

Hjaltiatla skrifaði:Costco mun selja áfengi!
Áfengið verður ekki selt einstaklingum, heldur þeim sem eru með fyrirtækjaaðildarkort í versluninni og hafa leyfi til að selja áfengi í smásölu, eins og t.d. veitingastaðir eða barir.
davidsb skrifaði:Áfengið verður ekki selt einstaklingum, heldur þeim sem eru með fyrirtækjaaðildarkort í versluninni og hafa leyfi til að selja áfengi í smásölu, eins og t.d. veitingastaðir eða barir.
Spurning hvort það lækki samt nokkuð verð á börunum, bara meiri hagnaður fyrir endursöluaðilana.
zetor skrifaði:Verður Costco með netverslun á íslandi?
Drone skrifaði:zetor skrifaði:Verður Costco með netverslun á íslandi?
Nei, skv því sem ég hef heyrt verður ekki netverslun á Íslandi
Moldvarpan skrifaði:Var á olís áðan, þar er verið að selja bensínið á 199kr líterinn.
Það er komið verð á dælunar hjá Costco, 169kr líterinn.
Moldvarpan skrifaði:Var á olís áðan, þar er verið að selja bensínið á 199kr líterinn.
Það er komið verð á dælunar hjá Costco, 169kr líterinn.
Marinó G. Njálsson skrifaði:Lítrinn kostar í kringum 10 DKK hér í Danmörku sem leggur til á um 151 IKR miðað við gengið í augnablikinu. Þannig að verðið hjá Costco yrði hátt miðað við það sem Dönum er boðið upp á!
Oddsson Unnsteinn skrifaði:12,57kr i Stokkhólmi. (https://bensinpriser.nu/) eða 145,35kr íslenskar. Takið fagnandi á móti Costco.
visir.is skrifaði:Lítrinn af bensíni hefur ekki kostað undir 170 krónur á lítrann síðan árið 2009.
I-JohnMatrix-I skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Var á olís áðan, þar er verið að selja bensínið á 199kr líterinn.
Það er komið verð á dælunar hjá Costco, 169kr líterinn.
"Eldsneytisverð Costco: Myndin sem allir eru að tala um sýnir ekki rétt verð"
https://www.dv.is/frettir/2017/5/19/eld ... rett-verd/
Hjaltiatla skrifaði:*snip*
Einhverjir hafa bent réttilega á að á bíl með 40 lítra bensíntank tæki það 5-6 skipti (sparnaðurinn við að dæla á bílinn hjá Costco) að fylla á bílinn á Costco bensínsdælunum til að greiða niður aðildargjaldið hjá Costco miðað við verðið hjá hinum bensínstöðvunum.
Við skoðunina kom í ljós að 24 stór brún egg kosta 999 krónur, sex stykki af 250 gramma reyktu beikoni kosta 2.229 krónur, hálft kíló af smjöri kostar 399 krónur, Bose-hátalari kostar 21.000 krónur, 55 tommu Philips-sjónvarp kostar 99.000 krónur, LG þvottavél kostar 79.999 krónur og fólksbíladekk af stærðinni 185/65 kostar 10.899 krónur.
Gislinn skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:*snip*
Einhverjir hafa bent réttilega á að á bíl með 40 lítra bensíntank tæki það 5-6 skipti (sparnaðurinn við að dæla á bílinn hjá Costco) að fylla á bílinn á Costco bensínsdælunum til að greiða niður aðildargjaldið hjá Costco miðað við verðið hjá hinum bensínstöðvunum.
Ódýrasta bensín fyrir utan Costco er OrkanX á 185,7 kr líterinn eða 15,8 kr meira en Costco sem þýðir að þú þurfir að dæla rúmlega 303 lítra til að aðildargjaldið er komið til baka í sparnaði. Það þýðir að það náist á rúmum 7 og hálfum 40L tönkum, engu að síður er þetta alveg bilaður munur.
Átti leið framhjá áðan og ákvað að stoppa og taka eldsneyti, skannaði barcode-ið á costco kortinu, setti svo greiðslukortinu í vélina og dældi. það var lítil bið enda fullt af dælum og mjög mikið af starfsmönnum að hjálpa fólki sem lenti í vanda.
hallizh skrifaði:Ég meina.. ódýrasta phillips 55 tommu sjónvarpið kostar bara 95.000kr í Elko... en dýrasta 175.000 kr. Þannig að það er erfitt að meta þetta út frá tæknivörunum. Helst gætu eggin og smjörið gefið manni hugmynd
Danni V8 skrifaði:Gaman að rifja upp tímana þegar bensínið var að skríða yfir 100 kallinn og margir voru ösku illir. Síðan fór lítrinn að nálgast 150 og hneykslið varð alveg gríðarlegt. Núna er fólk að fagna því að lítrinn er að kosta undir 170 kall á einni bensínstöð
hallizh skrifaði:Við skoðunina kom í ljós að 24 stór brún egg kosta 999 krónur, sex stykki af 250 gramma reyktu beikoni kosta 2.229 krónur, hálft kíló af smjöri kostar 399 krónur, Bose-hátalari kostar 21.000 krónur, 55 tommu Philips-sjónvarp kostar 99.000 krónur, LG þvottavél kostar 79.999 krónur og fólksbíladekk af stærðinni 185/65 kostar 10.899 krónur.
Ég er ekki alveg að gera mér grein fyrir því hversu mikið eða hvort þetta sé ódýrara á íslandi? Eruð þið nokkuð með verð á 24 stórum brúneggjum í kollinum?
Ég meina.. ódýrasta phillips 55 tommu sjónvarpið kostar bara 95.000kr í Elko... en dýrasta 175.000 kr. Þannig að það er erfitt að meta þetta út frá tæknivörunum. Helst gætu eggin og smjörið gefið manni hugmynd
frappsi skrifaði:hallizh skrifaði:Ég meina.. ódýrasta phillips 55 tommu sjónvarpið kostar bara 95.000kr í Elko... en dýrasta 175.000 kr. Þannig að það er erfitt að meta þetta út frá tæknivörunum. Helst gætu eggin og smjörið gefið manni hugmynd
Philips sjónvarpið kostaði 155 þús hjá Elko þar til það fór á afmælistilboð með 39% afslætti í síðustu viku. 50 stk til og 1 stk á mann stóð í blaðinu. Það er komið aftur á upphaflegt verð. Sem sagt: Sjónvarp sem kostar 99 þús í Costco er á 155 þús í Elko.
Bose SoundLink ferðahátalarar á 21 í Costco og 25 í Elko.
Einhverra hluta vegna er Costco að selja Bose QC15 á 30 þús en nýrri útgáfan QC25 kostar 40 þús í Elko.
Gaman að sjá hvað verslanir hafa haft mikið svigrúm til lækkana upp á síðkastið. Gott mál. Verður gaman að skoða þetta í vikunni.
hallizh skrifaði:Annars vona ég bara innilega að við fáum ætt grænmeti/ávexti á klakann!
playman skrifaði:Það er skítalykt af þessu.
http://www.visir.is/g/2017170529772/nid ... k-i-budina
playman skrifaði:Það er skítalykt af þessu.
http://www.visir.is/g/2017170529772/nid ... k-i-budina