rapport skrifaði:Ef þetta fer langt útfyrir bæinn þá mun þetta draga helling af fólki í "hina áttina" á morgnana og þá eru ekki allir á leið niðr í bæ á sama tíma.
Væri áhugavert að skoða umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins, hvað þetta svæði er talið skapa/draga að sér mikla umferð.
Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q
rapport skrifaði:Ef þetta fer langt útfyrir bæinn þá mun þetta draga helling af fólki í "hina áttina" á morgnana og þá eru ekki allir á leið niðr í bæ á sama tíma.
Væri áhugavert að skoða umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins, hvað þetta svæði er talið skapa/draga að sér mikla umferð.
Gamalt módel fyrir umferðarsköpun reita er: Ferðir = 1,85 *íbúar + 0,14 *m2 verslun og skrifstofur + 0,04* m2 annað atvinnuhúsnæði Þannig ef t.d verlsun/skrifstofur væru 50þ og annað atvinnuhúsnæði væri 150þ. Þá er heildar umferðarsköpun reitsins 13000 ferðir á dag.
Vandamálið er að það þarf að virkja Heilbrigðiseftirlitið, og borginn þarf að ýta meira á að hafa umhverfið í kringum atvinnuhúsnæði í lagi.Atvinnusvæði þurfa ekki að lykta eins og reykkofi og líta út eins og bílapartasala.Lækir og fráveita eiga ekki að vera fljótandi í vélar og matarolíu ef hlutirnir eru í lagi. Rykmengun frá malarvinnslu þarf ekki að vera svona mikil ef það er farið rétt að hlutunum. Ef við skoðum nýju byggðina í Súðavogi þá lítur það hverfi ömurlega út því húsinn eru gömul og ekkert haldið við og svæðið bíður ekki uppá betrumbætur í kringum þá starfsemi sem er þar. Völuteigur í Mosfellsbæ er atvinnuhverfi sem lítur vel út, þar eru stór fyrirtæki eins og Borgarplast,Matfugl og bílaverkstæði. Þegar maður horfir í kringum sig þar þá sér maður að það er flott umgjörð í kringum húsin þar og ekki þessi stóriðju fýlingur, því hlutirnir eru í lagi Ástæðan fyrir því að atvinnuhverfi eru svona umdeild er vegna þess að borginn og atvinnurekendur leyfa því að viðgangast.
Stuffz skrifaði:Ég bý ekki þarna en vil geta notið að hjóla og tekið upp efni þarna aftur án eitthvers mögulega hávaðasams iðnaðar í nágrenninu
Það er búið að blása "léttan iðnað" út af borðinu, það var gert í kjölfarið á þessari undirskriftasöfnun.
Núna er fólk að furða sig á hversu langan tíma það hefur tekið að koma unferðamannvirkjum þarna í byggingu og tryggja bætta aðkomu að hverfinu og í raun bætta aðkomu inn í Grafarvogin líka. Þá væri í raun hægt að fækka um tvö hringtorg á Vesturlandsvegi.
Svo eru það bara ljósin við KFC sem þurfa að verða hringtorg (eins og er Grafarvogsmegin við brúnna), þá hættir röðin þaðan að ná út á Vesturlandsveg og hægja á allri umferð þar á annatímum.