Einhver sem kannast við svona vandamál? Get ég gert eitthvað til að laga þetta eða á ég bara að kaupa nýjan router?

JReykdal skrifaði:9 ára tölvudót er gaaaamalt
Hvenær fékkstu síðast öryggisuppfærslu á routerinn?
DoofuZ skrifaði:Er nú aðeins búinn að skoða úrvalið í búðunum og 20-30 þúsund er kannski fulldýrt fyrir minn smekk (og þarfir). Ég þarf ekkert einhverja ofurgræju, bara einfaldan router, sem höndlar gigabit tengingu og er auðveldur í notkun en líka öruggur. Og alls ekki Linksys nema það sé router sem sé ekki að bjóða manni eitthvað cloud login.
Eitthvað sem menn mæla með?
DoofuZ skrifaði:Já, var að skoða þetta betur og sé að ég get ekki fengið gigabit router undir 20 þúsund
Er svoldið að spá í TP-Link AX10 Router þráðlaus Dual Band Gigabit Wi-FI 6 hjá Tölvutek, er það ekki bara ágætur router? Aðrir sambærilegir í öðrum búðum eru annað hvort svoldið dýrari eða bara uppseldir svo það er ekki úr mörgum að velja
DoofuZ skrifaði:Jæja, verslaði mér þennan AX10 router í Tölvutek í dag og líst bara helvíti vel á þessa græju. Síðan fór ég í að tengja hann og sendi þá línu á Nova til að láta þá vita af nýrri mac addressu, gaf upp það sem stendur á límmiða undir routernum og það var skráð inn svo ég hélt áfram með uppsetninguna. En þegar ég var svo kominn með hann í gang og kominn inní stillingarnar að þá var mac addressan þar ekki alveg sú sama. Sú sem er á límmiðanum undir endar á 6C en í stillingunum endar hún á 6D. Einhver sem veit skýringuna á því?Svo ef ég set inn custom mac addressu í stillingunum og læt hana þar enda á 6C eins og á límmiðanum þá kemur samt á forsíðunni sú gamla (6D) og það breytist ekkert þó ég endurræsi, samt er það rétt í stillingunum (6C) þegar ég kíki á hana þar. Er þetta eitthvað gallað?
Síðan í ofanálag við þetta þá gerðist það að þegar ég hafði samband við Nova aftur til að leiðrétta mac addressuna að þá fékk ég þau svör að það kæmi bara einhver villa við þá skráningu og málið sent áfram á tæknideildina sem er ekki við fyrr en á mánudag svo ég verð bara netlaus þangað til, frábært!Get að vísu notað 4g netið á símanum, tengi símann bara við tölvuna og deili netinu, svosem skárra en ekkert en er búinn að vera gera það í meira en viku útaf veseninu með gamla routerinn og alveg að fá nóg af því
hagur skrifaði:Routerinn er væntanlega með fleira en eitt interface og þ.a.l. fleiri en eina mac addressu. WAN interface-ið er t.d eitt interface, WLAN er annað og svo væntanlega enn annað fyrir LAN interface-ið. Þarft að passa að gefa upp mac addressuna á WAN interface-inu.