Ég er með Gigabyte Aourus 2080 Super GPU og mig grunar að það sé að thermal throttle-a eða ég kannski að lesa vitlaust út úr þessum upplýsingum

En semsagt hér má sjá skjáskot úr HWInfo þegar ég var að keyra Mass Effect áðan
Svo virðist sem að GPU Core temperature hangi ansi nálægt thermal limit og fyrir vikið virðist önnur viftan á kortinu kikka allhressilega inn með tilheyrandi látum. Sést reyndar ekki svo vel á þessu skjáskoti en ég sá að GPU Core Load var að rokka verulega mikið.
Þegar ég prófaði Diablo 4 betuna þá var kortið að hegða sér eins, mikil læti í viftunni annars slagið og ég fékk annars slagið svona frame stutters. Var reyndar ekki með HWInfo keyrandi þá.
Er þetta kannski bara eðlilegt að þessi skjákort séu alltaf svona nálægt thermal limit með miklum látum í viftum? Er hægt að stresstesta kortið til þess að sjá hvort að kælingin á því sé orðin eitthvað slöpp?