Ég átti náttúrulega Nintendo þegar ég var sex ára og spilaði villt og galið Mario Bros og RoboWarrior og fleiri leiki, en seldi hana og skipti yfir í PC aðeins seinna.
Sá leikur sem ég spilaði hvað mest á PC í gamla daga var
Wolfenstein 3D.
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,306/
Ég var sennilega að spila hann um 1993-1994, þegar ég var 10 ára. Hún móðir mín var nú ekkert sérstaklega ánægð að sjá mig myrða fólk á tölvuskjánum á þessum aldri, en mér tókst alltaf að spila hann eins og ég vildi (og tel ég mig ekki hafa haft mikinn skaða af

)
Svo spilaði ég heilmikið
Warcraft og
Warcraft II. Snilld í multiplayer (yfir 14.4 modem)
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,371/
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,1339/
Ég fílaði alla gömlu Lucasarts leikina, en var alltaf svo ofsalega lélegur í þeim að ég náði aldrei að klára þá
Aðrir ævintýraleikir sem ég spilaði (en kláraði aldrei) voru
Beneath a Steel Sky og
Bioforge.
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,386/
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,561/
Einn allra mesti snilldarleikur barnæsku minnar var hinn sögufrægi
One Must Fall 2097. Þetta er bardagaleikur, eitt risavélmenni á móti öðru risavélmenni. Þvílík argasta snilld sem þetta var, svakalega mikið af köllum og endalaust af trikkum og allt var þetta alveg ofsalega flott.
http://www.mobygames.com/game/sheet/p,2/gameId,234/
Það voru náttúrulega miklu fleiri leikir sem maður spilaði, en þessir bera höfuð og herðar yfir hina
