Ég er ekki með neitt hjá þeim og var seinast með eitthvað vinnuinternet hjá þeim 2016. Eftir 20 mínútur í símanum við þau áðan kom í ljós að þau væru að senda mér rukkun útaf @isl.is netfangi sem ég fékk með internettengingu sem Íslandsbanki gaf mér í fermingargjöf 1994

Hvernig þau fengu nafn og kennitölu hjá mér tengda við þetta netfang eða hvað lét þau halda að þau mættu bara stofna þjónustu utan um það er algjörlega ósvarað.
Ef fleiri hérna muna eftir að hafa fengið @isl.is netfang á seinustu öld þá geta þeir væntanlega átt von á að þurfa að hanga í símanum til Sýn líka til að þau hætti að rukka sig.
Ef ég ætti að giska þá bað Íslandsbanki Sýn væntanlega um að hýsa þessi netföng fyrir sig en svo fékk einhver jólasveinn hjá Sýn núna þá snilldar hugmynd að rukka einstaklingana fyrir þetta.
