Orkuverð

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Orkuverð

Pósturaf rapport » Þri 17. Des 2024 11:02

https://www.visir.is/g/20242664920d/ekk ... -virkjunar

Mér þykir þetta svolítið ýkt, er kominn "orkuskortur" þegar allir eru að fá þá orku sem þeir þurfa?

Þó að verið sé að braska með einhvern "orkukvóta" þá jafngildir það ekki orkuskorti OG það er kerfi "millilag" sem Landsvirkjun kom á og er algjörlega þeim að kenna.

Það verður ekki "agúrkuskortur" ef að grænmetisbændur mundu geta ræktað 100% af þörfinni en búa til kvótakerfi sem selur bara 80% á uppsprengdu verði og henda hinum 20%.

Af hverju er verið að leyfa Landsvirkjun að koma á OPEC innanlands?

littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2428
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 156
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Tengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf littli-Jake » Þri 17. Des 2024 11:36

Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 17. Des 2024 11:37

Hér hefur ekki verið standsett nein ný virkjun í hvað 15-16 ár?

Á sama tíma hefur gagnaverum fjölgað.

Hér er að spretta upp landeldi úti um allt sem er bransi sem þarf raforku.

Á sama tíma er verið að rafvæða bílaflotann.

Orka_inn breytan hefur staðið í stað.

Orka_út breytan hefur vaxið.

Veit svo sem ekki hvað nákvæmlega er flókið við þetta.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 17. Des 2024 11:38

littli-Jake skrifaði:Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?

Fyrir austan reyndar. Það er árlegt.

Finnst reyndar eins og dreifikerfinu sé um að kenna þar að hluta.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Des 2024 12:01

Var þetta ekki svolítið fyrirsjáanlegt allt saman?
Mín tilfinning er sí að þá sé viljandi verið að búa til skort og auka eftirspurn til þess að hækka verð.
Svo hefur verið komið á orkumarkaði þar sem rafmagn er keypt og selt líkt og hver önnur vara, sem veldur sveiflum í verði.

Þegar álverið í Straumsvík hótaði að hætta starfsemi og orkusamningurinn við það rann út, var tækifæri til staðar til að nýta orkuna fyrir önnur verkefni, en það var ekki gert. Þá hefði verið næg orka fyrir rafbílana og okkur næstu árin að minnsta kosti á verði sem er margfalt það sem álverið greiðir fyrir það. En það var ekki gert, líklega vegna þess að markaðurinn gerir það arðbærara að selja orku í skorti.

Fullyrðingin um að öll orka á Íslandi sé 100% endurnýjanleg er villandi, vatnsdropinn sem rennur í gegnum virkjunina rennur bara einu sinni þar í gegn svo erum við háð nýju vatni, ekkert öruggt að það verði alltaf nægt vatn hérna eins og dæmin hafa sýnt með uppistöðulónin okkar.

Það þarf stöðugt að bora nýjar holur fyrir jarðvarmavirkjanir þar sem holur „deyja“ með tímanum og úr þeim kemur ekki bara vatnsgufa heldur einnig ýmis mengandi efni. Brennisteinsvetni (H₂S) er stór hluti þess sem losnar frá jarðvarmavirkjunum og hefur áhrif á heilsu og loftgæði. Þessi gaslosun krefst hreinsibúnaðar til að draga úr áhrifum á umhverfið, en það er kostnaðarsamt og hefur áhrif á heildarhagkvæmni virkjana. Að auki losnar koltvíoxíð (CO₂), þó í minna mæli en frá jarðefnaeldsneyti, sem eykur kolefnisspor orkuframleiðslunnar. Þetta sýnir að „græna“ orkan okkar er ekki alveg laus við umhverfisáhrif og kannski ekki eins græn og margir fullyrða.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf GuðjónR » Þri 17. Des 2024 12:07

Afsakið double post:
https://www.visir.is/g/20242665048d/ver ... a-einu-ari

Á einu ári eða frá því í október í fyrra til dagsins í dag hefur verð á raforku hjá smásölum hækkað á bilinu 9-37%.

littli-Jake
Skrúfari
Póstar: 2428
Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
Reputation: 156
Staðsetning: Árbærinn
Staða: Tengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf littli-Jake » Þri 17. Des 2024 12:09

rostungurinn77 skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Var ekki einhver fiskvinnsla fyrir vestan sem þurfti að nota olíuknúnar rafstöðvar í byrjun árs til að halda vinnslu gangandi? Eða er ég að rugla?

Fyrir austan reyndar. Það er árlegt.

Finnst reyndar eins og dreifikerfinu sé um að kenna þar að hluta.

Ahhh. Köllum þetta 50% rugl

i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180

Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1115
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 154
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf brain » Þri 17. Des 2024 13:08

rapport skrifaði:https://www.visir.is/g/20242664920d/ekki-benda-a-mig-segir-for-stjori-lands-virkjunar

Mér þykir þetta svolítið ýkt, er kominn "orkuskortur" þegar allir eru að fá þá orku sem þeir þurfa?

Þó að verið sé að braska með einhvern "orkukvóta" þá jafngildir það ekki orkuskorti OG það er kerfi "millilag" sem Landsvirkjun kom á og er algjörlega þeim að kenna.

Það verður ekki "agúrkuskortur" ef að grænmetisbændur mundu geta ræktað 100% af þörfinni en búa til kvótakerfi sem selur bara 80% á uppsprengdu verði og henda hinum 20%.

Af hverju er verið að leyfa Landsvirkjun að koma á OPEC innanlands?

Það eru skammtanir í gangui víða um land hjá stórnotendum, það hjálpar ekki að dreikikerfið hefur ekki heldur verið stækkað og endubætt.
Svo bæði það vantar að virkja og laga dreifikerfið.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rapport » Þri 17. Des 2024 13:15

brain skrifaði:

Var ekki í fréttum fyrir skemmstu að það hefði akkúrat ekki þurft að skammta rafmagn?

En svo er líka eitthvað galið við orkuverðið, verðmun milli seljenda - https://www.visir.is/g/20242665048d/ver ... a-einu-ari

Lægst 8 kr. og hæst 11,36 kr = 42% verðmunur...

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 17. Des 2024 14:02

rapport skrifaði:
Var ekki í fréttum fyrir skemmstu að það hefði akkúrat ekki þurft að skammta rafmagn?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024 ... r_raforku/

Ert mögulega að vísa í þetta?

Lands­virkj­un hef­ur til­kynnt stór­not­end­um á norður- og aust­ur­hluta lands­ins að ekki muni koma til þeirra skerðinga á af­hend­ingu raf­orku um ára­mót­in sem reiknað hafði verið með.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Lands­virkj­un en þar seg­ir að áfram verði fylgst með stöðu mála, en út­litið á svæðinu sé þokka­legt, t.d. er staða Hálslóns betri í ár en í fyrra.

Skerðing­ar á suðvest­ur­hluta lands­ins hóf­ust 24. októ­ber sl. og munu standa áfram. Áætlað var að skerðing­ar á norður- og aust­ur­hluta lands­ins hæf­ust 22. nóv­em­ber, þeim var svo frestað til ára­móta hið minnsta en nú er fallið frá þeim um óákveðinn tíma.

Vegna stöðunn­ar hef­ur verið ákveðið að virkja ákvæði í samn­ingi við járn­blendi­verk­smiðju Elkem á Grund­ar­tanga, sem heim­il­ar Lands­virkj­un end­ur­kaup raf­orku af fyr­ir­tæk­inu við aðstæður sem þess­ar. Þessi end­ur­kaup eru síðasta vatns­spar­andi úrræðið sem Lands­virkj­un hef­ur yfir að ráða og jafn­framt hið kostnaðarsam­asta.

Feitletrun er mín.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rapport » Þri 17. Des 2024 14:42

Ég hef ekki lesið fréttina, bara fyrirsögnina...

Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 660
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf Manager1 » Þri 17. Des 2024 18:20

Fiskvinnslurnar sem "þurftu" að keyra díselvélar voru að kaupa skerðanlega orku á niðursettu verði, Landsnet skerti svo þessa orku og þá "neyddust" vinnslurnar til að keyra díselrafstöðvar í staðin, þær hefðu samt mögulega getað keypt rafmagn á fullu verði en það hefði sennilega verið dýrara en olían.

Það er til nóg rafmagn í landinu eins og er, en ef það á að verða einhver uppbygging hérna á næstu árum og áratugum þá þarf auðvitað að virkja meira.

Lág staða í vatnslónum Landsvirkjunar leiðir það svo af sér að þeir framleiða eins lítið og þeir komast upp með, sem eykur auðvitað eftirspurnina og hækkar þá verðið á þessum uppboðsmarkaði, sem var btw. gerður til að auka samkeppni á raforkumarkaði sem átti að skila sér í betra verði til almennings en hefur þveröfug áhrif, aukna samkeppnin um þessi fáu MW sem eru í boði hefur leitt til þess að verð hækkar.

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2515
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 242
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf GullMoli » Mið 18. Des 2024 10:32

Önnur pæling í þessu eru einmitt innviðir, það sást nú bara þegar heitavatnið fór af suðurnesjunum vegna eldgossins. Auðvitað fór fólk í rafmagnsofna sem leiddi í ljós að raflagnakerfið í mörgum hverfum þolir ekki svo mikið álag (rafkynding, hlaða rafmagnsbíla og svo stór eldhústæki í gangi á sama tíma).

Sem betur fer eru ekki alveg allir að hoppa á rafmagnsbílana á sama tíma :D

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

raggos
has spoken...
Póstar: 162
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 09:03
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf raggos » Mið 18. Des 2024 10:43

Langar að benda á eftirfarandi greinar tengt þessari umræðu og benda sérstaklega á þá staðreynd að hlutur Landsvirkjunar í orkuverði er ekki nema um 30% af greiddu verði hjá almenningi og smærri fyrirtækjum. Landsvirkjun hefur mjög lengi barist fyrir því að tryggja að almenningur eigi forgang í raforkuna sem er framleidd á vegum fyrirtækisins. Það hefur bara hingað til ekki reynt almennilega á þetta.

https://www.landsvirkjun.is/frettir/fyr ... odugt-verd
https://www.landsvirkjun.is/frettir/raf ... kki-tryggt
https://www.landsvirkjun.is/frettir/lae ... a-i-evropu

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rostungurinn77 » Mið 18. Des 2024 13:04

Ísland er bara að verða á eftir.

https://samorka.is/wp-content/uploads/2 ... -DRAFT.pdf
Viðhengi
samorka.png
samorka.png (93.35 KiB) Skoðað 1960 sinnum

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rapport » Mið 18. Des 2024 13:55

rostungurinn77 skrifaði:Ísland er bara að verða á eftir.

https://samorka.is/wp-content/uploads/2 ... -DRAFT.pdf

Kárahnjúkar komust í gagnið 2009, þá var líklega nokkur umframorka til :-)

En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.

Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf depill » Mið 18. Des 2024 14:26

rapport skrifaði:
En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.

Afhverju ? Skapar störf, umhverfisvænna, skapar gjaldeyrir og heldur uppi byggð. Ég get alveg skilið rökin að byggja ekki nýtt, enn næ engan vegin hvernig fólk og sérstaklega umhverfisverndarsinnar vilja loka álveri á Íslandi.

Skjámynd

Höfundur
rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rapport » Mið 18. Des 2024 23:32

depill skrifaði:
rapport skrifaði:
En þetta álbræðsluævintýri er að verða áberandi vitlaust, að loka einu álveri mun skapa langþráð jafnvægi á þessum markaði.

Afhverju ? Skapar störf, umhverfisvænna, skapar gjaldeyrir og heldur uppi byggð. Ég get alveg skilið rökin að byggja ekki nýtt, enn næ engan vegin hvernig fólk og sérstaklega umhverfisverndarsinnar vilja loka álveri á Íslandi.

Að það er margt verðmætara hægt að gera með þessari orku, það var punkturinn.

Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 660
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 98
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf Manager1 » Fim 19. Des 2024 01:54

Stóriðjan notar 80% af allri orku í landinu, ef það yrði lokað þó ekki nema einu álveri myndi skapast mikil umframorka sem enginn getur notað og þ.a.l. þarf Landsvirkjun að skrúfa niður í virkjunum og verður af mörgum milljörðum í tekjum.

Öll fyrirtæki í landinu nota um 15% af orku landsins, 1 álver notar meira en öll fyrirtæki landsins (sem ekki eru stóriðja) samanlagt. Til þess að geta lokað áveri og notað orkuna í eitthvað annað án þess að það komi alvarlega niður á rekstri Landsvirkjunar þá þurfa álíka orkufrek fyrirtæki að koma í staðin, eins og t.d. gagnaver og ekki eru þau nú mikið skárri en álverin, skapa talsvert færri störf allaveganna.

Það er einfaldlega ekki raunhæft að loka álveri án þess að geta notað orkuna sem losnar í eitthvað annað strax.

Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Orkuverð

Pósturaf rostungurinn77 » Fim 19. Des 2024 09:20

Eins og ?