Takk fyrir svörin.
rapport skrifaði:Ef ég væri að skipuleggaj þetta eldhús þá mundi ég pæla í:
1 - Kranarnir sem standa út bakvið uppþvottavélina munu verða fyrir = hún mun standa út úr innréttingunni
Skáparnir eru 60cm djúpir og borðplatan bætir svo við amk. 2-3cm svo dýptin er um 63cm. Uppþvottavélin er um 55cm svo hún kemur ekki til með að standa út, kranarnir eru ekki nema 4-5cm svo það er nóg af pássi eftir.
rapport skrifaði:2 - Niðurfallið í gólfinu verður til vandræða þar sem það þarf vatnslás undir vaskinn og fyrir það sem mun koma úr uppþvottavélinni og þetta fer ekki í sökkulinn því þá er enginn vatnshalli = áskrift á tjón.
Mjög valid punktur, þyrftum að hafa halla á rörinu alveg frá vatnslás, í gegnum hornskápinn, bakvið uppþvottavél og svo niður í niðurfall. Svo tengja frárennslið frá uppþvottavél í vatnslásinn. Ekki óyfirstíganlegt held ég, en hvort maður eigi að vera að brjóta gólfið fyrir svona low budget verkefni veit ég ekki.
rapport skrifaði:3 - Rafmagn fyrir uppþvottavélina?
Það er fyrir ofan niðurfallið.
rapport skrifaði:4 - Af hverju virðist sem að einhver hafi tengt uppþvottavél við heita vatnið?
Uppþvottavélin tekur heitt vatn.
rapport skrifaði:Niðurstaða:
Það þarf að:
Setja niðurfallsrör í gegnum alla skápana með tilheyrandi vatnslásum og vatnshalla og einhvernvegin inn í og í gegnum botninn á miðjum skáp sem fer þarna í hornið. (vonandi á ekki að vera ísskápur þar)
Þá þarf að setja plaströr fyrir heitt og kalt frá rörunum í veggnum að vaskinum og líklega beygju og krana fyrir uppþvottavélina svo hægt sé að ýta henni inn undir borðið, svo hún standi ekki út.
Finna stað til að tengja uppþvottavélina í rafmagn.
Og þetta er flest langauðveldast að leys ameð því að taka úr veggjunum fyrir þessum lögnum, múra smá og sparsla, þá kemur þú vatnslögn og rafmagni á rétta staði... niðurfallið er líklega erfiðara mál.
En þar sem ég viðskiptafræðingur þá mundi ég kalla á fagmann... man að eftir klúður hjá sjálfum mér þá las ég á bíl rafvirkjameistara daginn eftir "Klár getur, reyndur gerir betur"
Hugsa núna alltaf þessa anskotans setningu áður en ég fer í framkvæmdir sjálfur :-)
Já, maður á það til að vera full bjartsýnn og hrokafullur í svona framkvæmdum.
Langaði bara að ræða þetta, þar sem það er engin leið að fá svör frá iðnaðarmönnum fyrr en þeir mæta á svæðið... ef þeir mæta á svæðið.
Nenni bara svo lítið að fara að brjóta allt í spað með tilheyrandi ryki og rusli fyrir einn helvítis vask.