IM666 skrifaði:já ég veit að Imac væri sennilega lang best í þetta og mig hafur oft langað að fá mér þannig, en ég er ótrúlega hrædd við að skipta úr pc þar sem ég haf aldrei átt annað, og veit að t.d allar flýtileiðir í photoshop eru ekki eins í þeim, svo það væri smá vesen að skipta

en samt ótrúelga freistandi, og líka þar sem ég verð með aðra pc tölvu og ætla mér að vinna myndir á báðar tölvurnar, þá gæti það kanski verið vesen að vera með bæði pc og mac eða hvað ?.
Flýtileiðirnar eru eins þannig séð, eru á sama stað á lyklaborðinu í nánast öllum tilfellum, CTRL í PC er Command í mac, Alt í PC er option-takkinn í mac. Takkarnir eru staðsettir á sama stað, örfá tilvik eru ekki eins og þú nærð fljót tökum á því, Vinn oftast á mac í PS og LR en hoppa stundum á PC og það er lítið að hrjá mig. Allavega að mínu mati þarftu ekki að vera hrædd og sér í lagi miðað við það sem þú færð í staðinn.
Hér er t.d Cheat-Sheet fyrir Mac
https://www.nobledesktop.com/shortcuts/ ... cc2017/macSvo hér fyrir PC
https://www.nobledesktop.com/shortcuts/ ... pcc2017/pcGetur borðið þetta saman, séð svo lyklaborð fyrir mac vs pc.
Gætir jafnvel notað venjulegt lyklaborð á Makkan og þá ætti þetta að vera eins.