Pósturaf Gunnar » Lau 15. Jún 2019 16:43
þetta er þannig séð mjög auðvelt.
mælir hvað þú hefur mikið pláss fyrir stórt borð og ferð svo að skoða borð sem passa og kaupir það.
það kemur líklegast ekki samansett og flest borð sem þu kaupir i dag er mjög auðvelt að setja saman.
kaupir svo fjöltengi(myndi mæla með að kaupa með innbyggðu öryggi), og kapalrennu í einhverri rafvirkjaverslun og skrúfar það uppundir borðið(passa að skrúfurnar fara ekki i gegnum borðið).
verslar í elko eða aliexpress(ég gerði það) eða álíka skjástand fyrir 1 eða 2 skjái og festir aftaná borðið.
Ef þú ert með gaming lyklaborð er kannski erfitt að láta vírinn felast allveg ef kapallinn er mjög þykkur eins og hjá mér, en lætur hann þá bara liggja aðeins lengra.
Lætur alla vírana svo fara niður bakvið skjástandinn eða uppvið hann.