Þegar ég sagði fólkinu í kringum mig hvað planið væri þá datt andlitið af mörgum og þvílíka gagnrýnin sem sumir komu með um hvað ég væri að pæla.
Nú kom græjan til landsins um 17.des og þetta er skemmtilegasta apparat sem ég hef komist í tæri við.
Ég og krakkarnir höfum hamast 2-4 klst.á dag við að slá metin hjá hvoru öðru í Beat Saber, teiknað allan anskotann í 3D, spilað Angry Birds, SuperHot, heimsótt Mars360 og hinar og þessar stórborgir og á meðan einhver er í græjunni þá er bein útsending í sjónvarpinu hvað hann/hún er að gera.
Ég vissi að þetta yrði skemmtilegt en bjóst ekki við að þetta mundi slá í gegn hjá okkur öllum. Er að pæla hvort maður ætti að splæsa í annað headset eða hvort þetta róist ekki aðeins.
p.s passið ykkur í SuperHot, tókst að kíla í kaktus heima (almennt ekki sniðugt að spila VR leiki í nálægð við kaktus).

Eru hugsanlega einhverjir hér sem þekkja þetta betur og geta komið með tips& tricks hvað er sniðugt að gera?