Sælir er í brasi með að tengja ljós heima hjá mér. Ef að það þarf einfaldlega að tengja brúnt og blátt þá skil ég. En það virðist vera að það þurfi að samtengja einhver ljós eða eitthvað svoleiðis. Ljósin sem ég er í vandræðum með eru 3 ljós sem tengjast í 3 dósir og eru í röð, en engin af þeim virka. Þegar ég var að setja þau upp þá virkaði það fyrsta, síðan tengdi ég nr 2 og þá hættu allar dósirnar að virka. Virðist ekki vera neinn straumur úr þessum dósum (skv mælingum tengdó).
Hér er stofuljósið:
![IMG_0402.jpg](./download/file.php?id=29377)
- IMG_0402.jpg (863.52 KiB) Skoðað 2371 sinnum
Við sáum að ljósið sem var fyrir var tengt svona með brúnum og hvítum inn í brúnan. Ég er búinn að komast að því að hvíti þarf að vera tengdur til að annað ljós á sama rofa virki. Ef hvíti er bara tengdur þá virkar bara hitt ljósið. Ef bara brúni er tengdur þá virka hvorug ljósin. Síðan í þessu brasi mínu núna virðist ég hafa aftengt eitt veggljós.
Hér eru hinar dósirnar sem virka ekki.
![IMG_0411(1).JPG](./download/file.php?id=29378)
- IMG_0411(1).JPG (1.61 MiB) Skoðað 2371 sinnum
![IMG_0410(1).JPG](./download/file.php?id=29379)
- IMG_0410(1).JPG (1.61 MiB) Skoðað 2371 sinnum
![IMG_0409(1).JPG](./download/file.php?id=29380)
- IMG_0409(1).JPG (1.59 MiB) Skoðað 2371 sinnum
Þarf ég ekki að samtengja eitthvað dót
Er með alls konar eitthvað dót veit samt ekki einu sinni hvað þetta gerir allt saman:
![IMG_0408.jpg](./download/file.php?id=29373)
- IMG_0408.jpg (778.99 KiB) Skoðað 2371 sinnum
skil ekki hvað fjólubláu, hvítu og gráu vírarnir gera
Hvað segið þið vaktarar?
![Angel O:)](./images/smilies/eusa_angel.gif)
Lyklaborð: Red Scarf III 96 key með GMK keycaps og Zealios 65g switchum með Zilencios.
Mús: G Pro Wireless Superlight með Corepad gripi, Tiger mouse feet, TTC Gold Mouse Wheel Encoder og Huano Transparent Blue Shell Pink Dot Switchum.
Músarmotta: Zowie P-SR