Langaði aðeins að forvitnast með tímareimaskipti í Skoda Octaviu dísel árgerð 2011.
Í manualinum frá Skoda segir að það sé við 210 þús kílómetra en segja ekkert til um einhvern árafjölda.
Minn er að verða 10 ára í mars 2021 en er ekki ekinn nema 115 þús.
Er einhver hérna sem er sérfræðingur í þessu og veit hvort það sé öruggt að keyra áfram að þessari tölu eða kominn tími á skipti?
Hef skoðað erlenda þræði og sumir vilja meina það sé við 10 ára aldur en svo segja sumir að það sé save að keyra upp að 210 þús óháð aldri.
Þetta er nefnilega pakki sem ég væri til í að geta sleppt við að borga sé ekki þörf á því strax
