Hef aðeins fylgst með kínversku framleiðendunum Minisforum og Bee-link pumpa út ódýrum vélum, stundum með hönnunargöllum og loforðum sem standast ekki. Síðan er mjög lítið um support og nánast engar BIOS uppfærslur. Fyrstu vélar þeirra með DDR5 minni og PCIe5 SSD diskum áttu það til að hitna allt of mikið, en á sama tíma var Intel NUC vélarnar með einhverskonar kælingu útpælt á alla þessa hluti.
Á eina beelink vél með intel fartölvu örgjörva sem ég keypti aðalega því mig vantaði windows 11 vél í þróun auk Minisforum B550 sem ég keypti vitandi
að þær taka ekki X-seríu AM4 örgjörva sem var mjög illa útskýrt þegar hún var kom út. Er nokkuð sáttur með þær, en ef þær bila er varla mikið hægt að gera annað en að far með þær í ruslið.