Ég tók 2024 með krafti fyrstu þrjá mánuði ársins. Tók 16-8 föstur alla daga nema stundum tók ég kannski 36 tíma+. Fór á göngubrettið í ræktinni og reif stöku sinnum í lóð. Borðaði meira prótein og hafði kolvetnin í lágmarki. Enginn bjór, enginn sykur og náði að skafa af mér 30 kíló, fór úr 168kg í 138kg.
Ég hinsvegar hætti allt í einu og náði einhvernveginn að ná mér aftur á strik og 9 mánuðum seinna var ég orðinn 162kg aftur.... En það sem mér fannst skemmtilegt í þessu er að það tók mig lengri tíma að ná þessu aftur á mig (borðaði og borðaði samt sem áður).
Þannig ég endurtek núna það sem ég gerði í byrjun síðasta árs nema ég ætla ekki að hætta eftir 3 mánuði

Leikjavélin: AMD Ryzen 9 7900X3D | Nvidia 4070 SUPER | 3TB NVME Geymsla | Arctic Freezer 240MM | 32GB DDR5
Plex/Server: i7 10700 | 32GB DDR4 | 8TB Geymsla