brain skrifaði:Settu allt saman í sömu körfu, þá færðu bara 1 sendingarkosnað m/vsk
verkfærin saman eru um 27.000
innfluttningsgjald og skattar fara ofan á þetta verð.
mainman skrifaði:í hvað ætlar þú að nota þetta ?
Skrall með lið er t.d. ógeðslega sniðug hugmynd en í t.d. bílaviðgerðum fer svakaleg orka í að passa upp á að liðurinn bogni ekki þegar þú ert að taka á.
Erfitt að lýsa þessu en allavega um leið og liðurinn er kominn í action þá bæði heldur þú ekki toppnum beint á boltanum og þú nærð ekki fullu átaki á það sem þú ætlar að losa.
Varðandi knipex tangirnar þá tek ég bara knipex og milwaukee tangir og þarna ertu með eina píputöng og eina nippiltöng.
Hún er æðisleg í pípulögnum og ég á tvær svoleiðis og önnur þeirra er limited edition sem kom út núna um seinustu jól.
Æðislegt að vinna með þetta en ef þú ætlar að vera rafvirki þá hefur þú ekkert við hana að gera í rauninni.
Taskan og hallarmálið henta þér í hvað sem er en ef þú ert á ferðinni með verkfærin þá færi ég frekar í stærri bakpoka frá milwaukee.
Minn bakpoki er öruglega um 40kg en ég er með allt til alls í honum og stórt box með tengjum, róm, boltum, nettengjum endahulsum og eiginlega allt sem vantar til að vinna í rafmagni, vatnslögnum, rafmagnstækjum og alveg sama hvað kemur uppá nema ég er ekki með neitt stærra en 1/4" topplyklasett.
Hallamálið verður mest til að setja upp töflur á vegg.
píputöng og nipple er til að auðvelda mér að ganga frá boltum, nippla og beygja einþætta víra í rafmagnstöflu.
Taskan er fyrir að geyma usual suspects tángir, skrúfjárn og eithvað fleira.
Lyklasettið verður mest notað til að snitta göt þegar ég er búinn að bora fyrir þá, ég er með annað lykil fyrir allt hitt.
Öll verkfærin minn eru frá Wera. Byrjaði með wera eftir ég keypti verkfæra tösku með verkfærum frá Hjaltiatla fyrir mörgum árum.