni, fara alla leið til venus. Komast í gegnum andrúmsloftið á akkúrat réttan veg til að brenna ekki upp, ná að hægja á sér og lifa lendinguna af. Það eru margir sem myndu vilja meina að það hafði verið talsvert erfiðara en að lenda á tunglinu.

Og síðan er líka hægt að nefna að Trump var bara núna í vikunni að setja Mars aftur framarlega á dagskrá.

Ótti og keppniskapur er samt auðvitað mjög góður driver.