Vantar hlið á tölvukassa


Höfundur
Gerbill
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 332
Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf Gerbill » Mið 27. Nóv 2024 18:53

Daginn, konan lenti í því óhappi að hliðin á tölvukassanum rann úr greipum hennar í sirka 10cm hæð og smallaðist í öreindir.
Ætlaði því að athuga hvort það væri hægt að kaupa staka hlið á tölvukassa, týpan er Deepcool Matrexx 55 Mesh ATX.




agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 690
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 125
Staða: Ótengdur

Re: Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf agnarkb » Mið 27. Nóv 2024 19:07

Henda í einn póst á customer support hjá Deepcool?

https://www.deepcool.com/support/Base/i ... d=Supports


Leikjavél | ASRock X870E NOVA | 9800x3D | LF II 240| RTX 3090 | 32GB 6400MHz CL32 | RM850x | Fractal Design North
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic


Höfundur
Gerbill
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 332
Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf Gerbill » Mið 27. Nóv 2024 21:26

agnarkb skrifaði:Henda í einn póst á customer support hjá Deepcool?

https://www.deepcool.com/support/Base/i ... d=Supports


Heyrðu já sniðug hugmynd, hendi í póst, takk :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6573
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 355
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf gnarr » Fim 28. Nóv 2024 23:43

Það er að öllum líkindum ódýrara að kaupa nýjan kassa en að borga fyrir sendingu á þessu gleri frá útlöndum.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Black
Vaktari
Póstar: 2422
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 157
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf Black » Fim 28. Nóv 2024 23:49

Borgar sig ekki að panta glerið.
væri trúlega best fyrir þig að láta sníða plexigler í þetta.


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |


ejm
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Vantar hlið á tölvukassa

Pósturaf ejm » Fim 23. Jan 2025 13:00

Ég lenti í þessu um daginn, (hallaði turninum þegar ég var að festa skjákortið í, og áttaði mig ekki á að lamirnar halda bara ef turninn snýr upp) - endaði á að kaupa nýjan eins kassa og færa glerið á milli :) Er núna með auka kassa og er einmitt að spá í plexigleri fyrir hann (og sem auka til þess að eiga ef ske kynni að þegar þetta gerist aftur).
Hvar er auðvelt að græja það, Fablab bara?
Síðast breytt af ejm á Fim 23. Jan 2025 13:00, breytt samtals 1 sinni.