Haukursv skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Jæja ég kíkti bara á Ali frænda og pantaði þetta. Vonum að það berist fyrir áramót. Ég ætla bara að fara í Íhluti og smíða mér alvöru analog volume pott í staðinn.
Töff borð ! Geturðu sagt mér meira frá þessum analog volume pott eða bent mér á einhver resources ? Er algjör nýliði í svona fræðum en þetta hljómar áhugavert
Já mjög spennandi borð.
Þá kaupirðu stilliviðnám t.d. í Íhlutum. Bara eins og er á gamaldags hljómgræjum og gítörum og þess háttar.
Það eru þrír vírar í venjulegri jack hljóðsnúru, ein fyrir hægri, ein fyrir vinstri og ein fyrir jörð.
Svo tengirðu bara hægri og vinstri vírana í sitthvort typpið á stilliviðnáminu og voila, þú getur lækkað hljóðið með því að snúa.
Bara passa að kaupa "volume potentiometer" því desibel(hljóðstyrkur) virkar þannig á því rófi, eða á log skala. Helst einnig sem er með "off" switch þegar hann er alveg skrúfaður niður.
Skemmtilegra að gera þetta sjálfur en að kaupa þetta tilbúið. Þetta kostar samt alveg helling. Vönduð viðnám geta kostað kannski 3-10 þúsund. Kaupir svo einhvern stóran og flottan takka til að smella ofan á og setur sand í plastbox og skrúfar þetta í til að þetta sé þungt og flott
https://www.google.com/search?q=potenti ... s&tbm=isch

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB