dannicroax skrifaði:T-bone skrifaði:Eftir roooosalega miklar pælingar hjá mér í fyrra endaði ég á MSI MAG Z790 Tomahawk ddr5 og er mjög sáttur með það.
Ég er ekki djúpt í overclock en er svona að fikta pínu og vildi hafa möguleikann á því, og að gæðin væru alveg top notch.
Var einmitt búinn að skoða Tomahawk og sá að það var alveg rúmlega 26þ ódýrara að fá sent frá Amazon með öllu en að kaupa hjá Tölvulistanum/Tölvutek - rakst hins vegar á slatta af þráðum um framleiðslugalla í MSI borðum og margir að fá borð DOA en eflaust búið að vinna bug á því.
Ég byrjaði á að panta frá Amazon, ásamt skjákorti. m.2, ram og ýmsu.
Það móðurborð var DOA. Ég sá sjálfur hvar skemmdin var og hafði samband við Amazon og fékk að skila því, og ekki nokkurt vandamál við það. Fékk meira að segja meira endurgreitt en ég borgaði fyrir það í rauninni því að sendingarkostnaðurinn varð svo lítill hlutfallslega vegna þess að ég pantaði marga hluti.
Þá ákvað ég bara að kaupa það hérna heima til að vera pottþéttur.
Það virðist ekki vera stórt hlutfall borða sem koma DOA þó að það sé slatti af borðum, en þetta er líka fyrir ári síðan svo að þeir hljóta að vera búnir að laga þetta. Það var bara skemmt inní prentplötunni.
Ég ákvað þrátt fyrir þetta að kaupa annað eins borð því að internetið virtist vera sammála um að þau væru ekki að bila ef þau væru ekki DOA, og að þetta væru geggjuð móðurborð.