ARP cache er tafla sem að tölvan heldur um IP tölur og samsvarandi MAC addressur.
Ég veit ekki afhverju það virkar ekki að flush'a (hreinsa) ARP cache'ið hjá þér, en það gæti verið afþví að þú ert með USB netkort.
Ertu með rétta og nýjustu driver'a?
Þú gætir prófað að leita í bæklingum/geisladisknum/heimasíðu framleiðandans og athuga hvort að það standi eitthvað um þetta vandamál.
Ef að þú vilt prófa að flush'a ARP cache „handvirkt“ geturðu farið í Command Line og prófað að skrifa
arp -a og þá ættirðu að fá ARP töfluna með MAC og IP addressum tölvna sem að þessi tölva hefur haft samskipti við. Síðan skaltu prófa að keyra
arp -d * til þess að hreinsa töfluna og síðan aftur
arp -a og tölvan ætti að segja af taflan sé tóm. Ef að eitthvað klikkar í þessu ferli máttu endilega segja hvað það er.
SvamLi skrifaði:Ég næ ekki að tengjast henni eftir að þetta gerist....og áður

Þannig að þú nærð s.s. aldrei að tengjast henni, óháð því hvort að þú ýtir á 'Repair' takkan?
SvamLi skrifaði:Búinn að restarta oft!
Ertu búinn að prófa að restarta eða resetta netkortinu, eða er enginn svoleiðis fítus á því?